Könnun Maskínu daginn fyrir kjördag staðfesti flugið á Höllu Tómasdóttur Könnun sem Maskína gerði daginn fyrir kjördag staðfesti að allar líkur væru á að Halla Tómasdóttir myndi bera sigur úr bítum í kosningunum. Maskínu þótti hins vegar ekki rétt að birta könnun á kjördag. Innlent 2. júní 2024 12:31
Halla Hrund með hjartað fullt af þakklæti Halla Hrund Logadóttir, forsetaframbjóðandi og orkumálastjóri, óskar nýkjörnum forseta til hamingju með niðurstöðuna. Hún þakkar stuðningsfólki sínu fyrir góða baráttu og segist halda áfram inn í daginn með hjartað fullt af þakklæti. Halla Hrund fékk tæp 16 prósent atkvæða í kosningunum í gær. Innlent 2. júní 2024 12:09
Var nálægt því að draga framboð sitt til baka „Mér líður furðu vel fyrir utan svefnleysið. Mér er hlýtt í hjarta og hjarta mitt er fullt af þakklæti fyrir ótrúlegan stuðning og ótrúlega gleði, alla leiðina í framboðinu,“ segir Halla Tómasdóttir nýkjörin forseti Íslands. Hún þakkar þjóðinni fyrir traustið og upplýsir að snemma í maí hafi hún verið á mörkum þess að draga framboðið til baka. Innlent 2. júní 2024 11:39
„Sigur MBA-gráðunnar, leiðtogafræða og mannauðsstjórnunar“ Þeir eru hálf dasaðir áhugamenn um þjóðmálin sem tjá sig á Facebook í dag en hvergi nærri af baki dottnir. Þar er sigur Höllu Tómasdóttur skoðaður frá ýmsum vinklum. Þar keppast menn við að benda á að ekkert sé að taktískum sigri. Innlent 2. júní 2024 11:26
Björn lagði línuna og kjósendur svöruðu kallinu Varla er um það deilt að sigur Höllu Tómasdóttur er ekki síst taktískur. Þegar fyrir lá að baráttan stóð á milli hennar og Katrínar Jakobsdóttur sveiflaðist fylgið til hennar sem aldrei fyrr. Innlent 2. júní 2024 10:25
Veit ekki hvað tekur við en byrjar á kaffibolla Katrín Jakobsdóttir hefur óskað Höllu Tómasdóttur til hamingju með kjör til embættis forseta Íslands. „Nú taka við ný ævintýri hjá mér sem ég veit ekkert hver verða. En fyrst ætla ég að fá mér kaffi og njóta þess að vera hér og nú.“ Innlent 2. júní 2024 10:25
Eiríkur Ingi nýr handhafi mets sem enginn vill eiga Eiríkur Ingi Jóhannsson er sá forsetaframbjóðandi sem fæst atkvæði hefur hlotið frá stofnun lýðveldisins. Hann hlaut aðeins 101 atkvæði. Innlent 2. júní 2024 09:44
Klæddu sig upp sem frambjóðendur Í einu metnaðarfyllsta kosningarpartýi kvöldsins klæddu allir gestir sig sem forsetaframbjóðendur. Berghildur Erla leit við og hitti „frambjóðendurna“. Lífið 2. júní 2024 02:34
Batt á sig klút til heiðurs Höllu Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir hélt ekki kosningavöku líkt og venjan er hjá þeim sem eru í forsetaframbjóðendum. Þess í stað fór hún heim til vinar síns og hafði það rólegt. Slökkt var á sjónvarpinu og rauluðu gestir Kumbaya, My Lord. Innlent 2. júní 2024 01:55
Fólk hafi kosið taktískt gegn Katrínu Friðjón Friðjónsson borgarfulltrúi og starfsmaður í kosningateymi Katrínar Jakobsdóttir segist telja alveg ljóst að ákveðinn hópur hafi kosið taktískt í forsetakosningunum í ár. Þá telur hann mögulegt að stór hópur kjósenda hafi ekki hugnast átökin í kringum Katrínu sem hafi þó alltaf keyrt sína baráttu á jákvæðni. Innlent 2. júní 2024 01:49
Augljóst að kjósendur vilja konu sem næsta forseta „Mín viðbrögð eru mjög góð. Mér finnst skilaboðin skýr. Kjósendur vilja augljóslega fá konu sem næsta forseta og ég sætti mig auðmjúkur við það.“ Innlent 2. júní 2024 01:33
Myndaveisla: Rosaleg stemming í kosningavökunum Það er mikil spenna fyrir úrslitum forsetakosninganna og spennan er ef til vill mest í kosningavökum frambjóðendanna. Lífið 2. júní 2024 01:32
Segir allt stefna í að Halla Tómasdóttir verði forseti Katrín Jakobsdóttir segist ekki tilbúin að lýsa yfir ósigri í forsetakosningunum, hins vegar bendi allt til þess að Halla Tómasdóttir verði næsti forseti lýðveldisins. Hún segir að mikið þyrfti að gerast svo þau úrslit breytist. Innlent 2. júní 2024 01:08
Fyrstu tölur úr Suðvesturkjördæmi: Minnsti munurinn á Höllu og Katrínu hingað til Halla Tómasdóttir leiðir í Suðvesturkjördæmi eftir að fyrstu atkvæðin hafa verið talin með 27,66 prósent atkvæðum. Katrín Jakobsdóttir er þar rétt á eftir með 25,93 prósent atkvæða og er um að ræða minnsta muninn þeirra á milli á landsvísu. Innlent 2. júní 2024 01:08
Katrín ávarpaði stuðningsmenn: „Ég sé ekki eftir þessu“ Katrín Jakobsdóttir þakkaði stuðningsmönnum sínum fyrir kosningabaráttuna og sagðist ekki sjá eftir neinu. Hún væri maður að meiri eftir fjölda fundi með fólki út um allt land. Innlent 2. júní 2024 01:01
Telur fylgið hafa farið á dreifingu vegna fjölda frambjóðenda „Ég er nú bara komin í mína allra fyrstu kosningabaráttu og kom kannski inn svolítið ný á sviðið. Þannig að ég er ótrúlega þakklát fyrir þessar góðu viðtökur.“ Innlent 2. júní 2024 00:51
Fyrstu tölur úr Norðvesturkjördæmi: Halla Tómasdóttir efst Halla Tómasdóttir er með flest atkvæði í fyrstu tölum atkvæða sem talin hafa verið í Norðvesturkjördæmi. Hún mælist með 33,07 prósent fylgi en á eftir henni kemur Katrín Jakobsdóttir með 26,13 prósent fylgi. Halla Hrund Logadóttir er þriðja með 19,62 prósent fylgi. Innlent 2. júní 2024 00:50
Fyrstu tölur úr Reykjavík norður: Halla Tómasdóttir er efst Halla Tómasdóttir er með flest atkvæði í Reykjavík norður með 31,9 prósent en á eftir henni kemur Katrín Jakobsdóttir með 27,9 prósent. Þetta var tilkynnt rétt í þessu. Innlent 2. júní 2024 00:44
Katrín sér ekki eftir framboði sínu Katrín Jakobsdóttir segir niðurstöður í fyrstu tölum ekki svo fjarri því sem bent hafi til í síðustu skoðanakönnunum, þó fylgi Höllu Tómasdóttur komi á óvart. Innlent 2. júní 2024 00:25
Fyrstu tölur úr Reykjavík suður: Halla Tómasdóttir með flest atkvæði Halla Tómasdóttir er með flest atkvæði eftir fyrstu tölur úr Reykjavík Suður. Hún er með 32,5 prósent fylgi en á eftir henni kemur Katrín Jakobsdóttir með 28,9 prósent. Halla Hrund Logadóttir er með 12,95 prósenta fylgi. Innlent 2. júní 2024 00:22
Telur taktíska kosningu hafa unnið gegn sér Forsetaframbjóðandinn Eiríkur Ingi Jóhannsson segir ljóst að kjósendur hafi margir ákveðið að kjósa taktískt í forsetakosningunum í dag og að það hafi mögulega unnið gegn sér. Þegar fyrstu tölur voru lesnar í Suður- og Norðausturkjördæmi var uppskera Eiríks Inga heldur rýr. Innlent 2. júní 2024 00:01
Segir klútabyltinguna vera hafna „Ég er ótrúlega þakklát ekki síst í ljósi þess að þetta var brekka hjá okkur,“ segir Halla Tómasdóttir og vísar þar til upphafs kosningabaráttunnar þegar fylgi hennar mæltist í lágmarki. Innlent 2. júní 2024 00:01
Tvöföld veisla hjá Gnarr feðgum Jón Gnarr yngri betur þekktur sem Nonni Gnarr útskrifast úr menntaskóla í dag og útskriftarveislan fór fram í sama salnum í Elliðarárdal og kosningavaka Jóns Gnarr eldri fer nú fram. Bjarki Sigurðsson fréttamaður tók Nonna Gnarr tali sem var alveg á því að dagurinn væri um hann. Lífið 1. júní 2024 23:25
Ofboðslega stolt af dóttur sinni Eygló Gunnþórsdóttir, móðir Ásdísar Ránar Gunnarsdóttur, segist mjög stolt af dóttur sinni og segir hana hafa staðið sig mjög vel í kosningabaráttunni. Lífið 1. júní 2024 23:07
Fyrstu tölur úr Suðurkjördæmi: Halla Tómasdóttir með flest atkvæði Halla Tómasdóttir er með flest atkvæði samkvæmt fyrstu tölum úr Suðurkjördæmi. Hún er með 37 prósenta fylgi. Á eftir henni kemur Katrín Jakobsdóttir með rúm 19 prósent og Halla Hrund Logadóttir með 16 prósent. Innlent 1. júní 2024 23:05
Fyrstu tölur úr Norðausturkjördæmi: Halla Tómasdóttir efst Halla Tómasdóttir er með flest atkvæði í fyrstu tölum úr Norðausturkjördæmi. Halla mælist með 35,42 prósent fylgi. Næst á eftir kemur Katrín Jakobsdóttir með 27 prósent og Halla Hrund Logadóttir með 17 prósent. Talin hafa verið 3000 atkvæði. Auðir seðlar 12. Ógildir 4. Innlent 1. júní 2024 22:58
Bannaði Snorra að kjósa Arnar Þór Snorri Másson og Nadine Guðrún Yaghi eru stödd á kosningavöku óháðra á Nasa og bíða spennt eftir að fyrstu tölur berist. Lífið 1. júní 2024 22:40
„Nú er þessi sprettur á enda“ „Nú er þessi sprettur á enda. Ég horfi á markið og kjörstaðir að fara að loka. Við erum mætt hingað á Grand Hótel og það er mjög góð stemmning í mannskapnum.“ Lífið 1. júní 2024 22:22
Halla Hrund: „Þetta ferðalag mun binda okkur saman út ævina“ Halla Hrund Logadóttir ávarpaði stuðningsmenn sína í kosningapartýi sínu í Björtuloftum í Hörpu í kvöld og þakkaði þeim fyrir 55 daga ferðalag sem hún sagði að myndi binda þau saman út ævina. Halla hvatti stuðningsmennina til að fara bjartsýnir inn í kvöldið í aðdraganda fyrstu talna. Innlent 1. júní 2024 22:07
Bein útsending: Kosningasjónvarp Stöðvar 2 Kosningasjónvarp Stöðvar 2 í opinni dagskrá og beinni útsendingu er staðurinn til að fylgjast með nýjustu tölum, heimsækja skemmtilegustu partýin og veita áhorfendum allar nauðsynlegar upplýsingar á spennandi kosningakvöldi. Innlent 1. júní 2024 21:04