Körfubolti

Hitti nýjustu stjörnu ís­lenska körfuboltans í skólanum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stefán Árni Pálsson ræddi við Atla Frey Haraldsson Katrínarson á göngum Menntaskólans í Kópavogi þar sem hann stundar nám ásamt því að slá í gegn í Bónusdeildinni.
Stefán Árni Pálsson ræddi við Atla Frey Haraldsson Katrínarson á göngum Menntaskólans í Kópavogi þar sem hann stundar nám ásamt því að slá í gegn í Bónusdeildinni. Sýn Sport

Hinn sextán ára gamli Atli Freyr Haraldsson Katrínarson hefur slegið í gegn í Bónus deild karla í körfubolta í byrjun móts og hann var í viðtali í nýjasta Körfuboltakvöldi.

Stefán Árni Pálsson, umsjónarmaður Bónus Körfuboltakvölds, heimsótti Atla í skólann en hann stundar nám við Menntaskólann í Kópavogi.

„Það var skemmtilegt að koma í Bónusdeildina og ég hef fengið alveg svakalega mikla athygli frá öllum. Þetta er geggjað,“ sagði Atli Freyr. Enginn táningur hefur skilað jafnmikii í fyrstu þremur leikjum sínum í sögu úrvalsdeildar karla. 

Meðaltölin hans í fyrstu þremur leikjunum eru 15,7 stig og 11,7 fráköst en hann er að skila 25,3 framlagsstigum í leik sem er það langhæsta af öllum leikmönnum Vals og það þriðja mesta af íslenskum leikmönnum deildarinnar til þessa.

Sýna honum skilning

Stefán ræddi við Atla á göngum skólans en strákurinn hélt upp á sextán ára afmæli sitt í apríl síðastliðnum.

Klippa: Stefán Árni hitti Atla Frey í MK

Atli er á afreksbraut í MK og kennarar sýna íþróttaiðkun hans skilning. Þennan sama dag var æfing hjá Valsliðinu í hádeginu og hann fékk fyrir vikið leyfi í tveimur kennslustundum.

„Ég fæ leyfi til að sleppa þessum tímum en vinn það upp í staðinn seinna,“ sagði Atli.

Mömmu og pabba fannst hann vera svo góð fyrirmynd

Atli er búinn að æfa körfubolta í sjö ár og byrjaði í körfu hjá Pálmari Ragnarssyni.

„Hann var fyrsti þjálfarinn minn og ástæðan fyrir því að ég byrjaði í körfubolta. Mömmu og pabba fannst hann vera svo góð fyrirmynd og hugsuðu: Setjum hann bara í körfuna. Hann er geggjaður hann Pálmar,“ sagði Atli.

Var ekki að búast við þessu

Atli er að stíga sín fyrstu skref í Bónusdeildinni í vetur en bjóst hann við að standa sig svona vel?

„Nei, ég var ekki að búast við því að ég myndi skora tíu stig yfir höfuð í einhverjum af þessum leikjum. Ég var bara glaður að fá einhverjar mínútur og ég var alls ekki að búast við þessu,“ sagði Atli.

Honum fannst hann ekki tilbúinn að spila með meistaraflokki síðasta vetur en eftir flott sumar með sextán ára landsliðinu þá fann hann strax að hann væri tilbúinn að spila með „gömlu körlunum“, eins og hann sagði í léttum tón.

Ekki með egóið til að stefna á NBA

Atli hefur sett stefnuna á það að komast á skólastyrk í Bandaríkjunum og verða atvinnumaður í körfubolta í framhaldinu.

„Spila í Evrópu eða Bandaríkjunum og vera atvinnumaður í körfubolta. Það er markmiðið,“ sagði Atli en er draumurinn NBA?

„Já, auðvitað, en ég er ekki með það egó. Ég sé mig kannski í NBA en ég veit ekki með það,“ sagði Atli hreinskilinn.

Atli ætlar fyrst að hjálpa Val að vinna Íslandsmeistaratitilinn.

„Það er langtímamarkmiðið en svo langar mig bara að vinna alla leiki, gera mitt besta og gera það besta fyrir liðið,“ sagði Atli en það má sjá viðtalið við hann hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×