Íslenski boltinn

„Þetta er bara ó­lýsan­legt”

Theódóra Guðný Vilhjálmsdóttir skrifar
Elísa Viðarsdóttir fagnar Íslandsmeistaratitlinum með liðsfélögum sínum í kvöld.
Elísa Viðarsdóttir fagnar Íslandsmeistaratitlinum með liðsfélögum sínum í kvöld. Vísir/Guðmundur

Elísa Viðarsdóttir lauk knattspyrnuferlinum sem Íslandsmeistari eftir sex marka sigur Breiðabliks gegn tveimur á FH í lokaumferð Bestu deildar kvenna. Hún lék sitt fyrsta og eina tímabil með Blikum í sumar og var tilfinningarík eftir lokaleikinn.

„Mér líður alveg ótrúlega vel. Ég er auðvitað búin að fara í gegnum allar tilfinningarnar,“ sagði Elísa eftir leik.

Ákvörðunin um að leggja skóna á hilluna hafði ekki verið auðveld en hún var sannfærð um að tíminn væri réttur. Félagaskiptin í Breiðablik höfðu jafnframt gefið henni tækifæri til að ljúka ferlinum eins og hún sjálf vildi.

„Líka þetta skref fyrir mig að koma hingað og öðlast svolítið nýtt líf og fá að enda þetta algjörlega á mínum forsendum með skjöldinn í höndunum. Þetta er bara ólýsanlegt.“

Elísa kom til Breiðabliks frá Val fyrir tímabilið. Hún sagði það hafa verið erfiðustu ákvörðun ferilsins að breyta til og um tíma hefði verið óvíst hvort hún héldi áfram í fótbolta eftir að viðræður við Val gengu ekki upp.

„Þannig að svo kemur einhvern veginn bara Breiðablik upp í hendurnar og á hárréttum tímapunkti held ég og ég fann það alltaf að ég var ekkert alveg tilbúin að kveðja.“

Þrátt fyrir að hafa ákveðið að hætta var ánægjan af fótboltanum enn til staðar. Elísa sagði engu skipta á hvaða árstíma æfingarnar væru, henni þætti alltaf jafn gaman að mæta.

„Mér finnst ógeðslega gaman að ganga inn í allar baráttur með þessum stelpum og fá að leggja mitt á vogarskálarnar og er þetta það sem ég mun sakna.“

Næstu skref voru óráðin en hún var með nokkrar hugmyndir. Vinkonur hennar höfðu meðal annars snúið sér að golfi og CrossFit eftir að fótboltaferlinum lauk.

„Ég mun elta þær í einhverju skemmtilegu.“

Spurð hvort hún myndi feta í fótspor systur sinnar, Margrétar Láru Viðarsdóttur, og taka þátt í Ironman útilokaði Elísa ekkert.

„Það hefði verið erfitt að toppa það en það er aldrei að vita hvað maður tekur sér fyrir hendur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×