Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Tómas Arnar Þorláksson og Smári Jökull Jónsson skrifa 13. október 2026 11:33 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra. vísir/einar „Þetta voru mistök, þau hafa verið leiðrétt núna þannig að kynjahlutföllin eru eins og við viljum hafa þau. Ég legg bara áherslu á það að þegar svona mistök verða þá er sjálfsagt mál að leiðrétta þau.“
Þetta sagði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra í samtali við fréttastofu að loknum ríkisstjórnarfundi í dag. Greint var frá því í gær að Þorbjörg Sigríður hefði skipað Jarþrúði Ásmundsdóttur sem formann Jafnréttissjóðs. Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins kom fram að í stjórn sjóðsins sætu auk Jarþrúðar Rannveig S. Sigurvinsdóttir, dósent við sálfræðideild Háskólans í Reykjavík og Martha Lilja Olsen, framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu. Varamenn væru þeir Bjarni Þór Pétursson, verkefnastjóri hjá Vinnumálastofnun, Stefan C. Hardonk, prófessor við félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild Háskóla Íslands og Tryggvi Hallgrímsson, sérfræðingur hjá Jafnréttisstofu. Sem sagt þrjár konur í stjórn og þrír karlar til vara. Tryggvi tekur nú sæti í stjórn Jafnréttisstofu í stað Mörthu Lilju sem verður varamaður. Þrjár sjálfstæðar tilnefningar Þorbjörg segir skipta máli að gæta að kynjaskiptingu hjá Jafnréttissjóði sem hafi óvart verið orðinn skipaður þremur konum. Það hafi verið mistök og þau verði eðlilega leiðrétt. Endurspegla þurfi sjónarmið karla sem kvenna. „Þetta mál stendur þannig að það hefur verið lagfært. Það skiptir auðvitað máli í öllu samhengi að við gætum að kynjahlutföllum og það virkar auðvitað í báðar áttir. Staðan er þannig að það eru ólíkir aðilar sem skipa í þessa stjórn. Ég valdi formanninn og tilnefningar fyrir hina tvo komu annars staðar frá,“ segir Þorbjörg Sigríður. Þannig hafi allir tilnefndir stjórnarmenn verið konur sem verði leiðrétt. Jarþrúður gekk til liðs við Viðreisn árið 2017 en gegndi áður ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn.Vísir/Einar Jarþrúður er fyrrverandi varaþingmaður Viðreisnar og verið virk í starfi flokksins í tæpan áratug. Skipanir í ráð og nefndir samkvæmt pólitískum flokkslínum hafa verið gagnrýndar í gegnum tíðina. Hvað segir Þorbjörg Sigríður um það? „Ég valdi auðvitað þann formann til starfa sem hæfastur var til þess. Þarna er manneskja sem hefur mikla reynslu og góða reynslu og ég veit að mun skila mun góðu starfi.“
Jafnréttismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Sjá meira