Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Lovísa Arnardóttir skrifar 8. október 2026 12:02 Bryndís Haraldsdóttir vonar eftir góðu samstarfi á þingi. Vísir/Anton Brink Bryndís Haraldsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, lagt fram frumvarp um breytingu á fæðingar- og foreldraorlofi sem á að koma í veg fyrir að greiðslur til foreldra sem eignast börn með skömmu millibili séu ekki lækkaðar vegna þess.
Bryndís segist vilja bregðast við þessu og var til viðtals á Bítinu á Bylgjunni í morgun. Í frumvarpinu er lagt til að lögfest verði sérstök regla sem gildir um þau tilvik þegar skammt er á milli fæðinga barna og tryggir foreldrum að greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna fyrri tímabila hafi ekki áhrif á greiðslur vegna barna sem síðar koma, það er þegar skammt er á milli fæðinga. Í greinargerð kemur fram að frumvarpið hafi ekki verið kostnaðarmetið en talið sé að það leiði til kostnaðarauka fyrir ríkið en að ekki verði um háar fjárhæðir að ræða að þeirra mati. Þetta sé ekki stór hópur í dag en þó er þess getið að breytingin gæti leitt til þess að fleiri eignist börn með styttra millibili en áður. „Sá kostnaður sem af hlýst ætti þó að vera minni en ávinningurinn af því að styrkja stöðu barnafólks,“ segir í greinargerðinni. Sérstakar reglur á öðrum Norðurlöndum Þar er farið yfir stöðuna í nágrannaríkjum og vísað til þess að í Finnlandi sé miðað við fyrri tekjustofn ef fólk eignast annað barn áður en það eldra verður þriggja ára. Í Svíþjóð og Noregi séu einnig sérstakar reglur sem miði að því að vernda foreldra fyrir lækkun greiðslna. Foreldrar hafa tjáð sig um málið nýlega. Karítas Ólafsdóttir móðir skrifaði til dæmis aðsenda grein á Vísi þann 1. október þar sem hún sagði ríkið vilja stýra því hversu langt sé á milli barnanna. „Sjálf eignaðist ég barn í júní 2025 og á von á öðru í febrúar 2027. Um tuttugu mánuðir verða á milli barnanna, og þar sem ég dreifði orlofinu á tólf mánuði næ ég aðeins um átta mánuðum á vinnumarkaði fyrir fæðinguna. Fæðingarorlofssjóður reiknar 80% af meðallaunum á tólf mánaða tímabili sem lýkur sex mánuðum fyrir fæðingu. Tekjur mínar á því tímabili eru nær eingöngu greiðslur úr fyrra orlofi. Þar sem ég dreifði því á tólf mánuði námu þær aðeins 62% af útreiknuðum rétti, en sjóðurinn horfir fram hjá því og reiknar 80% af þeim,“ segir í grein hennar. Bryndís segir ánægjulegt að sjá ungt fólk tjá sig um reglur fæðingarorlofs. „Það er fólk búið að vera að tjá sig mjög mikið um fæðingarorlof og ég er svo glöð og ánægð að sjá allt þetta unga fólk skrifa greinar og birta hjá ykkur á Vísi og annars staðar þar sem það er að kvarta yfir því að því finnist einhvern veginn eins og reglur Fæðingarorlofssjóðs þurfi að stýra því hvenær það eignast börn.“ Fólk eigi að geta hagað sínum barneignum eins og það vill Bryndís segir að hennar mati eigi fólk að geta gert það þegar því hentar og það vill og að fæðingarorlofsgreiðslur ættu ekki að vera skertar þó svo að stutt sé á milli, eins og er í dag. „Þú færð 80 prósent af laununum þínum síðustu 12 mánuði, samt reyndar 6 mánuði aftur á bak og þegar fólk þér eignast börn með tiltölulega stuttu millibili þá getur það verið að sko þú sért að fá 80 prósent af 80 prósentum.“ Þannig miði greiðslurnar við greiðslur sem þú fékkst síðustu tólf mánuði og sé þar inni annað fæðingarorlof séu greiðslurnar skertar. „Það er að segja að það sé verið að horfa til greiðslna sem þú fékkst úr Fæðingarorlofssjóðnum þegar þú varst í fæðingarorlofinu með fyrra barn.“ Bryndís segir þetta heftandi. Í frumvarpi hennar er einnig miðað við það að auka greiðslur til þeirra sem koma beint úr námi. Hún segir búið að bæta rétt foreldra mikið síðustu ár en nú verði að bregðast við þessu. „Síðan ég tók sæti á þingi höfum við bæði lengt hann, erum með 12 mánuðina. Við höfum hætt við þakið svokallaða. Það er búið að tryggja fjölburaforeldrum aukin réttindi og mæðrum sem leggjast inn á spítala á meðgöngu þannig að nú er komið að þessu. Það er algjörlega nauðsynlegt að bregðast við og bæta úr þessu.“ Hvetur þingheim til að sameinast Bryndís er bjartsýn á að ná þessu í gegn. Það sé svipuð tillaga á þingi frá fulltrúum í stjórnarmeirihluta um að ráðherra verði gert að breyta þessu. „Og ég vil bara hvetja þingheim til að sameinast um þetta. Og vegna þess að við erum líka með kjarasamninga opna og það eru nú alls konar mál svona sem þingið kemur að þá er þetta eitt af því. Þetta væri til að bæta hag ungs barnafólks.“
Fæðingarorlof Börn og uppeldi Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Bítið Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Sjá meira