„Þýðir ekkert að væla yfir stöðunni“ Aron Guðmundsson skrifar 29. september 2026 18:03 Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari, ræddi við Stefán Árna Pálsson og Kjartan Henry Finnbogason nú rétt áðan í Lúxemborg fyrir leik í Þjóðadeildinni gegn heimamönnum. Vísir Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, væntir mikils af Gylfa Þór Sigurðssyni sem kemur inn í byrjunarliðið gegn Lúxemborg í kvöld. Ísland megi illa við að misstíga sig í þeirri stöðu sem liðið er í, stöðu sem þýði ekkert að væla yfir.
Arnar gerir tvær breytingar á byrjunarliði Íslands milli leikja og hann mætti í viðtal til Stefáns Árna Pálssonar og Kjartans Henrys Finnbogasonar í Lúxemborg núna rétt áðan. Gylfi Þór og Logi Tómasson koma inn í byrjunarlið Íslands og út fara þeir Jón Dagur Þorsteinsson og Albert Guðmundsson sem meiddist í síðasta leik og verður ekki meira með í þessu verkefni. „Augljóslega þurfti að breyta einhverju vegna Alberts. Hann er náttúrulega meiddur og frá. Hugmyndin er að reyna að finna þetta jafnvægi sem mér finnst svona svolítið vanta aðeins,“ sagði Arnar frá hliðarlínunni í Lúxemborg áðan. „Við erum kannski að velja mjög góða fótboltamenn en það er ekki endilega þar með sagt að það verði úr því besta liðið. Ég vænti mikils af því að Gylfi komi inn með sína reynslu. Maður heyrði það af hliðarlínunni á Laugardalsvellinum að honum var ekki sama. Hann er svolítið að stýra okkar strákum og stjórna. Við færum líka aðeins til og fáum þarna kemistríu á milli Mikaels og Gulla þarna hægra megin sem að gaf okkur vel svona fyrstu 60 mínúturnar á móti Argentínu. Bara eiga aðeins fleiri vopn, hvíla einhverja stráka og hrófla aðeins til og ég ætlast bara til að þeir komi með sinn persónuleika í þessar leikstöður sem þeir fá í kvöld.“ Klippa: Arnar fyrir leik gegn Lúxemborg Mega illa við að misstíga sig Ísland byrjaði keppnina illa á heimavelli á dögunum gegn Eistlandi í leik sem endaði með 1-1 jafntefli. Yfirlýst markmið liðsins var að enda í toppsæti riðilsins og koma okkur beint aftur upp í B-deild Þjóðadeildarinnar. Ef það fer illa í kvöld og við töpum leiknum, er þá markmiðið og möguleiki okkar á að vinna riðilinn úr sögunni? „Við getum alveg talað íslensku varðandi það að möguleikarnir yrðu náttúrulega klárlega miklu, miklu minni. Ég hef sagt, síðast á blaðamannafundinum, að þetta er náttúrulega deildarkeppni eins og þú veist en þetta er stutt deildarkeppni, bara sex leikir.“ „Við megum illa við að misstíga okkur en það er bara góð stemning í hópnum og æfingin í gær var fín. Þetta eru atvinnumenn fram í fingurgóma. Þú veist það jafn vel og ég Kjartan að það eru hæðir og lægðir í þessum bransa hjá okkur. Það þýðir ekkert að væla yfir þessari stöðu, við þurfum bara að taka þetta á kassann. Þetta er bara verkefni, ekki vandamál, og gera það gott úr þessu.“ Leikur Íslands og Lúxemborgar í Þjóðadeild UEFA hefst klukkan korter í sjö í kvöld og er leikurinn sýndur í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Sýn Sport. Upphitun fyrir leikinn hefst korter yfir sex.
Fótbolti Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Tengdar fréttir Þakklátur Gylfi Þór byrjar í kvöld: „Núna er þetta öðruvísi“ Gylfi Þór Sigurðsson segir spennuna meiri en áður gagnvart því að vera í byrjunarliði íslenska landsliðsins. Hann er þakklátur fyrir þann tíma sem hann er að upplifa núna í landsliðstreyjunni. 29. september 2026 17:50 Mest lesið City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Enski boltinn Björk segir öllum þjálfurum upp Sport Uppgjörið: Ísland - Sviss 5-1| Draumurinn um EM lifir Fótbolti Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Handbolti Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Handbolti Lúxemborg - Ísland | Hvernig svara menn fyrir sig? Fótbolti Átti aldrei að geta hlaupið aftur en vann Bakgarðinn Sport Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Íslenski boltinn Leikdagur í Lúx: Rodrigues er fífl Fótbolti Arnar fái silkihanskameðferð: „Um hvað ertu að tala?“ Fótbolti Fleiri fréttir Stressaður Arnar verði að vinna: „Er þetta of flókið?“ Tékkland - England | Hvað gerir Kane í Prag? Uppgjörið: Ísland - Sviss 5-1| Draumurinn um EM lifir „Þýðir ekkert að væla yfir stöðunni“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Þakklátur Gylfi Þór byrjar í kvöld: „Núna er þetta öðruvísi“ Gylfi Þór kemur inn í byrjunarlið Íslands Lúxemborg - Ísland | Hvernig svara menn fyrir sig? Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane 50 Íslendingar meðal 8.500 áhorfenda Arnar fái silkihanskameðferð: „Um hvað ertu að tala?“ Leikdagur í Lúx: Rodrigues er fífl City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Ætlar að dreifa fé í aðdraganda kosninga Líklegra að Ísland verði í næstneðsta flokki Fluttur á sjúkrahús með alvarlega áverka eftir slys í mötuneyti Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Heimir gaf frí Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Kristall fékk tveggja leikja bann Ítalir völtuðu yfir Tyrki í Tyrklandi Olise reyndist hetja Frakka í Belgíu Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ „Eins og það væri verið að loka mig inni á heimavist“ Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins „Það hefur enginn áhuga á að hlusta á það“ Sjáðu fundinn: Arnar og Hákon sátu fyrir svörum í Lúxemborg Sjá meira
Þakklátur Gylfi Þór byrjar í kvöld: „Núna er þetta öðruvísi“ Gylfi Þór Sigurðsson segir spennuna meiri en áður gagnvart því að vera í byrjunarliði íslenska landsliðsins. Hann er þakklátur fyrir þann tíma sem hann er að upplifa núna í landsliðstreyjunni. 29. september 2026 17:50