Björn Leví telur einsýnt að Guðmundur Ingi hafi verið beittur ofbeldi Jakob Bjarnar skrifar 24. september 2026 13:38 Björn Leví segir engum blöðum um það að fletta að Guðmundur Ingi hafi verið beittur ofbeldi af hálfu Flokks fólksins. vísir/sigurjón/bjarni Björn Leví Gunnarsson fyrrverandi þingmaður Pírata telur engan vafa á leika að Guðmundur Ingi Kristinsson hafi verið beittur ofbeldi í aðdraganda þess að hann sagði sig frá menntamálaráðuneytinu.
Vísir ræddi við þingmanninn Guðmund Inga Kristinsson í dag í kjölfar þess að hann birti skilaboð frá Guðbjörgu Ingu Magnúsdóttur, eiginkonu Ragnars Þórs Ingólfssonar félags- og húsnæðismálaráðherra þess efnis að ef hann segði ekki af sér myndi það kosta stríð. Guðbjörg var á þeim tíma aðstoðarkona Guðmundar Inga sem telur einsýnt að hann hafi verið stunginn í bakið. Það rímar hins vegar ekki við upplifun Ingu Sæland formanns Flokks fólksins sem mætti í sjónvarpsfréttir Ríkissjónvarpsins og brást við einkaviðtali fréttastofunnar við Guðmund Inga. Guðmundur Ingi hafði þá ekki látið fjölmiðla ná í sig um hríð en sagði sig frá flokknum skömmu eftir að málið kom upp. Björn Leví veltir þessu máli fyrir sér, í ljósi þingreynslu sinnar, en hann sat um árabil á þingi fyrir Pírata. Hann segir þingið gegnsýrt ofbeldi og augljóst mál sé að um ofbeldi gegn Guðmundi Inga sé að ræða. Þetta er samkvæmt öllum skilgreiningum orðabókar. „Þetta er ofbeldi. Hættu eða stríð. Hótanir eru ofbeldi. Þeim sem finnst hótanir ekki vera ofbeldi verða bara að rífast við orðabókina um það. Þetta eru ekki bara "mismunandi upplifanir" eins og ráðherra sagði í fréttum hérna um daginn. Þetta er ofbeldi. Hversu kurteisislega sem þetta er meint, þá er þetta ofbeldi.” Björn Leví segist hafa starfað með Guðmundi Inga og hann sé einlægur í sinni vinnu og þarna er hann beittur ofbeldi. „Mig langar svo mikið að fólk skilji hvernig starfið fer þarna fram á þingi,“ segir Björn Ingi sem segir hótanir af ýmsu tagi daglegt brauð á þinginu. „Ég hef séð ljúfustu manneskju þingsins reka fingurinn næstum í nefið á ráðherra frammi á göngum með tilheyrandi ógnandi látbragði. Ég hef heyrt þingmann segja "ég er í þingflokki með öryrkjum" eins og ekkert sé óeðlilegra. Svo hef ég auðvitað heyrt það sem fór fram á Klausturbar, sem var alveg stiginu ofar en það sem gengur og gerist almennt í þingstörfunum. Nokkrum ofbeldisstigum ofar réttara sagt.“
Flokkur fólksins Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Afsögn Guðmundar Inga Kristinssonar Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira