Náttúrupassi kosti 4.500 krónur en bílastæðagjöld falli niður Birgir Olgeirsson skrifar 23. september 2026 13:08 Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra leggur til að árspassi að Geysi, Gullfossi og Þingvöllum kosti 4.500 krónur. Samhliða verði óheimilt að innheimta bílastæðagjöld á vegum ríkisins innan svæðanna sem passinn nær til. Vilhelm Lagt er til að árspassi að Geysi, Gullfossi og þjóðgarðinum á Þingvöllum kosti 4.500 krónur samkvæmt nýjum frumvarpsdrögum atvinnuvegaráðuneytisins. Lægra gjald, 3.000 krónur, verði í boði fyrir heimsóknir frá 1. nóvember til og með 31. maí árið eftir. Fólk með skattalega heimilisfesti á Íslandi fái passann ókeypis.
Þetta kemur fram í drögum að frumvarpi um náttúru- og innviðagjald sem voru birt í Samráðsgátt stjórnvalda í dag. Lagt er til að lögin taki gildi 1. maí 2027. Umsagnarfrestur rennur út 7. október. Passinn á að veita aðgang að öllum þremur stöðunum og fjöldi heimsókna verður ótakmarkaður meðan hann gildir. Bílastæðagjöld á Þingvöllum verði aflögð samkvæmt nýjum frumvarpsdrögum. Allir gestir 18 ára og eldri þurfi að afla aðgangsskírteinis, einnig þeir sem verði undanþegnir greiðslu.Vilhelm Ríkið og þeir sem reka svæðin fyrir þess hönd megi ekki innheimta bílastæðagjöld innan neins þeirra þriggja svæða sem passinn nái til, við Geysi, Gullfoss og á Þingvöllum. Bannið nái ekki til bílastæða einkaaðila utan þessara svæða. Vetrarpassinn gildi aðeins til maíloka Í frumvarpsdrögunum er gerður skýr greinarmunur á gildistíma passanna. Sá sem kostar 4.500 krónur gildi í tólf mánuði frá útgáfu. Þriggja þúsund króna passinn veiti aðeins aðgang á tímabilinu frá 1. nóvember til og með 31. maí næsta árs. Kaupi ferðamaður ódýrari passann í maí gildi hann því aðeins út þann mánuð. Sá sem hyggist heimsækja staðina bæði í lok maí og byrjun júní þurfi að greiða fullt gjald. Með lægra vetrargjaldinu vill ráðuneytið stuðla að jafnari dreifingu ferðamanna yfir árið. Árspassi að Geysi, Gullfossi og Þingvöllum eigi að kosta 4.500 krónur. Ódýrari passi, á 3.000 krónur, gildi aðeins frá 1. nóvember til og með 31. maí árið eftir.Vilhelm Gjaldskyldan nái til fólks 18 ára og eldra sem hefur ekki skattalega heimilisfesti á Íslandi. Ríkisfang ráði ekki greiðsluskyldunni. Erlendir ríkisborgarar með skattalega heimilisfesti hér á landi fái því passann ókeypis. Allir gestir 18 ára og eldri þurfi þó að afla rafræns aðgangsskírteinis, einnig þeir sem eru undanþegnir gjaldinu. Aðstoðarmenn sem fatlað fólk þarf á að halda til að heimsækja svæðin verði einnig undanþegnir greiðslu. Sekt fyrir að vera án passa Ferðamálastofa á að annast framkvæmdina og eftirlit með skírteinunum. Í drögunum er lagt til að sá sem hafi ekki gilt skírteini greiði 60.000 króna sekt. Honum verði þó boðið að greiða 20.000 krónur á staðnum og ljúka þannig málinu. Bann við almennum aðgangsgjöldum innan svæðanna nái meðal annars til bílastæða og salerna á vegum ríkisins eða þeirra sem annast reksturinn í umboði þess. Gullfoss er einn þriggja ferðamannastaða sem fyrirhugaður náttúrupassi á að ná til. Fólk með skattalega heimilisfesti á Íslandi fái passann ókeypis, óháð ríkisfangi.Vilhelm Áfram verði hægt að rukka sérstaklega fyrir tiltekna þjónustu, svo sem aðgang að Silfru og leiðsögn. Samkvæmt mati í greinargerðinni gæti gjaldið skilað ríkissjóði um 6,7 milljörðum króna á ári. Árið 2027 séu tekjurnar áætlaðar um fimm milljarðar, verði innheimta hafin 1. maí. Féð renni í ríkissjóð og verði ekki eyrnamerkt einstökum verkefnum. Rætt um 5.000 krónur hér og 4.500 í Færeyjum Vísir greindi frá því í mars að rætt hefði verið í atvinnuvegaráðuneytinu um 5.000 króna innviðagjald. Þá var hugmyndinni lýst þannig að bæði Íslendingar og erlendir ferðamenn myndu greiða. Almenna gjaldið í drögunum er 500 krónum lægra en sú fjárhæð og undanþága vegna skattalegrar heimilisfestar á Íslandi hefur verið útfærð. Fjárhæðin er jafnframt sú sama og nefnd var í íslenskum krónum þegar Vísir fjallaði um fyrirhugað náttúrugjald í Færeyjum 9. maí 2024. Þar var lagt til 225 danskra króna gjald, sem þá jafngilti um 4.500 íslenskum krónum. Færeyska tillagan sneri að gjaldi á erlenda ferðamenn 16 ára og eldri sem kæmu til eyjanna með flugi eða skipum. Íslensku drögin ná hins vegar til heimsókna á þessa þrjá tilteknu ferðamannastaði og aldursmörkin eru 18 ár.
Ferðaþjónusta Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Rekstur hins opinbera Samgöngumál Bílastæði Geysir Gullfoss Þingvellir Bláskógabyggð Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Sjá meira