Sport

Heiðruðu þjóðarmorðingja fyrir leik

Andri Broddason skrifar
Stuðningsmenn Rauðu Stjörnunnar heiðruðu Ratko Mladic sem lést í fangelsi þar sem hann var dæmdur fyrir þjóðarmorð og stríðsglæpi.
Stuðningsmenn Rauðu Stjörnunnar heiðruðu Ratko Mladic sem lést í fangelsi þar sem hann var dæmdur fyrir þjóðarmorð og stríðsglæpi. Srdjan Stevanovic/Getty Images

Stuðningsmenn Rauðu Stjörnunnar heiðruðu Ratko Mladic sem er einnig þekktur sem „Slátrari Bosníu“ (e. Butcher of Bosnia). Hann lést fyrir tveim vikum í fangelsi í Hollandi þar sem hann sat inni eftir að hafa verið dæmdur fyrir þjóðarmorð.

Rauða Stjarnan mætti Partizan Beograd í áttundu umferð serbnesku úrvalsdeildarinnar í gær. Fyrir leik var mínútuþögn til virðingar við Ratko Mladic sem lést fyrir tveim vikum en var borinn til grafar í dag.

Mladic var dæmdur árið 2017 fyrir þjóðarmorð, stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyninu og átti að sitja inni í lífstíðarfangelsi. Hann sat inni í Hollandi en lést nú fyrir tveimur vikum eftir að hafa fengið slag í fangelsinu 84 ára að aldri.

Glæpina framdi Mladic í borgarastyrjöldinni í Júgóslavíu sem stóð yfir á árunum 1991-2001. Styrjöldin endaði með því að Júgóslavía tvístraðist í sjálfstæð lönd.

Á meðan mínútuþögnin stóð yfir í leik Rauðu Stjörnunnar héldu stuðningsmenn liðsins á borða til heiðurs honum. Miðlar Rauðu Stjörnunnar deildu svo borðanum á sínum miðlum og virðast vera stoltir af verkum hans.

Mladic er hetja í Serbíu en hann er ekki mikils metinn annars staðar í Evrópu og sérstaklega ekki í nágrannalöndunum Bosníu og Króatíu. Evrópusambandið varaði serbnesk yfirvöld við því að heiðra Mladic en það virðist ekki stoppa Serbíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×