Lífið

Öskrandi ný­nemar tolleraðir og busaballið handan við hornið

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Það var ótrúleg stemning fyrir utan Menntaskólann í Reykjavík eftir hádegi í dag.
Það var ótrúleg stemning fyrir utan Menntaskólann í Reykjavík eftir hádegi í dag. Vísir/Anton Brink

Hinn árlegi haustboði, tollering nýnema fór fram í blíðskaparveðri fyrir framan Menntaskólann í Reykjavík í dag. Fréttamaður  og tökumaður skelltu sér á vettvang og stemningin var ógleymanleg.

Nýnemar voru teknir tali um leið og þeir voru tolleraðir. Það fór tvennum sögum af því hvort þeir hefðu verið smeykir eða ekki.

Þá var staðan tekin á elstu nemendunum og þeir spurðir hvernig þeim hefði litist á hópinn. Svörin voru nokkur afgerandi og gríðarleg spenna fyrir busaballi kvöldsins, eins og sjá má í innslaginu hér fyrir neðan.

Klippa: Nýnemar í MR tolleraðir





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.