Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda Boði Logason skrifar 16. október 2026 13:00 Berglind Alda Ástþórsdóttir, Saga Garðarsdóttir, ???, Jón Jónsson og Auðunn Blöndal. Sýn Saga Garðarsdóttir, leikkona og uppistandari, og Jón Jónsson, einn vinsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar, verða í hópi keppenda í nýrri þáttaröð af Taskmaster Ísland sem sýnd verður á Sýn+ í vor.
Greint var frá því í gær að Berglind Alda Ástþórsdóttir, leikkona og þáttastjórnandi, og Auðunn Blöndal, sjónvarpsmaður, leikari og veitingamaður, yrðu einnig í hópi keppenda, en hulunni verður svipt af fimmta og síðasta keppandanum hér á Vísi á morgun. Saga Garðarsdóttir er ein af eftirsóttustu leikkonum og uppistöndurum þjóðarinnar. Hún kom fyrst fram á sjónarsviðið í Steindanum okkar og hefur síðan leikið í sjónvarpsþáttum á borð við Aftureldingu, Steypustöðina og Stellu Blómkvist. Hún hlaut Edduverðlaun sem leikkona ársins í aðalhlutverki árið 2026 fyrir kvikmyndina Ástina sem eftir er. Jón Jónsson hefur um árabil verið einn vinsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar. Síðustu ár hefur hann gert allt vitlaust ásamt fóstbræðrum sínum í IceGuys, en hann hefur einnig getið sér gott orð sem sjónvarpsmaður og skemmtikraftur. Hann hefur meðal annars verið dómari í Ísland Got Talent og stýrt Fjörskyldunni, auk þess að hafa haslað sér völl sem uppistandari. Tökur á nýrri þáttaröð hófust fyrr í þessum mánuði, en Ari Eldjárn og Jóhann Alfreð Kristjánsson munu þar snúa aftur sem stjórnendur þáttanna. Hægt er að horfa á fyrstu þáttaröðina á streymisveitunni Sýn+ og í opinni dagskrá á Sýn. Í Taskmaster Ísland mæta fimm íslenskir skemmtikraftar og grínistar til leiks og keppa í óvæntum og oft furðulegum þrautum sem krefjast útsjónarsemi, hugmyndaauðgi og húmors. Allt er þetta gert í nafni heiðurs og hláturs en einnig til að finna út hver verður hinn eini sanni þrautakóngur þáttaraðarinnar.
Taskmaster Ísland Tengdar fréttir Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Berglind Alda Ástþórsdóttir, leikkona og þáttastjórnandi, og Auðunn Blöndal, sjónvarpsmaður, leikari og veitingamaður, verða í hópi keppenda í Taskmaster Ísland sem verður á dagskrá Sýnar+ næsta vor. 15. október 2026 13:01 Taskmaster Ísland snýr aftur Taskmaster Ísland mun snúa aftur á Sýn+ næsta vor en tökur á nýrri þáttaröð hófust fyrr í þessum mánuði. Ari Eldjárn og Jóhann Alfreð Kristjánsson munu snúa aftur sem stjórnendur þáttanna en keppendur verða kynntir til leiks hér á Vísi á næstu dögum. 14. október 2026 14:32 Mest lesið Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Lífið Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Lífið Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Bíó og sjónvarp Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Lífið Siggi Chaplin allur Lífið Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Lífið Fleiri fréttir Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Sjá meira
Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Berglind Alda Ástþórsdóttir, leikkona og þáttastjórnandi, og Auðunn Blöndal, sjónvarpsmaður, leikari og veitingamaður, verða í hópi keppenda í Taskmaster Ísland sem verður á dagskrá Sýnar+ næsta vor. 15. október 2026 13:01
Taskmaster Ísland snýr aftur Taskmaster Ísland mun snúa aftur á Sýn+ næsta vor en tökur á nýrri þáttaröð hófust fyrr í þessum mánuði. Ari Eldjárn og Jóhann Alfreð Kristjánsson munu snúa aftur sem stjórnendur þáttanna en keppendur verða kynntir til leiks hér á Vísi á næstu dögum. 14. október 2026 14:32