Lífið

Bassi mætti með granítharðar geir­vörtur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bassi var vel vopnaður.
Bassi var vel vopnaður.

Í Kviss á dögunum mætti Fylkir Fjölni í 16-liða úrslitum. Ágúst Bent og Ellý Ármanns voru fyrir hönd Árbæinga og þau Sonja Valdín og Bassi Maraj fyrir hönd Fjölnis.

Um var að ræða algjöran grannaslag en í upphafi þáttarins upphófst skemmtilegt spjall um geirvörtur Bassa. Björn Bragi sá þær vel í gegnum gulu treyjuna og sagði Bassi að það væri einfaldlega guðsgjöf að þær væru ávallt svona stinnar.

Hér að neðan má sjá óborganlegt spjall í upphafi þáttarins. Hægt er að sjá þáttinn í heild sinni á Sýn+ streymisveitunni.

Klippa: Bassi mætti með grjótharðar geirvörtur





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.