Lífið

Gylfi seldi sumar­bú­staðinn á 85 milljónir

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Gylfi Sigurðsson hefur selt sumarbústað sinn í Öndverðarnesi eftir að hafa keypt hann fyrir sextán árum.
Gylfi Sigurðsson hefur selt sumarbústað sinn í Öndverðarnesi eftir að hafa keypt hann fyrir sextán árum. Vísir/Vilhelm/Borg

Knattspyrnumaðurinn Gylfi Sigurðsson hefur selt 152 fermetra sumarbústað sinn að Stangarbraut 27 í Öndverðarnesi. Gylfi keypti bústaðinn árið 2010 og seldi hann í ágúst til Guðmundar Hjaltasonar á 85 milljónir, tæpum fimm milljónum undir ásettu verði.

Kaupsamningurinn var undirritaður 20. ágúst síðastliðinn og fékk kaupandinn eignina afhenta sama dag. Ásett verð var 89,9 milljónir króna en eignin seldist 5,5 prósentum undir því.

Um er að ræða 152,3 fermetra eign sem var byggð árið 2007, skiptist í 127,3 fermetra aðalhús og 25 fermetra gestahús og stendur á fimm þúsund fermetra leigulóð við Stangarbraut í Öndverðarnesi.

Sumarbústaðurinn séður úr lofti.Borg

Aðalhúsið skiptist í forstofu, stofu og eldhús í alrými, tvö svefnherbergi, þvottahús og baðherbergi. Gestahúsið er tilbúið til innréttinga með geymslu í bakhluta fyrir golfbíl. Lóðin er gróin með stóru bílaplani, í kringum húsið er timburlögð verönd með heitum potti og við húsið er afgirtur fótboltavöllur með gervigrasi.

Sumarbústaðurinn stendur innan lokaðs sumarhúsasvæðis og hafa eigendur sumarhúsa á svæðinu aðgang að átján holu golfvelli, golfskála sem hægt er að leigja og sundlaug. 

Samkvæmt kaupsamningnum fylgja öll húsgögn, golfbíll og kerra undir hann með í kaupunum og eru einungis persónulegir munir seljanda undanskildir því.

Sumarbústaðurinn er rúmgóður.Borg

Á pallinum er heitur pottur.Borg





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.