Víkingur Reykjavík

Víkingur Reykjavík

Fréttir af Knattspyrnufélaginu Víkingi í Reykjavík.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Sjáðu Blika fara á toppinn og glæsi­mark í Eyjum

Valur og Víkingur eru bæði aðeins einu stigi frá botni Bestu deildar kvenna í fótbolta, eftir töpin gegn ÍBV og Breiðabliki í gærkvöld. Blikakonur komust á toppinn, að minnsta kosti í sólarhring, og Eyjakonur eru aðeins fjórum stigum á eftir þeim. Mörkin úr leikjunum í gær má sjá á Vísi.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast?

Félagaskiptaglugginn á Íslandi verður opnaður á ný í dag, 16. júlí. Þá gefst liðum tækifæri til að styrkja sig fyrir seinni hluta tímabilsins. En hvað eru liðin í Bestu deild karla búin að gera og hvað þurfa þau að gera í glugganum? Vísir leitaði til Baldurs Sigurðssonar, sérfræðings Stúkunnar, um hvað liðin tólf þyrftu að gera áður en glugganum verður lokað 12. ágúst.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Ís­landi

Á Íslandi er veðrið ekki alltaf ákjósanlegt og þar sem fótboltatímabilið byrjar snemma er oft erfitt að halda grasvöllum í toppstandi. Þá hafa einhver félög notað gervigrasvelli sem höndlar betur íslenska frostið en þegar þeir vellir verða ónýtir geta leikmenn meiðst alvarlega.

Fótbolti
Fréttamynd

Sölvi reiður þrátt fyrir sigur

Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, var afar sáttur við spilamennsku liðsins þegar það lagði Gyori ETO að velli með einu marki gegn engu í fyrri leik liðanna í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta karla í kvöld. Sölvi Geir er hins vegar afar ósáttur við gervigrasið á heimavelli Víkings sem hann telur vera sökudólginn hnémeiðslum Elíasar Más Ómarssonar. 

Fótbolti
Fréttamynd

Elías Már sár­þjáður og fór af velli

Óttast er að Elías Már Ómarsson hafi orðið fyrir slæmum meiðslum í leik Víkings við Ungverjalandsmeistara Györ í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Hann hlaut aðhlynningu í um fimm mínútur áður en hann fór meiddur af velli.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Skoraði á HM en nær ekki að spila í Foss­vogi

Víkingar eiga fyrir höndum afar erfitt verkefni í kvöld í fyrri leik sínum við Ungverjalandsmeistara Györ í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Gestirnir verða þó án síns helsta markahróks sem skoraði mark á HM í Bandaríkjunum fyrir tveimur vikum.

Fótbolti
Fréttamynd

Upp­gjörið: Víkingur - KA 3-2 | Endurkomusigur hjá Víkingum sem þurfti að hafa vel fyrir því

Íslandsmeistarar og topplið Víkings tók á mót KA á Víkingsvelli í kvöld þegar 13. umferð Bestu deild karla hóf göngu sína.Víkingar komust yfir snemma leiks en KA snéri leiknum sér í hag og fóru inn í hálfleik með 1-2 forystu. Víkingar þurtu svo að hafa sig alla við að snúa leiknum aftur en það tókst að lokum og þeir fóru með öflugan 3-2 sigur af hólmi.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Stundum þarf bara að vinna að al­vöru fyrir þessu“

Víkingur vann frábæran endurkomu sigur á KA í kvöld þegar liðin mættust á Víkingsvelli í 13. umferð Bestu deild karla. Eftir að hafa verið undir 1-2 í hálfleik snéru þeir taflinu við í seinni hálfleik og unnu góðan 3-2 sigur. Aron Elís Þrándarson ræddi við Vísi eftir leik.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Við bara fundum ekki nægi­lega mikinn takt“

„Við ætluðum okkur alla leið og vinna bikarinn í ár, en það bara tókst ekki í dag og við vorum bara ekki nógu góðir. Ég vil óska þeim til hamingju með sigurinn í dag,“ sagði Helgi Guðjónsson, niðurlútur að leik loknum í Kópavoginum í dag. Breiðablik vann þá Víking 3-0 í undanúrslitum Mjólkurbikarsins.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Harka, hug­rekki og massífir“

„Tilfinningin er eins góð og hún getur verið. Þetta var bara ótrúlega góður sigur. Grunngildin voru í lagi, við mættum massífir og planið gekk upp á tíu,“ sagði Viktor Karl Einarsson, fyrirliði Breiðabliks, eftir 3-0 sigur á heimavelli í undanúrslitum Mjólkurbikarsins gegn Víkingum.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Mér fannst við ekki góðir“

Þrátt fyrir frábæran 4-1 sigur gegn Breiðabliki á Kópavogsvelli í kvöld voru Íslandsmeistarar Víkings ekki ýkja ánægðir með sinn leik og ætla sér að gera betur þegar liðin mætast aftur á sunnudaginn.

Íslenski boltinn