Aron hafi reitt Víkinga til reiði: „Ætla ekki að gefa upp hvað fór okkar á milli“ Aron Guðmundsson skrifar 22. september 2026 08:31 Rætt var um ríginn á milli KR og Víkings Reykjavíkur í Stúkunni í gær Myndir af Aroni og Sölva / Hulda Margrét Sérfræðingar Stúkunnar eru á því að Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, hafi með ummælum sínum um Víkinga í viðtölum bara kveikt neista hjá nýkrýndu Íslandsmeisturunum úr Fossvoginum.
Aron, sem er fyrirliði KR og hefur jafnframt verið einn besti leikmaður Bestu deildarinnar í ár, hafði farið mikinn í viðtölum á undanförnum vikum og fengið á sig skerf af gagnrýni fyrir sína framkomu. Á sama tíma hefur hann hins vegar látið verkin tala innan vallar og átt stóran þátt í því hversu mikill rígur hefur myndast milli KR og Víkings Reykjavíkur upp á síðkastið. „Þetta er rosa gaman fyrir okkur sem fjöllum um fótboltann og erum að fylgjast með þessu af því þetta gerir ekkert annað en að næra ríginn,“ sagði Baldur Sigurðsson, einn af sérfræðingum Stúkunnar á Sýn Sport í gær. Hann er hins vegar ekki viss um að það hafi verið rétta leiðin hjá Aroni að ganga svona hart fram í viðtölum. „Ég held að það væri betra, og ef ég væri þjálfari þá myndi ég ekki vilja að leikmaðurinn minn væri að koma með svona. Þetta gerir ekkert annað en að kveikja neista í Víkingum. Vertu bara auðmjúkur og sýndu þetta svo inn á vellinum. Mér finnst það vera leiðin.“ Klippa: Stúkan um ríginn og Aron Sig Albert Brynjar Ingason, annar af sérfræðingum Stúkunnar tók undir með Baldri og greindi frá samtali sem hann hafði átt við leikmann Víkings Reykjavíkur um akkúrat þetta. „Nikolaj Hansen birti náttúrulega mynd af Aroni á samfélagsmiðlum. Unbroken myndin af honum. Búið að stroka út „un“, það er þá bara „broken“ eftir. og hérna. Ég ætla nú ekkert að gefa upp hvað fór okkar á milli en ég átti spjall við Hansen um þetta og að lokum sagði hann: „Við elskum að fá þennan hita.“ Albert telur því að framganga Arons í viðtölum hafi hjálpað Sölva að mótivera Víkinga. „Bara gert þá reiða. Ég held að Sölvi hafi varla þurft að vera með einhverja ræðu fyrir þennan leik. Bara horfa á þessi viðtöl við Aron. Hann er bara að reyna allt sem hann getur til að svona vonandi komast í hausinn á þeim en það bara klikkaði.“
Stúkan Besta deild karla Íslenski boltinn KR Víkingur Reykjavík Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira