Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 17. október 2026 07:03 Arnór Björnsson og Kolbrún María Másdóttir áttu ógleymanlegan brúðkaupsdag. Sigríður Hermanns „Þetta var svo fallegt að við fáum enn raðgæsahúð að hugsa um þessa athöfn,“ segja hin nýgiftu leikarahjón Arnór Björnsson og Kolbrún María Másdóttir.
Hjónin kynntust í Verzló árið 2016, þegar Kolbrún var busi og Arnór á þriðja ári. Þau eru miklir stuðboltar sem eru umkringt fjörugu fólki en Arnór ræddi einmitt við Vísi í sumar um sögulega steggjun sem vinir hans skipulögðu fyrir hann. „Við byrjuðum saman í nóvember þannig að það verður bráðum heill áratugur sem við höfum verið saman,“ segja þau brosandi. Arnór og Kolbrún ræddu við blaðamann um ógleymanlegan og fallegan brúðkaupsdag og ýmsar óvæntar uppákomur sem honum fylgdu. Nýgift og glæsileg.Sigríður Hermanns Hvenær og hvernig trúlofuðust þið? Kolbrún: „Arnór bað mín 2024, á afmælisdeginum hans 8. október, en þá voru liðin átta ár síðan við fórum á fyrsta deit. Hann kraup á hnénu við Hvaleyrarvatn, mjög intimate og sætt, og var síðan búinn að plana heilt prógramm restina af kvöldinu. Við fengum okkur bragðaref í Ísbúð Vesturbæjar, því það er það sem við gerðum á fyrsta deitinu. Síðan röltum við yfir í Hellisgerði. Á sviðinu þar var Arnór búinn að koma fyrir nokkrum vinum okkar og þau léku stutt leikrit sem Arnór hafði skrifað, leikritið fjallaði um eftirminnilegustu stundir sambands okkar. Svo sungu þau lagið okkar, Everywhere með Fleetwood Mac, nema Arnór var búinn að fá afa sinn, Egil Þórðarson þýðanda, til að þýða það yfir á íslensku.“ Arnór: „Svo fengum við okkur hjónabandssælu og freyðivín á kaffihúsinu Pallett, en eigendurnir, Pálmar og David, leyfðu okkur að fara þangað eftir lokun. Dagskráin endaði svo á flugeldasýningu frá höfninni í Hafnarfirði. Eftir þessa dagskrá vorum við smá bara: „Hvað nú?“ Þannig að við gerðum það eina rétta í stöðunni og fórum heim að horfa á She’s the man. Fokking geðveik mynd.“ Arnór og Kolbrún eru búin að vera saman í bráðum áratug.Sigríður Hermanns Hvað voruð þið búin að vera lengi að skipuleggja stóra daginn? Kolbrún: „Þegar við trúlofuðum okkur ákváðum við að halda brúðkaupsveislu sumarið 2026, því við vildum ekki lenda í því að vera trúlofuð endalaust og vera í lausu lofti með hvenær brúðkaupið yrði. En síðan komst ég inn í draumanámið í London, leikarann í Mountview, og myndi ekki klára fyrr en í ágúst 2026. Þá hugsuðum við um að fresta, en kýldum samt á að halda það bara í september í staðinn. Það þýddi að Arnór tók þungann af mestu brúðkaupsplani á meðan ég var í mastersnámi í London!“ Arnór: „Kolbrún var duglegri en hún lætur á bera. Við sko plönuðum allt saman en ég endaði með að hringja flest símtölin og senda flesta tölvupósta því ég var ekki fastur í skólanum allan daginn.“ Kolbrún komst inn í draumanámið sitt í London og var Arnór því duglegri að taka símtöl og tölvupósta í aðdraganda brúðkaupsins.Aðsend Hvernig var brúðkaupsdagurinn? „Hann var gjörsamlega fullkominn. Við héldum athöfnina í Fríkirkjunni í Hafnarfirði og séra Davíð Þór gaf okkur saman. Við fengum snillingavini okkar í lítinn kór til að syngja nokkur uppáhalds lög okkar, og Egill Andrason var tónlistarstjóri. Bjarni Daníel söngvari og Rán Ragnarsdóttir leikkona sungu mashup af tveimur Bítlalögum, Here, There and Everywhere og Something. Vigdís Hafliðadóttir söngkona söng We’ve Only Just Begun með Carpenters með frumsömdum íslenskum texta. Viktoría Kjartansdóttir söng Pink+White með Frank Ocean ásamt kórnum. Þetta var svo fallegt að við fáum enn raðgæsahúð að hugsa um þessa athöfn. Síðan hoppuðum við yfir í Hellisgerði og fengum Sigríði Hermannsdóttur, ljósmyndara og vinkonu okkar, til að taka myndir. Svo var veisla beint eftir það. Rosalegt prógramm. Sigríður vinkona hjónanna tók dásamlegar myndir af þeim í Hellisgerði.Sigríður Hermanns Hvar hélduð þið brúðkaup? Var erfitt að ákveða staðsetningu? Veislan var í Hlégarði í Mosfellsbæ. Við vorum aðallega að leita að rými sem hentaði gestafjöldanum, í kringum 200, en svo vildum við líka vera með gott svið því við vissum að dagskráin yrði líklega nokkuð stútfull af atriðum. Hlégarður var því fullkominn! Nóg pláss og svakalega bjartur og fallegur salur, með góðu sviði. 200 gestir náðu að skemmta sér vel í Hlégarði.Sigríður Hermanns Voruð þið sammála í skipulaginu? Hvað fannst ykkur mikilvægast? Já, við náðum að vera mjög gott teymi í skipulaginu. Við ákváðum mjög snemma hvað okkur þætti mikilvægast, sem var einfaldlega skemmtilegur dagur, þar sem við fögnum lífinu og ástinni með öllu uppáhalds fólkinu okkar. Gleðin var í fyrirrúmi!Aðsend Hvaðan sóttuð þið innblástur? Kolbrún: „Ég var dugleg á Pinterest, TikTok og Instagram með alls konar skreytingapælingar, en svo sóttum við auðvitað líka mikinn innblástur í brúðkaup sem við höfðum farið í áður. Við vorum samt líka dugleg að pæla hvað okkur þætti skemmtilegt og hvað væri óþarfi, því gott ráð sem við fengum frá mörgum var einmitt að gera þetta nákvæmlega eins og við vildum hafa þetta. Til dæmis vorum við sammála um að við þyrftum ekki endilega spes móment til að skera kökusneið, frekar að nýta tímann í fleiri atriði!Svo er ekki hægt að tala um undirbúning brúðkaupsins án þess að minnast á hana Soffíu Helgadóttur, vinkonu mömmu hans Arnórs. Við erum svo heppin að hafa hana, en hún var potturinn og pannan þegar kom að öllu sem hét skraut.“ Innblásturinn kom meðal annars frá öðrum brúðkaupum sem hjónin hafa farið í og svo fengu þau dygga aðstoð frá fólkinu í kringum sig.Sigríður Hermanns Hvað stendur upp úr? „Það er eiginlega ekki hægt að velja eitthvað eitt atriði við þennan dag, það var allt svo skemmtilegt! Einfalda svarið er hvað vinir og fjölskylda okkar stóðu vaktina vel á öllum frontum og gerðu þennan dag svona fullkominn. Takk, vinir og fjölskylda, við elskum ykkur. En svo er endalaust meira sem var minnisstætt. Það kom á óvart hvað kirkjuathöfnin sjálf var fyndin og skemmtileg og lögin sem voru sungin stóðu öll upp úr hjá okkur báðum. Í veislunni voru allar ræður svo yndislegar og metnaðarfullar og svo voru allavega átta vinasöngatriði sem voru öll klikkuð. Kampavín, búllan og endalaus gleði.Aðsend Í danspartýinu mættu Selma Björns, Sigga Beinteins og dansarar surprise sem var ótrúlegt moment! Svo bókuðum við Unnstein og Inspector Spacetime sem voru auðvitað stórkostleg, þannig við vorum á dansgólfinu eiginlega allt kvöldið. Það var svo skemmtilegt að sjá alla fjölskylduna blandast við alla bestu vinina á dansgólfinu! Við smökkuðum bæði brjóstamjólk. Hún var bara semi góð. Takk, Edda. Það var dauður fugl inni á karlaklósettinu! Vitum ekki hvernig hann komst þarna en við vorum alveg nokkrir sem fengum að skoða hann, en svo var hann settur á viðeigandi stað þegar leið á kvöldið. Eitt sem við föttuðum ekki fyrr en á daginn sjálfan er hvað brúðkaup eru líka fallega platónísk þótt þau séu líka rómantísk. Dagurinn snérist um að fagna ást okkar tveggja en ekki síður um að fagna ást okkar á vinum okkar og fjölskyldu.“ Hjónin dönsuðu fram á rauða nótt við tryllt atriði, smökkuðu brjóstamjólk og jörðuðu dauðan fugl.Aðsend Sáu einhverjir um veislustjórn og voru skemmtiatriði? „Vinir okkar Sigyn og Tómas Arnar brilleruðu sem veislustjórar og eiga mikið hrós skilið fyrir hvað allt gekk smurt fyrir sig! Arnór vinnur sem veislustjóri og hann hefur enn ekki áttað sig á því hvernig þau fóru að því að halda svona pakkaðri dagskrá jafn smurðri og raun bar vitni. Þau eru sennilega bestu veislustjórar á landinu.“ Sigyn og Tómas vinir hjónanna sáu til þess að það var sturlað stuð.Aðsend Hvernig gekk að velja brúðkaupsfötin og hvaðan sóttuð þið innblásturinn fyrir þau? Kolbrún: „Ég leitaði lengi á Pinterest að innblæstri en endaði síðan á því að finna kjól sem líktist ekki endilega Pinterest-möppunni. Það gafst ekki mikill tími til að leita að kjól út af náminu en í maí á þessu ári fór ég eina helgina að leita og sá að það var einmitt vorútsala hjá second-hand brúðarkjólabúð í London sem heitir Brides Do Good. Konseptið þeirra er líka frekar aðdáunarvert en stór hluti af sölu þeirra fer til góðgerðasamtaka sem eru að stöðva barnahjónabönd í kringum heiminn. Ég vildi síðan vera í skóm með pop-of-colour og leitaði endalaust að klikkuðum útsaumshælum sem ég hafði séð á Pinterest en fann enga. Þannig ég endaði á því að sauma út sjálf í skóna, enda mikil föndurkona, sem kom bara mjög vel út og var skemmtilega heimagert. Mamma mín, Elín Reynis, sá um förðun og hár, þannig GMT, eða gera-mig-til, mómentið um morguninn var svo yndislegt og kósý og ég gæti ekki verið ánægðari með lúkkið!“ Kolbrún fann kjólinn í London en verslunin styður við mikilvægt málefni. Móðir hennar, förðunardrottningin Elín Reynis, sá um óaðfinnanlega förðun!Sigríður Hermanns Arnór: „Ég vildi fá svona „Gellur að máta kjóla og drekka kampavín“ móment nema fyrir gaura. Þannig ég hélt mátunarkvöld, græjaði tvær bjórrútur, smalaði saman félögum og fékk leikarann/tónlistarmanninn/kokkinn/lífskúnsterinn og tískuséníið Vilberg Andra til að taka saman nokkur outfit úr Kormáki og Skildi. Svo var bara mátað og úr varð falleg kvöldstund fyrir allan vinahópinn.“ Arnór hélt mátunarkvöld fyrir strákana og fékk góða aðstoð fyrir brúðkaupslúkkið sitt.Sigríður Hermanns Eruð þið með eitthvað gullið ráð fyrir verðandi hjón sem eru að skipuleggja brúðkaup? „Það getur verið yfirþyrmandi og tímafrekt að plana öll atriði sem koma að brúðkaupi, en reynið að rómantísera að setjast niður og plana saman. Svo þegar kemur að deginum er bara að njóta og ekki að vera að stressa sig yfir neinum smáatriðum. Allt verður fullkomið sama hvað klikkar, því þið verðið saman og fáið að fagna ástinni. Já og! Njóta undirbúningsins, við reyndum að nýta vina-/fjölskyldutengslin eins mikið og við gátum í undirbúningnum sem þýðir að við vörðum miklum tíma með vinum og fjölskyldu í aðdraganda brúðkaupsins, sem er náttúrulega aðalástæðan fyrir því að maður er að þessu. Svo er besta ráðið bara að tríta brúðkaupsveisluna ekki sem partý sem þú ert að halda, heldur partý þar sem þið hjónin eruð heiðursgestir.“ Arnór og Kolbrún segja gott að hugsa um brúðkaupsveisluna sem partý þar sem hjónin eru heiðursgestir. Sigríður Hermanns Ætlið þið í brúðkaupsferð? „Já, okkur langar svakalega mikið að fara til Hawaii en við erum enn að reyna að finna besta tímann til að fara, því nú er Arnór byrjaður í mastersnámi í kvikmyndaleikstjórn hérna í London og klárar á næsta ári. Við sjáum til og hlökkum ekkert eðlilega mikið til! En annars erum við að tríta þetta næsta ár í London sem smá hveitibrauðsdaga-eða bara hveitibrauðsárið mikla! Svo reyndar fórum við í svona mini-moon daginn eftir í bústað. Núna þegar við sjáum fyrir okkur himnaríki þá sjáum við í rauninni bara fyrir okkur þennan bústað.“ Hjónin skelltu sér strax í mini-moon í bústað eftir brúðkaupið.Sigríður Hermanns
Brúðkaup Ástin og lífið Tímamót Mest lesið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Lífið Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Lífið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Lífið Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Lífið samstarf „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Lífið Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Lífið Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Lífið samstarf „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist Fleiri fréttir Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Sjá meira