Innlent

Þjófnaður í þremur verslunum

Lovísa Arnardóttir skrifar
Lögreglan sinnti fjölbreyttum verkefnum að vanda í nótt. 
Lögreglan sinnti fjölbreyttum verkefnum að vanda í nótt. 

Tilkynnt var um þjófnað í verslun á þremur stöðum á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan 17 til 5 í morgun. Í dagbók lögreglu kemur fram að lögreglumenn á þremur stöðvum, 1, 3 og 4, hafi verið tilkynnt um þjófnað í verslun. Í öllum tilvikum var málið leyst með vettvangskýrslu.

Ekki kemur fram nánari staðsetning en lögregla á stöð 1 sinnir verkefnum í Austurbær-Miðbær-Vesturbær-Seltjarnarnes, stöð 3 í Kópavogi og Breiðholti og stöð 4 í Grafarvogi-Mosfellsbær-Árbær.

Þá kemur fram í dagbók að lögregla hafi brugðist við vegna boða frá reykskynjara og það hafi reynst vera eldur á staðnum. Í dagbók kemur fram að klukkustund síðar hafi slökkvistarfi verið lokið og engan sakaði.

Í dagbók kemur fram að einn gisti í fangageymslu og að 60 mál hafi verið skráð í kerfi lögreglu frá 17 til fimm.

Lögregla hafði einnig, að vanda, afskipti af ökumönnum. Einn var stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum. Í dagbók kemur fram að ökumaðurinn hafði ekið gegn rauðu ljósi og var með vímuefni meðferðis. Hann var sviptur ökuréttindum og við leit í bifreið hans fundust þá einnig meint fíkniefni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×