Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Áróra L Davíðsdóttir skrifar 19. ágúst 2026 06:45 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. vísir/einar Enn hafa engin viðtöl verið tekin vegna skipunar nýs lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu en vegna sumarleyfa lá ráðningarferlið niðri. Óljóst er hvenær nýr lögreglustjóri verður skipaður.
Halla Bergþóra Björnsdóttir, sem sinnti embætti lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, tók við embætti ríkislögreglustjóra þann 20. apríl síðastliðinn. Þá var embætti lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu auglýst laust til umsóknar í byrjun júní og var umsóknarfrestur til og með 26. júní. Í svari dómsmálaráðuneytisins til fréttastofu um stöðu skipunar segir að vegna sumarleyfa ráðuneytisins hafi ráðningarferlið legið niðri. Ekki sé búið að taka nein viðtöl en unnið sé að skipan hæfnisnefndar. Ekki liggi fyrir hvenær nýr lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu verði skipaður. Alls sóttu sex um stöðu lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu. Meðal umsækjenda voru Úlfar Lúðvíksson fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum, Birgir Jónasson lögreglustjóri á Norðurlandi vestra og María Káradóttir settur lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu. Sömuleiðis sótti Margrét Kristín Pálsdóttir, settur lögreglustjóri á Suðurnesjum, um stöðuna en hún hefur nú verið skipuð lögreglustjóri í því umdæmi. Áður hefur dómsmálaráðherra kynnt fyrirhugaðar breytingar á skipulagi lögreglu, meðal annars áform um að fækka lögregluembættum úr níu í fjögur til fimm og mynda þannig öflugri embætti um land allt. Í þeim áformum felist að sameining lögregluembætta á suðvesturhorni landsins verði skoðuð sérstaklega og að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu muni gegna stóru hlutverki við þær breytingar.
Lögreglan Reykjavík Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Seltjarnarnes Hafnarfjörður Kópavogur Garðabær Mosfellsbær Tengdar fréttir Leit að eftirmanni Höllu Bergþóru hafin Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hefur verið auglýst laust til umsóknar. Halla Bergþóra Björnsdóttir, sem sinnti embættinu, tók við embætti ríkislögreglustjóra þann 20. apríl. 2. júní 2026 16:58 Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Fleiri fréttir Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Sjá meira
Leit að eftirmanni Höllu Bergþóru hafin Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hefur verið auglýst laust til umsóknar. Halla Bergþóra Björnsdóttir, sem sinnti embættinu, tók við embætti ríkislögreglustjóra þann 20. apríl. 2. júní 2026 16:58