Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Birgir Olgeirsson skrifar 18. ágúst 2026 10:43 Um 80 prósent umferðarljósa í Reykjavík eru tengd miðlægu stýrikerfi en möguleikar þess eru ekki fullnýttir. Gamall búnaður og skortur á sérfræðingum hafa hægt á innleiðingu snjallari stýringa. Anton Brink Meirihluti borgarstjórnar Reykjavíkur vill hraða innleiðingu snjallra umferðarljósastýringa til að stytta ferðatíma og draga úr umferðarteppu. Samfylkingin styður snjallari stýringu en segir hana ekki leysa undirliggjandi skipulagsvanda borgarinnar.
Tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins var lögð fram á fundi umhverfis- og skipulagsráðs 12. ágúst og send skrifstofu samgangna og borgarhönnunar til umsagnar. Vilja tímasetta og kostnaðarmetna áætlun Meirihlutinn kallar eftir skýrri, tímasettri og kostnaðarmetinni áætlun um hvernig flýta megi innleiðingunni. Þar verði gerð grein fyrir mannaflaþörf og helstu flöskuhálsum og meðal annars kannað hvort vinna megi hraðar með sjálfvirkni, þjónustusamningum eða útvistun. Einnig á að meta hvað þurfi til að tengja þau ljós sem enn eru ótengd miðlægu stýrikerfi, flýta endurnýjun úreltra stjórnkassa og fjölga gatnamótum með samfelldri rauntímastýringu. Friðjón R. Friðjónsson, varaformaður ráðsins, sagði Vísi í júní að meirihlutinn ætlaði að flýta innleiðingu snjallra ljósastýringa um alla borg á fyrsta starfsári sínu. Kerfið ekki fullnýtt Í Reykjavík eru 159 ljósastýrð gatnamót og gönguþveranir. Um 80 prósent ljósanna eru tengd miðlægu kerfi og 86 prósent umferðarstýrð. Stór hluti tækninnar er því þegar til staðar en möguleikar hennar eru ekki fullnýttir. Gamall búnaður og skortur á mannafla hægja á endurbótum. Af 138 stjórnkössum við hefðbundin gatnamót eru 47 komnir fram yfir áætlaðan líftíma. Ekki er lengur hægt að panta varahluti í 92 kassa og 58 þeirra er ekki hægt að senda í viðgerð. Í fjárfestingaráætlun fyrir árið 2026 var fjárheimild til umferðarljósa hækkuð í 400 milljónir króna vegna uppsafnaðrar viðhalds- og endurnýjunarþarfar. Í minnisblaði borgarinnar er mannauður sagður líklega stærsta áskorunin. Úttekt sænsku verkfræðistofunnar Sweco leiddi jafnframt í ljós að tæknibúnaðurinn væri almennt sambærilegur við búnað í evrópskum viðmiðunarborgum en fjárfesta þyrfti frekar í starfsfólki og verklagi. Snjallari stýring tryggir þó ekki samfellda græna bylgju. Þegar fréttastofa prófaði ljósin á Sæbraut í júní dugði hvorki að aka á 60 né 58 kílómetra hraða til að sleppa við rautt ljós. Rót umferðartafa sé dreifð byggð og einkabílamiðað skipulag Samfylkingin styður tillöguna og tekur undir að ráða þurfi sérfræðinga og fjölga þeim sem sinna ljósastýringunni. Flokkurinn segir þó rót umferðartafanna liggja í dreifðri byggð og einkabílamiðuðu skipulagi. „Snjallljós munu duga skammt ef við töpum heildarmyndinni í skipulagsmálum,“ segir í bókun hans. Samfylkingin varar við því að brjóta nýtt land undir byggð norðan og austan við borgina fyrir næstu tuttugu þúsund Reykvíkinga. Slíkt myndi auka umferð svo mikið að ljósastýringar breyttu litlu. Þétting byggðar og efling annarra samgöngumáta sé raunverulega framtíðarlausnin.
Samgöngumál Reykjavík Umferð Borgarstjórn Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Allt að átján stiga hiti í dag Veður Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Innlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kynna þingmálaskrá vetursins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld Sjá meira