„Þjóðin á rétt á að vita“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 14. ágúst 2026 13:26 Guðrún gagnrýnir Þorgerði. Vísir/Samsett Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir það skýrt eftir viðtal við utanríkisráðherra í Íslandi í dag að ríkisstjórnin vilji fyrst fá umboð þjóðarinnar og síðan ákveða endanleg samningsmarkmið. Guðrún segist treysta þjóðinni. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra var í ítarlegu viðtali í Íslandi í dag um þjóðaratkvæðagreiðsluna sem fer fram þann 29. ágúst. Þorgerður sagðist þar ekki ætla að láta stilla sér upp við vegg þegar hún var spurð að því hvort hún myndi ráðleggja þjóðinni að hafna aðildarsamningi ef ekki fengjust undanþágur í sjávarútvegi, þrátt fyrir þann mikla öryggislega ávinning sem hún telur að felist í Evrópusambandinu. Guðrún birti færslu í dag þar sem hún gagnrýnir orð ráðherrans. „Í athyglisverðu viðtali við utanríkisráðherra í gærkvöldi gat hún ekki sagt að varanleg yfirráð Íslendinga yfir fiskveiðiauðlindinni væru ófrávíkjanlegt skilyrði ríkisstjórnarinnar. Ekki einu sinni þegar hún var spurð beint og ítrekað hvort lausnin þyrfti að vera varanleg eða ævarandi,“ skrifar Guðrún. Þess í stað hafi Þorgerður talað um „full forráð“ og að verja hagsmuni til skemmri og lengri tíma í stað varanlegra. Úr viðtali Elísabetar Ingu við Þorgerði: Bara þannig að það sé algjörlega skýrt því margir segja að það sé bara hægt að fá tímabundnar undanþágur. Þú munt ekki fara fram á neitt annað en ævarandi undanþágu frá reglum ESB þegar kemur að sjávarútvegi? „Ég mun ekki fara með neitt annað fram heldur en sem tryggir íslenska hagsmuni til skemmri og lengri tíma.“ Ævarandi? „Til skemmri og lengri tíma.“ Þannig það gæti komið samningur fyrir þjóðina þar sem við fáum undanþágur í sjávarútvegi en bara til fimmtíu ára? „Nei Elísabet Inga, þú færð mig ekki til að segja já við þessu, kemur ekki til greina.“ En á þjóðin ekki rétt á að vita þetta? „Ég er búin að segja það. Við munum fara í hörðustu samningaviðræður sem við ætlum í út af sjávarútvegi og ef að niðurstaðan þjónar ekki samningum Íslands þá mun ég segja nei. Hversu skýrt þarf það að vera? Það þýðir ekki að fara í einhvern orðhengilshátt hér.“ Treystir þjóðinni Guðrún segist hafa margoft kallað eftir þessum svörum. „Það er alveg skýrt að ríkisstjórnin vill fá umboð þjóðarinnar fyrst og ákveða síðan endanleg samningsmarkmið. Það kemur raunar skýrt fram í tillögu utanríkisráðherra um atkvæðagreiðsluna,“ skrifar Guðrún. Það sé rangt að halda því fram að samningsmarkmið ríkisstjórnarinnar liggi þegar fyrir heldur sé einungis verið að biðja þjóðina um umboð til að hefja aðildarferlið sem hófst árið 2009. „Ég treysti þjóðinni fullkomlega til að taka þá ákvörðun,“ segir Guðrún og svarar einnig þannig gagnrýni Þorgerðar sem sagðist telja forsvarsmenn stjórnarandstöðunnar ekki þora að segja að þau treystu þjóðinni. „Þjóðin á rétt á að vita áður en hún veitir umboðið hvort full og varanleg yfirráð Íslendinga yfir auðlindum þjóðarinnar séu ófrávíkjanlegt skilyrði,“ bætir Guðrún við. „Í gærkvöldi fengum við svarið að svo er ekki.“ Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Sjálfstæðisflokkurinn Viðreisn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra var í ítarlegu viðtali í Íslandi í dag um þjóðaratkvæðagreiðsluna sem fer fram þann 29. ágúst. Þorgerður sagðist þar ekki ætla að láta stilla sér upp við vegg þegar hún var spurð að því hvort hún myndi ráðleggja þjóðinni að hafna aðildarsamningi ef ekki fengjust undanþágur í sjávarútvegi, þrátt fyrir þann mikla öryggislega ávinning sem hún telur að felist í Evrópusambandinu. Guðrún birti færslu í dag þar sem hún gagnrýnir orð ráðherrans. „Í athyglisverðu viðtali við utanríkisráðherra í gærkvöldi gat hún ekki sagt að varanleg yfirráð Íslendinga yfir fiskveiðiauðlindinni væru ófrávíkjanlegt skilyrði ríkisstjórnarinnar. Ekki einu sinni þegar hún var spurð beint og ítrekað hvort lausnin þyrfti að vera varanleg eða ævarandi,“ skrifar Guðrún. Þess í stað hafi Þorgerður talað um „full forráð“ og að verja hagsmuni til skemmri og lengri tíma í stað varanlegra. Úr viðtali Elísabetar Ingu við Þorgerði: Bara þannig að það sé algjörlega skýrt því margir segja að það sé bara hægt að fá tímabundnar undanþágur. Þú munt ekki fara fram á neitt annað en ævarandi undanþágu frá reglum ESB þegar kemur að sjávarútvegi? „Ég mun ekki fara með neitt annað fram heldur en sem tryggir íslenska hagsmuni til skemmri og lengri tíma.“ Ævarandi? „Til skemmri og lengri tíma.“ Þannig það gæti komið samningur fyrir þjóðina þar sem við fáum undanþágur í sjávarútvegi en bara til fimmtíu ára? „Nei Elísabet Inga, þú færð mig ekki til að segja já við þessu, kemur ekki til greina.“ En á þjóðin ekki rétt á að vita þetta? „Ég er búin að segja það. Við munum fara í hörðustu samningaviðræður sem við ætlum í út af sjávarútvegi og ef að niðurstaðan þjónar ekki samningum Íslands þá mun ég segja nei. Hversu skýrt þarf það að vera? Það þýðir ekki að fara í einhvern orðhengilshátt hér.“ Treystir þjóðinni Guðrún segist hafa margoft kallað eftir þessum svörum. „Það er alveg skýrt að ríkisstjórnin vill fá umboð þjóðarinnar fyrst og ákveða síðan endanleg samningsmarkmið. Það kemur raunar skýrt fram í tillögu utanríkisráðherra um atkvæðagreiðsluna,“ skrifar Guðrún. Það sé rangt að halda því fram að samningsmarkmið ríkisstjórnarinnar liggi þegar fyrir heldur sé einungis verið að biðja þjóðina um umboð til að hefja aðildarferlið sem hófst árið 2009. „Ég treysti þjóðinni fullkomlega til að taka þá ákvörðun,“ segir Guðrún og svarar einnig þannig gagnrýni Þorgerðar sem sagðist telja forsvarsmenn stjórnarandstöðunnar ekki þora að segja að þau treystu þjóðinni. „Þjóðin á rétt á að vita áður en hún veitir umboðið hvort full og varanleg yfirráð Íslendinga yfir auðlindum þjóðarinnar séu ófrávíkjanlegt skilyrði,“ bætir Guðrún við. „Í gærkvöldi fengum við svarið að svo er ekki.“
Úr viðtali Elísabetar Ingu við Þorgerði: Bara þannig að það sé algjörlega skýrt því margir segja að það sé bara hægt að fá tímabundnar undanþágur. Þú munt ekki fara fram á neitt annað en ævarandi undanþágu frá reglum ESB þegar kemur að sjávarútvegi? „Ég mun ekki fara með neitt annað fram heldur en sem tryggir íslenska hagsmuni til skemmri og lengri tíma.“ Ævarandi? „Til skemmri og lengri tíma.“ Þannig það gæti komið samningur fyrir þjóðina þar sem við fáum undanþágur í sjávarútvegi en bara til fimmtíu ára? „Nei Elísabet Inga, þú færð mig ekki til að segja já við þessu, kemur ekki til greina.“ En á þjóðin ekki rétt á að vita þetta? „Ég er búin að segja það. Við munum fara í hörðustu samningaviðræður sem við ætlum í út af sjávarútvegi og ef að niðurstaðan þjónar ekki samningum Íslands þá mun ég segja nei. Hversu skýrt þarf það að vera? Það þýðir ekki að fara í einhvern orðhengilshátt hér.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Sjálfstæðisflokkurinn Viðreisn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira