Óraði ekki fyrir að ákvæðinu yrði beitt til að sleppa morðingja Bjarki Sigurðsson skrifar 13. ágúst 2026 13:13 Sigríður Á. Andersen er þingflokksformaður Miðflokksins. Vísir/Einar Dæmdum morðingja í einu alræmdasta morðmáli Íslandssögunnar hefur verið sleppt á reynslulausn og vísað úr landi eftir að hafa afplánað þriðjung dóms síns. Fyrrverandi dómsmálaráðherra segir að sig hafi ekki órað fyrir því að bráðabirgðaákvæði dómsmálaráðherra myndi leysa menn úr haldi eftir svo alvarlega glæpi.
Í morgun var greint frá því að Angjelin Sterkaj, sem var 2023 dæmdur til sextán ára fangelsisvistar í Hæstarétti fyrir morðið á Armando Beqirai fyrir utan heimili hans í Rauðagerði 2021, hefði fengið reynslulausn og vísað úr landi. Brottvísunin byggir á nýlegri bráðabirgðalagabreytingu dómsmálaráðherra sem heimilar að veita erlendum föngum sem ákveðið hefur verið að vísa úr landi reynslulausn þegar einn þriðji hluti refsitímans er liðinn. Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, segir Miðflokkinn hafa sett út á ýmislegt varðandi frumvarpið á sínum tíma. „Það sem kom kannski ekki beint til umræðu á þinginu við meðferð þessa máls er hvort það hefði komið til greina að beita þessu ákvæði á fanga sem voru að afplána dóma fyrir jafn alvarleg brot og fjallað er um í dag. Dómsmálaráðherra lét í veðri vaka að þetta væri til þess að tappa af fangelsunum með minniháttar brotamönnum. Þannig þau komu aldrei til umræðu þessi alvarlegu brot,“ segir Sigríður. Málið sendi röng skilaboð til erlendra glæpahópa. Þá samræmist málið illa jafnréttissjónarmiðum gagnvart íslenskum föngum. „Reynslulausn er heimildarákvæði í lögum. Það er ekki skylda að veita föngum reynslulausn. Það er vegið og metið í hvert sinn. Það hefur greinilega verið metið þannig af fangelsismálayfirvöldum að fangi sem hefur afplánað dóm fyrir morð af yfirlögðu ráði að það séu rök fyrir því að stytta hans afplánun. Stytta hana umfram afplánun íslenskra fanga sem langflestir afplána fyrir miklu minni brot en hér er verið að ræða,“ segir Sigríður.
Miðflokkurinn Morð í Rauðagerði Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Fangelsismál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira