„Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 13. ágúst 2026 10:00 Viðtal við Þorgerði Katrínu verður í opinni dagskrá klukkan 18:55. vísir/Einar árnason Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, verður til viðtals í Ísland í dag strax að loknum kvöldfréttum Sýnar þar sem þjóðaratkvæðagreiðslan verður til umræðu. Viðtalið verður aðgengilegt öllum landsmönnum.
Í viðtalinu segist Þorgerður Katrín ekki ætla að gefa snefil eftir þegar komi að sjávarútvegsmálum. Ísland verði að hafa stjórn á eigin sjávarútvegi. Fáum þetta á hreint því margir telja að það sé einungis hægt að fá tímabundnar undanþágur frá sameiginlegri stefnu Evrópusambandsins. Þú munt sem sagt ekki fara fram á neitt annað en ævarandi undanþágur frá reglum Evrópusambandsins þegar kemur að sjávarútvegi? „Ég mun ekki fara með neitt annað fram heldur en sem tryggir íslenska hagsmuni til skemmri og lengri tíma.“ Ævarandi undanþágur? „Til skemmri og lengri tíma.“ Þannig það gæti komið fram samningur þar sem við fáum undanþágur í sjávarútvegi en bara til fimmtíu ára? „Nei Elísabet Inga þú færð mig ekki til að segja já við þessu, kemur ekki til greina. En á þjóðin ekki rétt á að vita þetta? „Ég er búin að segja það. Við munum fara í hörðustu samningaviðræður sem við ætlum í út af sjávarútvegi og ef að niðurstaðan þjónar ekki samningum Íslands þá mun ég segja nei. Hversu skýrt þarf það að vera? Það þýðir ekki að fara í einhvern orðhengilshátt hér.“ „Við munum setja fram okkar ítrustu kröfur þegar kemur að sjávarútvegi og ýmsum öðrum málum. Þær kröfur koma mjög skýrt fram í meirihlutáliti utanríkismálanefndar. Þú þarft ekki bara að heyra það, þetta þarf framkvæmdastjórnin að heyra að okkur er fúlasta alvara þegar kemur að fiskveiðum og ég heyri ekki betur en að framkvæmdastjórnin og ýmis aðildarríki átti sig á því að þetta er risa mál fyrir okkur ef þau vilja okkur inn.“ Allt viðtalið við Þorgerði Katrínu má sjá í Íslandi í dag í kvöld klukkan 18:55, í opinni dagskrá á Sýn og Vísi, strax á eftir kvöldfréttum.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Evrópusambandið Utanríkismál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Sjá meira