Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 6. ágúst 2026 18:51 Margrét Ágústa Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Bændasamtakanna vitnaði til sjálfstæðisbaráttu Jóns Sigurðssonar á 19. öld þegar hún fór yfir niðurstöður skýrslu um möguleg áhrif aðildarviðræðna eða aðildar að Evrópusambandinu. Vísir/Lýður Neikvæð mynd er dregin upp af áhrifum aðildaviðræðna og mögulegri inngöngu Íslands í Evrópusambandið á landbúnað hér á landi, í nýrri skýrslu sem Búnaðarþing lét gera. Framkvæmdastjóri Bændasamtakanna telur að aðild fæli í sér valdaafsal og líkir málinu við sjálfstæðisbaráttu Íslendinga á 19. öld.
Búnaðarþing skipaði sjö bændur í nefnd í vor til að fara yfir kosti og ókosti aðildarviðræðna við Evrópusambandið og mögulega aðild. Formaður nefndarinnar fór yfir niðurstöður hópsins hjá Bændasamtökunum í morgun. Í heild er dregin upp sú mynd í skýrslunni að hugsanleg ESB- aðild væri kerfisbreyting sem hefði mikil áhrif á landbúnað. Skýrsluhöfundar telja að með aðild færi stór hluti ákvörðunarvalds í landbúnaðarmálum til Evrópusambandsins. Loks er lögð áhersla á að aðildarviðræður séu ekki hlutlausar fyrir landbúnaðinn. Þær muni skapa óvissu fyrir bændur. Landbúnaður muni gjörbreytast Margrét Ágústa Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Bændasamtakanna segir niðurstöður skýrslunnar óyggjandi. „Landbúnaðurinn hér á landi myndi gjörbreytast með inngöngu í Evrópusambandið. Það er okkar mat og mitt mat hvað það varðar. Það verður framsal á ríkisvaldi þegar kemur að landbúnaði og öðrum greinum,“ segir hún. Fréttastofu hafa borist ábendingar um heyrúllur með slíkum límmiðum víða frá á landinu síðustu daga. Vísir/Viktor Margrét vitnar í orð sem hún segir höfð eftir Jóni Sigurðssyni sem barðist fyrir því á 19. öld að Íslendingar fengju sjálfstæði frá Danmörku og réðu yfir eigin málum. „Ef við tökum saman efni skýrslunnar þá vil ég vísa til orða Jóns Sigurðssonar í baráttu hans fyrir sjálfstæði Íslands. Þar velti hann fyrir sér af hverju skilaboð bónda í Skagafirði til bónda í Húnavatnssýslu þyrftu að fara gegnum Kaupmannahöfn. Þetta á nákvæmlega við í dag,“ segir hún. Ekki áróðursstefna Bændur stóðu að gerð skýrslunnar. Aðspurð hvort ekki hafi komið til greina að hafa líka óháðan sérfræðing í nefndinni svarar Margrét. „Óháðir sérfræðingar hafa komið að þessari vinnu, beint og óbeint.“ Hún segir að Búnaðarþing muni svo líta til skýrslunnar í afstöðu sinni til þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst á þingi sínu um miðjan ágúst. „Þessi skýrsla er ekki áróðursstefna. Það er svo náttúrulega Búnaðarþing sem mun ræða efni hennar og ákveða endanlega stefnu Bændasamtakanna í þessu máli,“ segir hún.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Landbúnaður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira