„Sá spyr sem ekki veit“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 5. ágúst 2026 17:12 Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segist vilja sjá hvað leynist í pakkanum. vísir/getty/lýður valberg „Ég er döpur yfir því hve hatrömm orðaskipti maður hefur séð og ómakleg. Það kemur mér rosalega á óvart hvað lýðræðinu er sýnd mikil lítilsvirðing. Við erum búin að berjast í hundrað ár fyrir fullveldinu okkar og síðan fáum við lýðveldið okkar 1944. Fyrst og síðast byggir það á svipuðu þegar við erum að kjósa okkur valdhafa, í þetta skipti erum við að gefa þjóðinni kost á að segja já eða nei við samningaviðræðum.“
Þetta segir Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, í samtali við fréttastofu spurð hvað henni finnist um umræðuna í kringum þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort hefja eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið sem styttist óðfluga í. Eins og hefur margsinnis komið fram munu landsmenn ganga til kosninga þann 29. ágúst og ákveða hvort aðildarviðræður verði teknar upp að nýju um inngöngu í Evrópusambandið. Þar verður einfaldlega spurt: Já eða nei? Lítið annað er rætt á kaffistofum landsmanna um þessar mundir að undanskildum almyrkvanum sem mun ganga yfir þann 12. ágúst og er mikið rætt og ritað um kosningarnar jafnt í fjölmiðlum sem og skoðunargreinum og á samfélagsmiðlum. „Það er ótrúlegt hvernig hefur tekist til að telja fólki trú um það að við séum að fara að greiða atkvæði um það að ganga í Evrópusambandið. Það er rangt. Við erum bara að tala um að fá að sjá. Vill fólkið það eða ekki? Það kemur í ljós í lok ágúst. Ég myndi oftar vilja sjá þjóðaratkvæðagreiðslu, þar sem þjóðin fær að koma að málum sem varðar okkur til allrar framtíðar,“ segir Inga og bætir við að orðræðan hafi verið einkennileg og ekki henni að skapi. Hún hvetur „fyrrverandi kjörna fulltrúa“ og „leiðtoga í stórum fyrirtækjum“ til að tala af ábyrgð. „Þeir ættu að þakka fyrir það að þjóðin okkar skuli fá að koma að borðinu. Það virðist ekki vera og virðist vera að þeir treysti ekki þjóðinni. Það finnst mér sorglegt.“ Hún hvetur hvern og einn til að kjósa eftir eigin sannfæringu. „Ég segi bara upp upp og áfram veginn sama hvað kemur úr þessari atkvæðagreiðslu. Það er þá þjóðarviljinn og hann munum við virða af öllu hjarta.“ Spurð hvort hún hafi sjálf gert upp hug sinn fyrir atkvæðagreiðsluna segir Inga: „Stefna Flokks fólksins er skýr alls staðar. Við erum á móti því að ganga í Evrópusambandið sem slíkt en við höfum aldrei verið á móti því að spyrja um það sem við ekki vitum. Ég segi bara eins og góð vinkona mín sagði við mig þegar ég var lítil táta: Inga mín, sá spyr sem ekki veit. Ég myndi gjarnan vilja sjá það.“
Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Sjá meira