Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Jakob Bjarnar skrifar 28. júlí 2026 14:34 Hildur fékk sérkennilegt tilboð frá fólki sem var að hanna gervigreindarforrit sem ætlað er að aðstoða við lestrarkennslu. Tilboðið gekk út á að hún átti að láta þau fá textann sinn meðan þau væru að prófa forritið. vísir/anton brink Hildur Knútsdóttir rithöfundur segir að hún hafi fengið sérkennilegt viðskiptaboð fyrir skömmu sem gekk út á „samstarf“ við aðila sem eru að þróa gervigreindarforrit til að styðja við lestrarkennslu. Meinið er að það stóð ekki til að greiða neitt fyrir texta hennar.
Hildur segir umrætt verkefni á tveggja ára styrk frá Rannís og þeir sem um ræðir vilji fá texta frá henni til að þróa forritið. Enginn peningur til fyrir höfundana Hildur segir að þó að fokið hafi í sig við þetta tilboð vilji hún ekki greina frá því hverjir eigi í hlut því þeim gangi örugglega gott eitt til. Þau hafi einfaldlega ekki áttað sig á því að þau væru að fara fram á afnot af höfundarréttarvörðu efni. „Ætli þau geri forriturunum sama tilboð? Eða hönnuðunum? Eru þau sem eru að þróa forritið líka að gefa vinnuna sína? Í hvað fer þessi Rannís-peningur þá eiginlega? Ef bissnessplanið þitt gengur ekki upp nema þú fáir ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni þá er eitthvað að planinu.“ Hildur sendi Rannís póst vegna málsins en hún segist ekki gera ráð fyrir svari á næstunni; á heimasíðu Rannís komi fram að þar séu allir í sumarfríi. „Ég spurði hvort til stæði að greitt yrði fyrir textann en mér var þá sagt að það væri ekki til peningur til að greiða fyrir meðan verið væri að þróa verkefnið. Þau gera ekki ráð fyrir að þurfa að greiða þóknun á prófunarstigi en vildu svo ræða sanngjarna greiðslu við endanlega útgáfu.“ Höfundum brugðið Svo virðist sem margir barnabókahöfundar hafi fengið senda svipaða ósk og sú sem Hildur fékk. Sjálf þekkir Hildur til þó nokkurra höfunda sem hafa fengið svipaða bón. En miðað við viðbrögð sem sjá má á Facebook-síðu Hildar, þar sem hún greinir frá þessu, er ekki líklegt að höfundar almennt muni taka því erindi vel. Þeim er brugðið, sannast sagna. Bryndís Björgvinsdóttir segir til að mynda í háði: „Þetta er bara rosa góð kynning fyrir þig.“ Soffía Bjarnadóttir segir þetta fráleitt og Vilborg Davíðsdóttir telur slík vinnubrögð til skammar fyrir Rannís. Frá bókasafni Norræna hússins. Gervigreindin leikur höfundarréttarvarið efni grátt en hún fer sem eldur í sinu um höfundarréttarvarið efni og hakkar það í sig. Hildur efast um að gervigreindin geti komið að gagni við að kenna börnum að lesa.vísir/vilhelm „Ef viðskiptaplanið þitt gerir ráð fyrir því að þú hafir aðgang að höfundarréttarvörðu efni og þurfir ekki að greiða fyrir það, þá er það skrítið viðskiptaplan,“ segir Hildur. Flestar stéttir sem fást við texta- og myndvinnslu einnig standa óvarðar gagnvart gervigreindinni. Hún fer um á ógnarhraða, eirir engu og fólk hefur ekki fengið neitt svigrúm til að staldra við og huga að réttindum sínum. „Svo er ég ekki viss um að gervigreind sé lausn við lestrarvanda. Ég er ekki sannfærð um það. En fólk fer oft fram á að fá afnot af texta og telur að af því að búið sé að skrifa þá sé það í lagi. En þetta er samt vinnan mín.“
Gervigreind Bókmenntir Menning Grunnskólar Framhaldsskólar Höfundar- og hugverkaréttur Mest lesið Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að vitnisburði sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Sjá meira