Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. júlí 2026 23:15 Nýsjálenski ofurhlauparinn Sophie Grant er að setja magnað heimsmet og slá bæði karla- og kvennametið. @sophieamygrant Sumir nota sumarfríið sitt til að fara á strönd eða í sumarbústað en nýsjálenski ofurhlauparinn Sophie Grant er með aðeins öðruvísi og metnaðarfyllri sumarplön.
Hún setti sér það markmið að vera sú fljótasta til að hlaupa í gegnum allan hæsta og stærsta fjallgarð Evrópu. Þá erum við ekki að tala um að fara yfir Alpana heldur hlaupa í gegnum þá alla. Sophie Grant er nú búin að hlaupa í sextán daga og stefnir á að hlaupa yfir alla Alpana á mettíma. Grant mun hlaupa frá Trieste á Ítalíu til Mónakó, fara í gegnum átta lönd og hlaupa að meðaltali 63 kílómetra á dag með klifri sem jafngildir því að fara upp Mont Blanc á stærstu dögunum. View this post on Instagram A post shared by Her Sport (@hersport.ie) Allt gerir hún þetta á aðeins nokkurra klukkustunda nætursvefni með það markmið að setja nýtt met. Kvennametið er 38 dagar en karlametið er 35. Hún stefnir á að klára hlaupið á 30 dögum og er á góðri leið með að ná báðum metunum. Núna er hún hálfnuð með hlaup sitt um Alpana á methraða og þrátt fyrir að takast á við eina líkamlega og andlega erfiðustu þrekraun sem hægt er að hugsa sér segir Grant við Her Sport að hún sé í góðum gír. „Fyrstu vikurnar voru erfiðar og mér var illt alls staðar. Mér er ennþá illt á ýmsum stöðum og í lok dags eru fæturnir á mér svo sannarlega tilbúnir í hvíld, en eins og er er ég bara með eina litla blöðru á hælnum, sem ég tel vera stórsigur. Þegar allt er tekið með í reikninginn líður mér mjög vel,“ sagði Sophie Grant. Markmið hennar var að skora á sjálfa sig, verða aftur ástfangin af hlaupum eftir erfitt tímabil í lífi sínu og hvetja aðrar konur til að þora að reyna að fara lengra en þær telja sig geta farið. View this post on Instagram A post shared by Sophie Woods (@sophieamygrant)
Hlaup Mest lesið Braut kynferðislega á Andy Carroll Enski boltinn Selfyssingar syrgja Sport Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Fótbolti Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Yoro ekki til Íslands Fótbolti Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Fótbolti FH - Haukar | Slást um toppsætið í Hafnarfjarðarslag Handbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Fleiri fréttir Lygilegt sigurmark HK í Vestmannaeyjum FH - Haukar | Slást um toppsætið í Hafnarfjarðarslag Martin frábær í sigurleik Noregur - Danmörk | Reyna að lækka rostann í grönnum sínum Kósovó - Írland | Heimir byrjar á strembnu prófi Ókeypis að sjá vonarstjörnur Íslands og Frakklands Landsliðin flúðu haustlægðina Mætir Haaland eftir að hafa þjálfað hann 16 ára Loksins fótbolti á innipúkadegi Uppsagnir hjá BBC og verkföll möguleg „Mjög nálægt þessu og fáum sanngjarna umspil núna“ Líf og Emelía með: Hópurinn sem á að taka næstsíðasta skrefið að HM í Brasilíu Dregið í bikarnum: Meistararnir fá gesti úr Garðabæ Sjáðu Þorstein kynna hópinn fyrir HM-leiki við Króata „Meira en tvö stig undir“ Braut kynferðislega á Andy Carroll Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Ljót meiðsli og ælt á völlinn Yoro ekki til Íslands „Væri fínt ef þetta væru sex mánuðir“ Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur Grip ársins? „Þetta er út í hött“ George Gillett látinn Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Leikmenn Heimis funda á morgun fyrir leik gegn Ísrael Dauði varnarmannsins Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Selfyssingar syrgja Þjóðadeildin fer af stað í beinni Sjá meira