Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Jón Þór Stefánsson skrifar 14. júlí 2026 07:59 Árásin var framin á skólalóð Laugarnesskóla. Vísir/Vilhelm Íslenska ríkið þarf að greiða manni þrjár milljónir króna, þar af eina milljón í miskabætur og tvær í málskostnað, vegna þess að rannsókn á sakamáli þar sem hann var brotaþoli dróst úr hófi, og var sá dráttur óskiljanlegur að mati dómara.
Þetta var niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur. Atvikið sem málið varðar átti sér stað í apríl 2020 við Laugarnesskóla í Reykjavík. Þar var maðurinn á gangi með hundinn sinn, og tók eftir því að við fótboltavöll skólans voru þrír bílar. Hann tók upp símann sinn og tók mynd af einum þeirra. Samkvæmt manninum sjálfum kom þá drengur að honum, sagði honum að hætta að taka myndir og hrifsaði af honum símann. Maðurinn streittist á móti og tók piltinn niður, en þá kom annar drengur aftan að honum, tók hann í jörðina og sparkaði í síðu hans. Maðurinn taldi að allt í allt hafi þrír piltar verið á vettvangi, en einungist tveir þeirra ráðist á hann. Vegna árásarinnar varð maðurinn fyrir varanlegu líkamstjóni. Þekktir fyrir að beita ofbeldi Vitni, sem sagðist ekki hafa séð upptök átakanna, lýsti því að hafa séð manninn liggja í jörðinni og svo þrjá til fjóra einstaklinga standa yfir honum, og sparka í hann og kýla. „Þessir einstaklingar væru þekktir fyrir að beita ofbeldi og vera ógnandi.“ Annað vitni sagði manninn ekki hafa veist að drengjunum með ofbeldi, hann hafi einungis ætlað að ná síma sínum aftur, en að einn drengurinn hafi komið aftan að honum og sparkað í hann nokkrum sinnum áður en hann lenti í jörðinni, og mögulega eftir það líka. Aðrir hefðu þó ekki tekið þátt í árásinni. Einn ákærður og dæmdur Einn piltanna var ákærður í málinu, og sakfelldi Héraðsdómur Reykjavíkur hann í lok árs 2022. Þó var það mat héraðsdóms í því máli að ákæruvaldinu hefði ekki fært fullnægjandi sönnur fyrir öllu því sem piltinum var gefið að sök. Til að mynda var talið ósannað að hann bæri ábyrgð á rifbeinsbroti mannsins. Piltinum var gert að greiða 300 þúsund krónur í miskabætur, en gera má ráð fyrir að sú upphæð hafi verið talsvert lægri en það sem leitast var eftir fyrir manninn. Brugðust hlutverki sínu Í kjölfarið kvartaði maðurinn yfir seinagangi lögreglu við skýrslutökur yfir árásarmanni og vitnum, og yfir því að einungis einn hafi verið ákærður. Var slíkum skilaboðum komið á framfæri við ýmsar stofnanir. Í dómnum kemur fram að rannsókn málsins hafi legið niðri í rúmlega níu mánuði, frá því skömmu eftir að árásin átti sér stað í apríl 2020 til janúar 2021. Aftur hafi verið gert hlé á rannsókninni í tvo mánuði nokkru síðar, og svo aftur í rúma sjö mánuði. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í málinu.Vísir/Vilhelm Í lok árs 2024 svaraði Ríkissaksóknari manninum og sagði að verulegir annmarkar hafi verið á rannsókn málsins og meðferð ákæruvalds. Rannsóknin hafi hvorki verið nægjanlega ítarleg né framkvæmd innan hæfilegs tíma. Lögregla og ákæruvald hefðu brugðist hlutverki sínu. Covid-afsökun haldi ekki vatni Maðurinn höfðaði mál gegn ríkinu, hvers dómur er hér til umfjöllunar, og vildi að skaðabótaábyrgð yrði viðurkennd. Málflutningur ríkisins var á þá leið að ekki væri deilt um það að rannsóknin hafi í einhverjum atriðum verið ólögmæt, en hún hafi hins vegar ekki verið saknæm, og ef hún teldist saknæm væri það vegna stórfellds gáleysis. Dómurinn féllst á síðari kostinn, að háttsemin hafi verið saknæm og falið í sér stórfellt gáleysi. Lögreglan mun hafa veitt þau svör að Covid-heimsfaraldurinn hafi sett strik í reikninginn. Að mati dómsins eru þær skýringar haldlausar. Hefði verið erfitt sama hvað Þá segir í dómnum að þótt tafir á skýrslutökum í málinu hafi tafist með óskiljanlegum hætti hafi ákæruvaldinu alltaf verið nokkur vafi á höndum varðandi það hverja ætti að ákæra í málinu, þar sem framburður vitna væri þvers og kruss um það hverjir tóku þátt í árásinni. Ekki sé hægt að fullyrða um hvort fleiri eða aðrir hefðu verið ákærðir hefði rannsókn málsins verið betri, eða þá hvort héraðsdómur hefði sakfellt fleiri. Dómurinn harðorður í garð lögreglu Að því sögðu komst dómurinn þó að þeirri niðurstöðu að ríkinu bæri að borga manninum eina milljón króna í bætur, sem og tvær milljónir í málskostnað. Dómurinn er harðorður um starfshætti lögreglu: „Starfshættir lögreglunnar í þessu máli lýsa skorti á skipulagi, stjórnunarvanda og skeytingarleysi gagnvart mikilvægum hagsmunum [mannsins] og almennings. Slík óskilvirkni í vinnubrögðum kalla á endanum á aukinn mannafla og kostnað og er til þess fallin að draga úr nauðsynlegu trausti til lögreglu.“ Veistu meira um málið? Eða ertu með aðrar ábendingar? Sendu okkur fréttaskot.
Dómsmál Lögreglumál Lögreglan Reykjavík Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Sjá meira