Yngstu fara flestar ferðir Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 7. júlí 2026 16:35 Eyjólfur Ármannsson er innviðaráðherra og fer með málefni umferðarmála. Vísir/anton brink Nær helmingur landsmanna fer tvær til þrjár ferðir í umferðinni á dag. Ferðatíðnin minnkar almennt með hækkandi aldri en þeir yngstu fara að meðaltali 4,6 ferðir í umferðinni á dag.
Þetta kemur fram í könnun á ferðavenjum Íslendinga sem var framkvæmd haustið 2025. Daglegar ferðir á mann eru 3,3 að meðaltali, samanborið við 3,2 ferðir árið 2022. Bíllinn er áfram ráðandi ferðamáti landsmanna en um 62 prósent allra ferða eru farnar sem ökumaður og mælist aukningin um þrjú prósentustig frá árinu 2022. 95 prósent hafa bíl til umráða og að meðaltali eru 1,7 bílar á hverju heimili en rúmur meirihluti heimila er með tvo bíla eða fleiri. Hlutfall rafmagnsbíla hefur nær tvöfaldast, úr tólf prósentum í 22. Á móti kemur hefur þeim sem nota strætó fjölgað talsvert milli kannana. Rúmlega 41 prósent landsmanna greiddi fyrir ferð með Strætó haustið 2025. Í Reykjavík hafa 58 prósent greitt fyrir strætóferð og meðaltalið á höfuðborgarsvæðinu er 43,7 prósent. Á landsbyggðarsvæðum er hlutfallið undir tuttugu prósentum. Skýr munur eftir svæðum Skýr ferðamunur er eftir svæðum þar sem Reykjavík sker sig úr með hæsta hlutfall gangandi ferða og hæsta hlutfall ferða með Strætó. Hlutfall ferða sem ökumaður er hæst á Suðurnesjum og í Hafnarfirði. „Þegar gögnin eru skoðuð eftir aldri má sjá að börn og ungmenni ganga mest og eru um 40% ferða hjá 6-17 ára farin fótgangandi. Notkun bíls eykst síðan hratt eftir að fólk fær bílpróf og er hægt meðal 35-64 ára, þar sem um 80% ferða eru farnar sem ökumaður í bíl,“ segir í tilkynningu á vef stjórnarráðsins þar sem helstu niðurstöður eru reifaðar. Vinsældir rafhlaupahjóla fara minnkandi þar sem árið árið 2022 var hlutfall heimila með að minnsta kosti eitt rafhlaupahjól 22 prósent en er nú rúmlega sextán prósent.
Samgöngumál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Bílar Hjólreiðar Strætó Umferð Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Fleiri fréttir „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Forystan sé búin að missa klefann Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Sjá meira