Hólmsteinn skriðinn úr tunnunni Sunna Sæmundsdóttir skrifar 18. júní 2026 19:11 Frá Hvalfirði í kvöld. Vísir/Bjarni Hvalveiðiskipið Hvalur 9 sigldi í dag úr höfn með mótmælanda um borð. Skipið er nú á leið inn Hvalfjörðinn og við fylgjumst með í beinni í spilaranum hér að neðan.
Hólmsteinn Harðarson kom sér fyrir í tunnu skipsins í dag í mótmælaskyni. Hann neitaði að fara út tunnunni og svo fór að skipið hélt af stað með hann um borð. Leiðin lá í Hvalfjörð og er skipið væntanlegt til hafnar á næstu mínútum. Í kvöldfréttum á Sýn var rætt við Völu Árnadóttur, formann Hvalavina, sem sagði að haft hefði verið samband við lögreglu sem er nú á svæðinu. Hún telji að óheimilt hafi verið að sigla með mótmælandann. „Mér skilst að þessi ákvörðun komi beint frá Kristjáni Loftssyni og að hann sjálfur hafi ekki haft samband við lögreglu áður en ákveðið var að sigla af stað með hann. Þannig hann bað ekki um aðstoð lögreglu við að fjarlægja þennan mann. Mér skilst á lögmönnum sem ég hef talað við að þetta brjóti gegn siglingalögum og þetta er bara mjög alvarlegt mál,“ sagði Vala. Áhöld eru þó uppi um hvort Hólmsteinn hafi verið skráður sem farþegi um borð áður en siglt var af stað. Hann var beðinn um persónupplýsingar og gaf þær upp en segist þó ekki hafa verið meðvitaður um að það væri í þeim tilgangi. Hér að neðan má sjá umfjöllun um málið í kvöldfréttum.
Hvalir Hvalveiðar Hvalfjarðarsveit Lögreglumál Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Sjá meira