„Ég elska þennan flugvöll“ Kristján Már Unnarsson skrifar 7. maí 2026 22:20 Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir, frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins, lýsir ást sinni á flugvellinum. Bjarni Einarsson Flugvöllurinn, flugið og flokkarnir er yfirskrift fundar sem hófst nú síðdegis á Hótel Loftleiðum á vegum Flugmálafélags Íslands. Þar voru fulltrúar allra framboða spurðir um afstöðuna sína til flugvallarins.
Í fréttum Sýnar mátti heyra nokkur svör en hjá fulltrúum flestra var línan sú að á meðan ekki fyndist annar jafngóður eða betri staður ætti flugvöllurinn að vera áfram í Vatnsmýri. Fulltrúi Pírata, Unnar Þór Sæmundsson, birtist sem ákafasti andstæðingur flugvallarins, hann vildi loka vellinum sem fyrst. Fulltrúi Vinstrisins, Líf Magneudóttir, lýsti sömuleiðis andstöðu við flugvöllinn, taldi ekki fullreynt með Hvassahraun en vildi annars flytja innanlandsflugið til Keflavíkur. Reykjavíkurflugvöllur fékk einnig ástarjátningu, eins og heyra má hér: „Ég elska þennan flugvöll. Ég elska hann og ég segi það við hvern þann sem vill heyra: Ég elska þennan flugvöll,“ sagði Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir, frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins, og bætti við: „Mér finnst ég oft vera svolítið stödd í leikhúsi fáránleikans þegar kemur að flugvellinum hérna í Vatnsmýrinni. Vegna þess að ég veit ekki um neinn flokk sem hefur opinberlega sagt á Alþingi að þau vilji splæsa í nýjan flugvöll,“ sagði Ragnhildur Alda. Ari Edwald, oddviti Miðflokksins.Bjarni Einarsson „Stefna Miðflokksins í málefnum flugvallarins er alveg skýr. Þessi flugvöllur verður ekki lagður niður nema annar innanlandsflugvöllur verði byggður áður. Og verður að hafa verið byggður áður en að tilveru þessa flugvallar gæti verið teflt í tvísýnu,“ sagði Ari Edwald, oddviti Miðflokksins. Margir biðu spenntir eftir að heyra svör Péturs Marteinssonar, oddvita Samfylkingarinnar. „Hins vegar er flugvöllurinn ekkert að fara. Þetta er ekki kosningamál núna, það er ekki búið að finna annan stað,“ sagði Pétur. Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar.Bjarni Einarsson „Hins vegar finnst mér að við eigum að halda áfram að leita til framtíðar. Þetta mun hins vegar ekkert gerast á næstunni. Á meðan flugvöllurinn er hér þá erum við að passa upp á hann,“ sagði Pétur. „Flugvöllurinn er þar sem hann er og er ekki að fara neitt. Það er útséð um Hvassahraun og ríkisstjórnin hefur engin áform um að byggja flugvöll þar, það birtist bara í fjármálaáætlun,“ sagði Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins. Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins.Bjarni Einarsson Nær ekkert hefur verið minnst á flugvöllinn í kosningabaráttunni. Hins vegar liggur fyrir að gildandi aðalskipulag Reykjavíkur gerir ráð fyrir að honum verði lokað árið 2032. Fundurinn var sendur út í beinu streymi á Vísi. Hér má sjá upptökuna.
Reykjavíkurflugvöllur Sveitarstjórnarkosningar 2026 Fréttir af flugi Borgarstjórn Skipulag Samgöngur Sjálfstæðisflokkurinn Tengdar fréttir Bein útsending: Flugvöllurinn, flugið og flokkarnir Flugmálafélag Íslands hefur boðað til opins fundar með fulltrúum stjórnmálaflokkana fyrir borgarstjórnarkosningar á Reykjavík Natura við Reykjavíkurflugvöll. Fundurinn hefst klukkan 17 og má sjá í beinni útsendingu á Vísi. 7. maí 2026 16:33 Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðið sem áformað hefur verið undir flugvöll í Hvassahrauni flokkast í nýrri skýrslu Veðurstofunnar undir mesta áhættusvæði hraunflæðis á Reykjanesskaga. Jafnframt fellur það innan svæða með líkur á gosopnun. 30. apríl 2026 11:13 Hyggst reisa nýja flugstöð og festa flugvöllinn í sessi Innviðaráðherra hyggst festa Reykjavíkurflugvöll í sessi og byggja nýja flugstöð. Forsætisráðherra segir ekki hægt að láta flugvöllinn grotna niður meðan ekki finnist aðrir kostir. Forstjóri Icelandair segir að ekki muni standa á félaginu að fara í samstarf við stjórnvöld um uppbyggingu. 9. desember 2025 20:20 Gangi í berhögg við samninga að festa Reykjavíkurflugvöll í sessi Borgarfulltrúi Samfylkingarinnar segir Samgönguáætlun ganga í berhögg við samninga Reykjavíkurborgar og stjórnvalda um að finna Reykjavíkurflugvelli nýjan stað. Borgin ætli enn að færa æfingaflug, einkaflug og þyrluflug úr Vatnsmýri en nú stendur til að byggja nýja flugstöð á vellinum. 7. desember 2025 07:07 Mest lesið Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Fleiri fréttir Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Sjá meira
Bein útsending: Flugvöllurinn, flugið og flokkarnir Flugmálafélag Íslands hefur boðað til opins fundar með fulltrúum stjórnmálaflokkana fyrir borgarstjórnarkosningar á Reykjavík Natura við Reykjavíkurflugvöll. Fundurinn hefst klukkan 17 og má sjá í beinni útsendingu á Vísi. 7. maí 2026 16:33
Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðið sem áformað hefur verið undir flugvöll í Hvassahrauni flokkast í nýrri skýrslu Veðurstofunnar undir mesta áhættusvæði hraunflæðis á Reykjanesskaga. Jafnframt fellur það innan svæða með líkur á gosopnun. 30. apríl 2026 11:13
Hyggst reisa nýja flugstöð og festa flugvöllinn í sessi Innviðaráðherra hyggst festa Reykjavíkurflugvöll í sessi og byggja nýja flugstöð. Forsætisráðherra segir ekki hægt að láta flugvöllinn grotna niður meðan ekki finnist aðrir kostir. Forstjóri Icelandair segir að ekki muni standa á félaginu að fara í samstarf við stjórnvöld um uppbyggingu. 9. desember 2025 20:20
Gangi í berhögg við samninga að festa Reykjavíkurflugvöll í sessi Borgarfulltrúi Samfylkingarinnar segir Samgönguáætlun ganga í berhögg við samninga Reykjavíkurborgar og stjórnvalda um að finna Reykjavíkurflugvelli nýjan stað. Borgin ætli enn að færa æfingaflug, einkaflug og þyrluflug úr Vatnsmýri en nú stendur til að byggja nýja flugstöð á vellinum. 7. desember 2025 07:07