Neytendur

„Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“

Freyja Þórisdóttir skrifar
Halldór Guðbjörnsson, skósmiður, segir frá því í kvöldfréttum Sýnar að 44 skósmiðir hafi starfað í Reykjavík þegar hann hóf að læra fagið.
Halldór Guðbjörnsson, skósmiður, segir frá því í kvöldfréttum Sýnar að 44 skósmiðir hafi starfað í Reykjavík þegar hann hóf að læra fagið. Skjáskot/Sýn

Neytendasamtökin vöktu athygli á erfiðri stöðu fyrir viðgerðarþjónustu hér á landi í ályktun í gær. Þau segja þjónustuna í hættu og kalla eftir því að stjórnvöld felli niður virðisaukaskatt á viðgerðum. 

 Formaður Neytendasamtakanna, Breki Karlsson, segir viðgerðarþjónustu vera í hættu á að þurrkast út. Þeir fáu sem bjóði upp á viðgerðir hér á landi berjist flestallir í bökkum enda sé staðan slæm.

Tómas Arnar Þorláksson, fréttamaður Sýnar, ræddi við Breka en hann náði einnig tali af Halldóri Guðbjörnssyni sem er einn þeirra örfáu sem enn starfa sem skósmiðir hér á landi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×