Hættum beit í bænum Davíð Arnar Stefánsson skrifar 10. apríl 2026 09:32 Í Hafnarfirði eru tvö beitarhólf – annars vegar á Krýsuvíkurheiði sunnan Suðurstrandarvegar, liðlega12 km2, og hins vegar á sveitarfélagamörkum Hafnarfjarðar og Grindavíkur sunnarlega í Sveifluhálsi, um þrisvar sinnum stærra eða liðlega 35 km2. Samkvæmt samningi við fjáreigendafélag Hafnarfjarðar, Garðabæjar og nágrennis um afnot af „Krýsuvíkurhólfinu“, til eins ár í senn, er gert ráð fyrir allt að 200 fjár á sumarbeit. Ekki er í gildi samningur um afnot af „Grindavíkurhólfinu“. Um það var aftur á móti gerður samningur 2004 til 20 ára um „gerð beitarhólfs“. Aðilar að samningnum voru Vegagerðin, Grindavíkurbær, Vatnsleysustrandarhreppur og Hafnarfjörður og tilgangur hans að stöðva lausagöngu búfjár og um leið auka umferðaröryggi. Jafnframt að skapa sátt um sauðfjárhald á Reykjanesi og um leið n.k. afnotasamningur af hólfinu. Hins vegar kemur þar ekki fram hámarksfjöldi fjár í hólfinu. Samkvæmt þessu og ef við gefum okkur að gert sé ráð fyrir sambærilegum fjölda fjár í báðum beitarhólfunum (þótt annað þeirra sé reyndar talsvert stærra) gæti verið allt að 400 kindur á sumarbeit í landi bæjarins. Hins vegar eru engir fjárbændur í Hafnarfirði. Allt fé á beit í bæjarlandinu er annað hvort úr Grindavík eða Garðabæ. Mynd tekin í beitarhólfi Hafnfirðinga sunnan Suðurstrandarvegar. Aðsend Samkvæmt Grólind – mat jarðvegs- og gróðurauðlindarinnar á Íslandi, samstarfsverkefnis Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, Bændasamtakanna og Lands og skógar, þá er ástandi beitarhólfanna best lýst þannig að landið sé almennt mjög rofið en inn á milli gróðureyjar þar sem virkni vistkerfanna sveiflast frá því að vera nokkur yfir í það að vera talsverð. Þetta er auðvitað ekki falleg lýsing á landinu og með hliðsjón af reglugerð um sjálfbæra landnýtingu þá falla bæði hólfin í flokk C eða land sem er í mjög slæmu ástandi og nýting á því telst ósjálfbær. Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að stór hluti beitarhólfanna telst almennt með nokkra eða talsverða virkni sem þýðir að enn er mögulegt að endurheimta landgæðin með landgræðslu. Af þessu má sjá, auk þess sem það blasir við þeim sem fara um Krýsuvík, að beit er með öllu ótæk á svæðinu og allra síst í þágu tómstundabænda úr nágrannasveitarfélögunum. Landið á skilið hvíld og aðstoð frá samfélaginu við græða sárin svo það geti endurheimt fyrra hreysti. Virk og heilbrigð vistkerfi eru lykillinn loftslagsvandanum, stærsta sameiginlega verkefni mannkyns, einnig okkar Hafnfirðinga. Það er fyrir löngu tímabært að Hafnafjörður segi upp samningum um afnot af beitarhólfum í bæjarlandinu eða öllu heldur endurnýi þá ekki enda útrunnir. Höfundur er landfræðingur formaður Vinstrisins í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hafnarfjörður Vegagerð Reykjanesbær Davíð Arnar Stefánsson Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar