Tvöfaldur verðmunur á Súðavíkurgöngum Kristján Már Unnarsson skrifar 30. mars 2026 21:33 Gangamunni Skutulsfjarðarmegin kæmi við Ísafjarðarflugvöll, yrði þessi leið valin. Verkís/Vegagerðin Tólf til fjórtán milljörðum króna munar í kostnaði eftir því hvaða leið verður valin fyrir jarðgöng milli Súðavíkur og Ísafjarðar. Nokkrir valkostir hafa verið til skoðunar um hvar göngin eigi að liggja. Í tillögu að nýrri samgönguáætlun eru þau í öðru til þriðja sæti ásamt Fjarðagöngum fyrir austan en á eftir Fljótagöngum.
Fjallað var um Súðavíkurgöng í kvöldfréttum Sýnar. Þar hafa hið minnsta sex jarðgangaleiðir verið til skoðunar til að losna við hina alræmdu Súðavíkurhlíð. Syðsti kosturinn eru 6,3 kílómetra göng innan úr Engidal í Skutulsfirði sem myndu opnast í Álftafirði innan við Súðavíkurþorp eða við bæinn Dvergastein. Síðan er þrenn göng, um eða yfir sex kílómetra löng, sem öll myndu liggja nokkurn veginn frá flugvellinum og opnast ýmist við Súðavíkurþorp eða rétt utan við það. Sex valkostir sem helst hafa verið til skoðunar.grafík/Hjalti Freyr Ragnarsson Loks eru hafa tvenn styttri göng utan við Súðavík verið til skoðunar, annarsvegar 2,5 kílómetra göng yfir í Arnardal í Skutulsfirði, og hinsvegar 2,3 kílómetra göng sem myndu sneiða framhjá hættulegustu snjóflóðastöðunum í Súðavíkurhlíð. Vegagerðin hefur núna fækkað valmöguleikunum niður í tvo. Eftir standa annarsvegar 2,3 kílómetra löng göng undir Súðavíkurhlíð. Með vegskálum eru þau talin kosta 10-11 milljarða króna, samkvæmt núvirtu kostnaðarmati Vegagerðarinnar. Valkostirnir tveir sem núna verði teknar til nánari greiningar.grafík/Hjalti Freyr Ragnarsson Hins vegar eru til skoðunar 6,7 kílómetra göng, sem talin eru kosta 23 til 24 milljarða króna. Þarna munar helmingi eða tólf til fjórtán milljörðum króna. Freyr Pálsson, sérfræðingur hjá Vegagerðinni, tekur þó fram að veruleg óvissa sé um kostnaðinn. Núna fari í hönd nánari greining og skoðun á þessum tveimur valkostum til að áætla betur kostnaðinn. Vegagerðin stefni svo að því næsta vetur að skila áliti sínu. Fyrir fjárveitingavaldið er freistandi að velja ódýrari göngin í gegnum Súðavíkurhlíð. Þá sitja hins vegar eftir varasamir snjóflóðastaðir í Kirkjubólshlíð í Skutulsfirði. Dýrari valkosturinn hefur þann stóra kost aukalega að hann styttir Djúpleiðina um 9,6 kílómetra og gerir Súðavík og raunar allan Álftafjörð nánast að úthverfi fyrir Ísafjörð. Súðavíkurmegin myndu göngin opnast ofan byggðarinnar í Nýju-Súðavík.Verkís/Vegagerðin Ef þau verða valin myndu þau opnast við Ísafjarðarflugvöll og tengjast þjóðveginum þar sem hann liggur á uppfyllingunni yfir Skutulsfjörð. Síðan kæmu tengivegir, bæði inn í Engidal og svo út með firði og að flugvellinum. Svona gæti tenging dýrari ganganna orðið við núverandi vegakerfi og flugvöllinn.grafík/Hjalti Freyr Ragnarsson Samkvæmt teikningu frá Verkfræðistofunni Verkís myndu göngin Súðavíkurmegin opnast fyrir ofan byggðina í nýju Súðavík, neðan við Sauradal. Hér sést hvernig vegurinn gæti legið frá gangamunna ofan Súðavíkur.Verkís/Vegagerðin Mynd af gangamunna Skutulsfjarðarmegin sýnir afstöðuna gagnvart Holtahverfi, flugvellinum og uppfyllingunni yfir Skutulsfjörð. Á henni sést hvernig aðkoman að göngunum gæti litið út séð frá bæjardyrum Ísfirðinga, verði sá valkostur ofan á. Jarðgöngin myndu opnast skammt frá flugstöð Ísafjarðar, ef dýrari kosturinn verður valinn.Verkís/Vegagerðin
Jarðgöng á Íslandi Vegagerð Samgöngur Samgönguáætlun Súðavíkurhreppur Ísafjarðarbær Tengdar fréttir Mikilvægast með jarðgöngum að losna við hættulegustu vegi Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra vísaði til náttúruvár þegar hann varði þá ákvörðun sína að setja Fljótagöng til Siglufjarðar í efsta sæti forgangslista næstu jarðganga. Á opnum fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í morgun bentu tveir þingmenn Norðausturkjördæmis hins vegar á að innan Fjallabyggðar væri jafnvel sterkari krafa um að fá ný Múlagöng vegna ítrekaðra snjóflóða í Ólafsfjarðarmúla. 19. mars 2026 12:10 Vestfirðingar sjá fram á þrenn ný jarðgöng Miklar vegabætur er ráðgerðar á Vestfjörðum á næstu fimmtán árum, þar á meðal þrenn ný jarðgöng, samkvæmt nýbirtri samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar. Þá verður Bíldudalur tengdur Dynjandisheiði með bundnu slitlagi. 11. desember 2025 21:51 Segir göng undir Fjarðarheiði ekki fjárhagslega forsvaranleg Ríkisstjórnin er einhuga um að breyta forgangsröðun jarðganga og setja Fljótagöng í fyrsta sæti og hafa þingflokkar stjórnarinnar samþykkt tillöguna. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að Fjarðarheiðargöng hafi ekki verið fjárhagslega forsvaranleg. 3. desember 2025 21:10 Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Fleiri fréttir Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur viðburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Sjá meira
Mikilvægast með jarðgöngum að losna við hættulegustu vegi Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra vísaði til náttúruvár þegar hann varði þá ákvörðun sína að setja Fljótagöng til Siglufjarðar í efsta sæti forgangslista næstu jarðganga. Á opnum fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í morgun bentu tveir þingmenn Norðausturkjördæmis hins vegar á að innan Fjallabyggðar væri jafnvel sterkari krafa um að fá ný Múlagöng vegna ítrekaðra snjóflóða í Ólafsfjarðarmúla. 19. mars 2026 12:10
Vestfirðingar sjá fram á þrenn ný jarðgöng Miklar vegabætur er ráðgerðar á Vestfjörðum á næstu fimmtán árum, þar á meðal þrenn ný jarðgöng, samkvæmt nýbirtri samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar. Þá verður Bíldudalur tengdur Dynjandisheiði með bundnu slitlagi. 11. desember 2025 21:51
Segir göng undir Fjarðarheiði ekki fjárhagslega forsvaranleg Ríkisstjórnin er einhuga um að breyta forgangsröðun jarðganga og setja Fljótagöng í fyrsta sæti og hafa þingflokkar stjórnarinnar samþykkt tillöguna. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að Fjarðarheiðargöng hafi ekki verið fjárhagslega forsvaranleg. 3. desember 2025 21:10