Ísa­fjarðar­bær

Ísa­fjarðar­bær

Mannfjöldi: 3.832 (2025). Flatarmál: 2.380 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Ísafjörður, Suðureyri, Flateyri, Þingeyri, Hnífsdalur.


Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Varnarsigur segir for­maður bæjar­ráðs Ísa­fjarðar

Vegagerðin hefur samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar gegn 1,7 milljarða króna niðurgreiðslu næstu fjögur ár. Það er ríflega helmings lækkun frá tilboði Icelandair, sem var upp á 3,5 milljarða króna, en á móti kemur að flugferðum er fækkað um 28 prósent. Formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar kveðst líta á þetta sem varnarsigur.

Innlent
Fréttamynd

Fólks­fjölgun fór langt fram úr spá á Ísa­firði

Fólksfjölgun var minni í fyrra en spár gerðu ráð fyrir og þannig náðist að vinna upp skuld í íbúðauppbyggingu. Enn eru þó langir biðlistar eftir leigu- og félagslegu húsnæði og mikil þörf á frekari uppbyggingu hjúkrunarrýma og leikskólaplássa. Þetta kemur fram í nýrri samantekt Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á húsnæðisáætlunum sveitarfélaga á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta gekk eins og í lyga­sögu“

Kristján Freyr Halldórsson, rokkstjóri Aldrei fór ég suður, segir hátíðin hafa gengið glimrandi vel í gær. Veðrið hafi leikið við gesti hátíðarinnar og von sé á stórskemmtun í kvöld þegar Joey Christ, Alaska1867 og Skítamórall stíga á svið.

Lífið
Fréttamynd

Tvö­faldur verð­munur á Súðavíkurgöngum

Tólf til fjórtán milljörðum króna munar í kostnaði eftir því hvaða leið verður valin fyrir jarðgöng milli Súðavíkur og Ísafjarðar. Nokkrir valkostir hafa verið til skoðunar um hvar göngin eigi að liggja. Í tillögu að nýrri samgönguáætlun eru þau í öðru til þriðja sæti ásamt Fjarðagöngum fyrir austan en á eftir Fljótagöngum.

Innlent
Fréttamynd

Svæði rýmt á Ísa­firði og beðið eftir ill­viðri

Hættustig er vegna snjóflóðahættu á Ísafirði og víðar á landinu er snjóflóðahætta. Þá er illviðri spáð víða um land í kvöld og á morgun. Rask verður á flugi næsta sólarhring og björgunarsveitir eru sem fyrr í viðbragðsstöðu. 

Veður
Fréttamynd

Mikil­vægast með jarð­göngum að losna við hættu­legustu vegi

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra vísaði til náttúruvár þegar hann varði þá ákvörðun sína að setja Fljótagöng til Siglufjarðar í efsta sæti forgangslista næstu jarðganga. Á opnum fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í morgun bentu tveir þingmenn Norðausturkjördæmis hins vegar á að innan Fjallabyggðar væri jafnvel sterkari krafa um að fá ný Múlagöng vegna ítrekaðra snjóflóða í Ólafsfjarðarmúla.

Innlent
Fréttamynd

Gagnheiðargöng verði sátta­leið Aust­firðinga

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur verið boðaður á opinn fund umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis á fimmtudag til að svara spurningum um forgangsröð jarðganga. Fjarðabyggð hefur kynnt þingnefndinni tillögu að sáttaleið á Austfjörðum.

Innlent
Fréttamynd

At­vinnu­húsnæði á Ísa­firði rýmt eftir snjó­flóð

Rýma þurfti atvinnuhúsnæði á Ísafirði eftir að snjóflóð féll í Seljalandshlíð í morgun. Áfram er í gildi óvissustig vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum og Norðurlandi og þá eru gular viðvaranir í gildi vegna veðurs á Vestanverðu landinu. 

Innlent
Fréttamynd

Önnur rúta fór út af og Hring­vegi lokað að hluta

Þrenging er á Hringvegi um Holtavörðuheiði þar sem rúta fór út af vegi í dag, að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar. Þá hefur Hringveginum verið lokað milli Hvammstanga og Víðigerðis þar sem bílar sitja fastir. Ríflega hundrað björgunarmenn hafa verið ræstir út síðasta sólarhring, að sögn Landsbjargar.

Veður
Fréttamynd

Snjó­flóð þveraði veginn þegar opið var fyrir um­ferð

Hættustig hefur verið sett á Flateyrarveg og veginn um Súðavíkurhlíð vegna snjóflóðahættu og óvissustig er víða í gildi. Hættustig er einnig í gildi vegna snjóflóðahættu á Ísafirði og nokkur fjöldi snjóflóða hefur fallið á norðanverðum Vestfjörðum og Tröllaskaga í morgun.

Innlent