Gervigreind leysir ekki mannlega þjónustu af hólmi – hún gerir hana verðmætari Ingibjörg Valdimarsdóttir skrifar 23. mars 2026 08:47 Gervigreind hefur á undanförnum árum umbreytt því hvernig fyrirtæki nálgast þjónustu. Sjálfvirk svör og spjallmenni hafa gert það að verkum að hægt er að afgreiða einfaldar fyrirspurnir hraðar en nokkru sinni fyrr. Fyrir fyrirtæki eykur þetta hagræðingu og bætir tímastjórnun. En í allri þessari þróun gleymist stundum eitt grundvallaratriði: fólk vill enn tala við fólk. Í þjónustu snýst ekki allt um hraða – heldur traust, skilning og tengingu. Þegar viðskiptavinur hefur samband er það sjaldnast eingöngu til að fá svar við einfaldri spurningu. Oft liggur eitthvað meira að baki eins og óvissa, þörf fyrir dýpri skilning og leiðbeiningar. Hvað kostar að missa mannlega snertingu í þjónustu? Samkvæmt alþjóðlegum könnunum vilja yfir 70% viðskiptavina tala við manneskju þegar málið er mikilvægt eða flókið. Þá sýna rannsóknir að fyrirtæki, sem veita góða persónulega þjónustu geta aukið tryggð viðskiptavina um tugi prósenta og hækkað líftímavirði þeirra verulega. Símsvörunarfyrirtæki sjá þetta daglega en þau sinna símsvörun og svörun tölvupósta og netspjalls fyrir fyrirtæki sem vilja ekki missa tengslin við viðskiptavini sína. Munurinn er skýr: Þegar viðskiptavinur fær strax sambandi við manneskju leysast mál hraðar. Misskilningur minnkar. Upplifunin verður jákvæð – jafnvel þegar vandamál koma upp. Á móti sjáum við dæmi þar sem fyrirtæki hafa farið „alla leið í sjálfvirkni“. Þar festast viðskiptavinir í spjallbottum, fá stöðluð svör og upplifa afskiptaleysi því enginn er raunverulega að hlusta. Afleiðingin?Ekki bara pirringur – heldur brostið traust og traust er dýrasta gjaldmiðillinn í þjónustu. Það er áhyggjuefni að mörg fyrirtæki horfa fyrst og fremst á gervigreind sem sparnaðartæki. Ef hægt er að fækka símtölum eða lækka þjónustukostnað um 20–30% virðist ákvörðunin einföld. En það er skammtímahugsun. Ef viðskiptavinur fær ekki þá þjónustu sem hann þarf, þá leitar hann annað. Það kostar margfalt meira að afla nýs viðskiptavinar en að halda í þann sem fyrir er. Þannig getur „sparnaðurinn“ fljótt breyst í tekjutap. Gervigreind er hins vegar ekki vandamálið. Hún er eitt öflugasta verkfæri sem fyrirtæki hafa fengið í áratugi. Hún getur m.a.: Svarað einföldum fyrirspurnum Flokkað erindi Tryggt að ekkert falli á milli skips og bryggju Hún hefur þó sín takmörk: Hún finnur ekki tóninn í rödd viðskiptavinar Hún skynjar ekki óvissu, pirring eða kvíða á sama hátt og manneskja Hún tekur ekki ábyrgð á samskiptum Það gerir fólk. Gervigreind getur tekið við einföldum og endurteknum verkefnum og þannig skapast rými fyrir fólk til að einbeita sér að því sem skiptir raunverulega máli: samskiptum, lausnamiðaðri hugsun og þjónustu sem skapar jákvæða upplifun. Í raun má segja að eftir því sem tæknin verður öflugri, því meira virði verður mannlegi þátturinn. Framtíð þjónustu snýst því ekki um að velja á milli gervigreindar og mannlegrar þjónustu.Hún snýst um að nýta gervigreind til að styrkja mannlega þjónustu. Þjónusta er ekki bara ferli. Hún er upplifun. Upplifun verður best þegar á bakvið hana er manneskja. Höfundur er framkvæmdastjóri Ritara. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gervigreind Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar