„Auðvitað mikið áfall“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 20. mars 2026 18:51 Úlfur Blandon, framkvæmdastjóri Fóðurblöndunnar. vísir/bjarni/vilhelm Karlmaður á fertugsaldri lést eftir öfluga sprengingu í húsnæði Fóðurblöndunnar og annar er alvarlega slasaður. Mennirnir voru að sinna viðhaldsvinnu við tóman tank þegar sprengingin varð. Framkvæmdastjóri Fóðurblöndunnar segir um áfall að ræða.
Lögreglu barst tilkynning um sprengingu á sjöttu hæð Fóðurblöndunnar upp úr klukkan sjö í morgun. Þegar viðbragðsaðilar mættu á vettvang varð fljótt ljóst að um alvarlegt slys væri að ræða. Sextán manns voru í byggingunni þegar sprengingin varð. Þrír voru fluttir á slysadeild, þar af voru tveir með áverka en annar lést af sárum sínum. Hafsteinn Viggó Hafsteinsson er starfsmaður Fóðurblöndunnar og einn þeirra sem voru á vettvangi þegar sprengingin varð. „Ég bara mætti í vinnuna og horfði á húsið eins og maður gerir alla daga. Síðan bara sprakk veggurinn af og það hrundi allt í sundur,“ sagði hann í samtali við fréttastofu í dag. Ryksprenging í tómum tanki Samkvæmt yfirlýsingu frá Fóðurblöndunni varð ryksprenging í tómum hráefnistanki þar sem viðhaldsvinna stóð yfir. Verktakar frá fyrirtækinu HD - Iðn og tækniþjónusta voru þar að vinnu. Úlfur Blandon, framkvæmdastjóri Fóðurblöndunnar, segir hug sinn vera hjá fjölskyldu þeirra sem lentu í slysinu. Spurður hvað ryksprenging sé segir hann: „Ryk er auðvitað bara mjög eldfimt efni og það þarf að gæta fyllstu varúðar við vinnu í kringum það. Þarna er verið að nota tæki og punkta í tank og laga. Ég í rauninni veit ekki nákvæmlega hvað gerist eða hvernig þetta getur gerst en það er eitthvað sem maður vill fá svör við. Fyrst og fremst voru þarna verktakar sem eru fengnir hérna inn til okkar til að laga tankinn og okkar fólk er auðvitað þeim innan handar.“ Umfang tjónsins óljóst Vinna er hafin við að loka gatinu á útvegg húsnæðisins til að koma í veg fyrir frekari skemmdir. Óljóst er hve umfangsmikið tjónið er fyrir fyrirtækið. „Fyrst og fremst vill maður auðvitað að fólkið sitt sé öruggt og að öllum hér líði vel. Það er auðvitað mikið áfall að fá að heyra það að það hafi orðið sprenging hjá fyrirtækinu sem við erum að vinna hjá. Þeir sem urðu fyrir miklu áfalli eru eðlilega farnir heim. Þeir sem gátu komið hér til starfa eru hér inni hjá okkur. Reksturinn og starfsemin er komin á eðlilegan stað. Við erum auðvitað að rannsaka það hvaða áhrif þetta hefur á framhaldið.“ Samkvæmt reglugerð um sprengfimt andrúmsloft á vinnustöðum ber atvinnurekendum að greina sprengjuhættu og vinna skriflega greinargerð. „Við auðvitað erum undir skýrum regluramma frá öllum aðilum sem koma að þessu máli. Eins og þeirra sem snúa að rekstri fyrirtækja á Íslandi og uppfyllum allar kröfur sem þarf að uppfylla. Hvernig verður brugðist við þessu slysi? Munuð þið endurskoða verkferla? „Auðvitað vill maður alltaf vera með verkferla í endurskoðun og passa að hlutirnir séu gerðir með réttum hætti. Við erum að því statt og stöðugt.“ Voveiflegar fregnir Forstjóri HD - iðn og tækniþjónustu gaf ekki kost á viðtali að svo stöddu en sagðist einbeita sér að því að hlúa að starfsfólki. Hugur hans sé hjá fjölskyldu og aðstandendum þess látna. Um mikið áfall sé að ræða fyrir allan starfshópinn. Framkvæmdastjóri Fóðurblöndunnar segir það hafa verið voveiflegt að fá fregnir af slysinu í morgun. „Ég er sennilega fyrsta símtal eftir lögreglu og sjúkraliða. Það er hringt í mig hérna á leiðinni til vinnu og ég fæ þær fréttir að hér hafi orðið sprenging. Það fyrsta sem maður hugsar er um fólkið sitt og hvernig þetta hefur komið til. Innnes tók virkilega vel á móti okkur og bjó til aðstöðu þar til að taka á móti öllu okkar fólki. Ég vil þakka þeim kærlega fyrir þann stuðning sem við fengum hjá þeim,“ segir Úlfur en heildsalan Innnes er með vöruhús rétt hjá Fóðurblöndunni.
Reykjavík Sprenging hjá Fóðurblöndunni Tengdar fréttir Lést í sprengingunni Karlmaður á fertugsaldri er látinn eftir öfluga sprengingu í húsnæði Fóðurblöndunnar að Korngörðum í Reykjavík í morgun. Tveir aðrir voru fluttir á slysadeild og annar þeirra er alvarlega slasaður. Talið er að um ryksprengingu í tómum tanki hafi verið að ræða. 20. mars 2026 15:14 Hafi orðið ryksprenging í tómum tanki í Fóðurblöndunni Sprengingin í Fóðurblöndunni í morgun varð í tómum tanki í húsnæði Fóðurblöndunnar. Í yfirlýsingu kemur fram að vinna hafi verið yfirstandandi við einn af þremur tómum tönkum. Í húsinu séu alls 45 tankar. Framkvæmdastjóri telur að um ryksprengingu hafi verið að ræða. 20. mars 2026 13:00 Þrír fluttir á slysadeild vegna sprengingar í Korngörðum Lögregla segir vinnuslys í Fóðurblöndunni í Korngörðum í Reykjavík alvarlegan atburð. Þrír hafa verið fluttir á slysadeild og fólki einnig sinnt á staðnum. Slökkvilið var kallað út í morgun og er töluverður viðbúnaður á svæðinu. 20. mars 2026 07:51 Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira
Lést í sprengingunni Karlmaður á fertugsaldri er látinn eftir öfluga sprengingu í húsnæði Fóðurblöndunnar að Korngörðum í Reykjavík í morgun. Tveir aðrir voru fluttir á slysadeild og annar þeirra er alvarlega slasaður. Talið er að um ryksprengingu í tómum tanki hafi verið að ræða. 20. mars 2026 15:14
Hafi orðið ryksprenging í tómum tanki í Fóðurblöndunni Sprengingin í Fóðurblöndunni í morgun varð í tómum tanki í húsnæði Fóðurblöndunnar. Í yfirlýsingu kemur fram að vinna hafi verið yfirstandandi við einn af þremur tómum tönkum. Í húsinu séu alls 45 tankar. Framkvæmdastjóri telur að um ryksprengingu hafi verið að ræða. 20. mars 2026 13:00
Þrír fluttir á slysadeild vegna sprengingar í Korngörðum Lögregla segir vinnuslys í Fóðurblöndunni í Korngörðum í Reykjavík alvarlegan atburð. Þrír hafa verið fluttir á slysadeild og fólki einnig sinnt á staðnum. Slökkvilið var kallað út í morgun og er töluverður viðbúnaður á svæðinu. 20. mars 2026 07:51