Hafi orðið ryksprenging í tómum tanki í Fóðurblöndunni Lovísa Arnardóttir skrifar 20. mars 2026 13:00 Vinna er hafin við viðgerð samkvæmt yfirlýsingu. Vísir/Vilhelm Sprengingin í Fóðurblöndunni í morgun varð í tómum tanki í húsnæði Fóðurblöndunnar. Í yfirlýsingu kemur fram að vinna hafi verið yfirstandandi við einn af þremur tómum tönkum. Í húsinu séu alls 45 tankar. Framkvæmdastjóri telur að um ryksprengingu hafi verið að ræða. „
Verið var að vinna við einn tóma tankinn þegar varð, að því er virðist, ryksprenging í tankinum. Stórt gat kom efst á útvegg húsnæðisins nálægt þeim stað þar sem unnið var að viðgerðinni,“ segir í yfirlýsingunni sem er undirrituð af Úlfi Blandon framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Eins og fram hefur komið slösuðust þrír í sprengingunni, þar af einn alvarlega. Mikill viðbúnaður var á vettvangi í morgun. Í yfirlýsingu kemur fram að strax og sprengingin varð hafi verið hafist handa við rýmingu en fram hefur komið að alls hafi sextán verið í húsinu þegar sprengingin varð klukkan 7.30 í morgun. Í yfirlýsingunni segir að strax verði hafin vinna við að loka gatinu á útvegg húsnæðisins sem myndaðist við sprenginguna til að koma í veg fyrir frekari skemmdir. Húsið afhent á ný klukkan 11 „Um klukkan ellefu afhentu lögregla og slökkvilið tryggingafélagi Fóðurblöndunnar húsnæðið sem skipaði framkvæmdastjóra Fóðurblöndunnar þegar í stað verkstjóra á staðnum þar sem fram undan eru viðgerðir til að koma allri starfsemi í samt lag á ný. Skrifstofa félagsins hefur verið opnuð, starfsfólk tekið til starfa og iðnaðarmenn beðnir til að hefja viðgerðir,“ segir í yfirlýsingunni. Þá kemur fram að unnið sé að því að ræða við allt starfsfólk og að þeim standi til boða áfallahjálp á vegum Rauða krossins. Þá sé unnið að því að hafa samband við viðskiptavini sem eigi von á fóðursendingu. „Fóðurblandan vill koma á framfæri kærum þökkum til stjórnenda og starfsfólks Innnes hf. sem skutu skjólshúsi yfir starfsfólk félagsins strax í morgun og veittu þeim aðgang að aðstöðu til að sinna nauðsynlegum verkefnum í þágu viðskiptavina. Enn fremur er almannaþjónustu landsins; lögreglu, slökkviliði, sjúkraflutningafólki og starfsfólki Rauða krossins, þökkuð hröð og fumlaus viðbrögð við slysinu,“ segir að lokum.
Lögreglumál Sprenging hjá Fóðurblöndunni Slökkvilið Reykjavík Tengdar fréttir Þrír fluttir á slysadeild vegna sprengingar í Korngörðum Lögregla segir vinnuslys í Fóðurblöndunni í Korngörðum í Reykjavík alvarlegan atburð. Þrír hafa verið fluttir á slysadeild og fólki einnig sinnt á staðnum. Slökkvilið var kallað út í morgun og er töluverður viðbúnaður á svæðinu. 20. mars 2026 07:51 Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Fleiri fréttir Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Sjá meira
Þrír fluttir á slysadeild vegna sprengingar í Korngörðum Lögregla segir vinnuslys í Fóðurblöndunni í Korngörðum í Reykjavík alvarlegan atburð. Þrír hafa verið fluttir á slysadeild og fólki einnig sinnt á staðnum. Slökkvilið var kallað út í morgun og er töluverður viðbúnaður á svæðinu. 20. mars 2026 07:51