„Ísak getur verið okkar framtíðar markvörður“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. mars 2026 14:00 Ísak Steinsson, sem hefur alið manninn í Noregi alla sína tíð, kemur aftur inn í íslenska landsliðshópinn. vísir/anton Snorri Steinn Guðjónsson gerir fáar breytingar á íslenska karlalandsliðinu fyrir vináttulandsleikina gegn Svíþjóð síðar í þessum mánuði. Hann segir tvo af þeim leikmönnum sem koma inn í íslenska hópinn, Ísak Steinsson og Reyni Þór Stefánsson, hafa spilað vel eftir áramót. Ísland mætir Svíþjóð í tveimur vináttulandsleikjum 19. og 21. þessa mánaðar. Þetta eru fyrstu leikir íslenska liðsins síðan á Evrópumótinu þar sem það endaði í 4. sæti. Hópurinn gegn Svíum: Markmenn: Björgvin Páll Gústavsson, Valur (296/26) Ísak Steinsson, Drammen (3/0) Viktor Gísli Hallgrímsson, FC Barcelona (83/2) Aðrir leikmenn: Arnar Freyr Arnarsson, Melsungen (116/121) Einar Þorsteinn Ólafsson, Hamburg (34/8) Elliði Snær Viðarsson, Gummersbach (73/170) Elvar Örn Jónsson, Magdeburg (96/217) Gísli Þorgeir Kristjánsson, Magdeburg (84/205) Haukur Þrastarson, Rhein-Neckar Löwen (56/78) Janus Daði Smárason, Pick Szeged (109/206) Orri Freyr Þorkelsson, Sporting (41/142) Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (67/213) Reynir Þór Stefánsson, Melsungen (1/2) Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad (86/230) Stiven Tobar Valencia, Benfica (22/27) Teitur Örn Einarsson, Gummersbach (56/48) Viggó Kristjánsson, Erlangen (82/248) Ýmir Örn Gíslason, Göppingen (117/48) Þorsteinn Leó Gunnarsson, Porto (25/39) Þrír íslenskir leikmenn skoruðu tíu mörk eða meira í þýsku úrvalsdeildinni um helgina og Snorri segist sáttur með hvernig leikmenn íslenska liðsins koma undan Evrópumótinu. „Það sem ég hef séð, og ég fylgist vel með þeim, þá er bara ánægður með það. Þeir virðast allir vera við hestaheilsu en auðvitað veit maður aðeins meira heldur en kannski aðrir og það eru hnökrar hér og þar. En núna er samt farið að nálgast þann tímapunkt að hlutirnir eru að gerast í öllum deildum í Evrópu. Þá eru yfirleitt góðir leikmenn bara klárir og eru á toppa á þessum tíma þannig að ef þeir standa sig þá kemur þér ekkert eitthvað svakalega á óvart,“ sagði Snorri. Hefur nýtt tækifærin sín hjá Melsungen vel Reynir er kominn á fulla ferð með Melsungen eftir að hafa glímt við veikindi fyrir áramót. Snorri kveðst sáttur með stöðuna á honum og segir hann vera framtíðarmann í landsliðinu. Reynir kemur inn í íslenska hópinn í staðinn fyrir Andra Má Rúnarsson sem var með á EM. „Mér finnst hann auðvitað fyrst og fremst vera góður og hafa spilað vel þegar hann hefur fengið tækifæri. Það er rétt að hann hefur þurft að glíma við töluvert mótlæti á sínu fyrsta tímabili í atvinnumennsku. Hann var með okkur síðasta vor og stóð sig frábærlega með Fram. Ég lít á hann sem einn af þessum leikmönnum sem eru framtíðarmenn og hann kemur svolítið inn í þetta hlutverk sem Andri Már var í á EM,“ sagði Snorri. Reynir Þór Stefánsson (til vinstri) varð Íslandsmeistari með Fram síðasta vor, áður en hann hélt utan til Þýskalands.vísir/Anton „Ég er líka aðeins að hugsa lengra fram í tímann, og kannski líka með maí-gluggann í huga, að hann komist aðeins inn í hlutina og fái meiri tilfinningu fyrir því sem við erum að gera. Hann er partur af því að reyna aðeins að stækka hópinn í þessum glugga,“ sagði Snorri en Ísland mætir svo Egyptalandi ytra í tveimur vináttuleikjum í maí. Langaði að sjá Ísak aftur Ísak, sem ver mark Drammen í Noregi, kemur aftur inn í íslenska hópinn fyrir Einar Baldvin Baldvinsson sem var þriðji markvörður Íslands í aðdraganda EM. „Mér finnst hann hafa staðið sig vel og spilað vel, sérstaklega eftir áramót. Hann hefur áður verið með okkur í þessu þriðja markmannshlutverki. Við prófuðum Ágúst Elí [Björgvinsson] um daginn og Einar Baldvin núna í janúar og fyrir mig er bara gott og fínt að fá tilfinningu fyrir þeim,“ sagði Snorri. Snorri Steinn Guðjónsson hlakkar til að sjá Ísak og Reyni aftur með landsliðinu.vísir/sigurjón „Mig langaði bara að sjá Ísak aftur. Hann er ekki búinn að vera með okkur í síðustu tveimur gluggum og við teljum hann vera efnilegan og geti verið okkar framtíðar markvörður. Fyrst og fremst var þetta bara vegna hans frammistöðu eftir áramót sem mér fannst að hann ætti skilið að vera valinn.“ Ásamt Ísaki eru Viktor Gísli Hallgrímsson og Björgvin Páll Gústavsson markverðir í íslenska hópnum sem hefur æfingar á mánudaginn kemur. Landslið karla í handbolta Mest lesið Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira
Hópurinn gegn Svíum: Markmenn: Björgvin Páll Gústavsson, Valur (296/26) Ísak Steinsson, Drammen (3/0) Viktor Gísli Hallgrímsson, FC Barcelona (83/2) Aðrir leikmenn: Arnar Freyr Arnarsson, Melsungen (116/121) Einar Þorsteinn Ólafsson, Hamburg (34/8) Elliði Snær Viðarsson, Gummersbach (73/170) Elvar Örn Jónsson, Magdeburg (96/217) Gísli Þorgeir Kristjánsson, Magdeburg (84/205) Haukur Þrastarson, Rhein-Neckar Löwen (56/78) Janus Daði Smárason, Pick Szeged (109/206) Orri Freyr Þorkelsson, Sporting (41/142) Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (67/213) Reynir Þór Stefánsson, Melsungen (1/2) Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad (86/230) Stiven Tobar Valencia, Benfica (22/27) Teitur Örn Einarsson, Gummersbach (56/48) Viggó Kristjánsson, Erlangen (82/248) Ýmir Örn Gíslason, Göppingen (117/48) Þorsteinn Leó Gunnarsson, Porto (25/39)
Landslið karla í handbolta Mest lesið Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira