Handbolti

Ómar á fæðingar­deild en Snorri valdi sinn sterkasta hóp

Sindri Sverrisson skrifar
Viktor Gísli Hallgrímsson var lykilmaður í sigrinum magnaða gegn Svíum á EM.
Viktor Gísli Hallgrímsson var lykilmaður í sigrinum magnaða gegn Svíum á EM. VÍSIR/VILHELM

Snorri Steinn Guðjónsson valdi sinn sterkasta leikmannahóp, úr þeim hópi sem stóð til boða, fyrir komandi vináttulandsleiki við Svíþjóð í handbolta í þessum mánuði.

Ísland mætir Svíþjóð 19. og 21. mars hér á landi, á Hlíðarenda og í Kaplakrika, í fyrstu leikjunum eftir að Ísland náði 4. sæti á EM. Svíar koma hingað til lands í hefndarhug eftir skellinn gegn Íslandi á mótinu.

Hópurinn sem mætir Svíum.Skjáskot

Snorri getur þó ekki nýtt krafta Ómars Inga Magnússonar en kona hans á von á barni í þessum mánuði. Þá er Bjarki Már Elísson búinn að vera að glíma við meiðsli og er ekki með en Stiven Valencia kemur í hans stað í vinstra hornið.

Elvar Örn Jónsson er hins vegar í hópnum en hann er að komast af stað að nýju eftir meiðslin á EM.

Reynir Þór Stefánsson fær nú sæti í hópnum, á kostnað Andra Más Rúnarssonar. Sigvaldi Björn Guðjónsson kemur inn í hægra hornið að nýju og Ísak Steinson er þriðji markvörðurinn í hópnum að þessu sinni.

Íslenski hópurinn kemur saman til æfinga 16. mars og mun stuðningsmönnum gefast kostur á að hitta leikmenn á sérstökum viðburði fyrir leikina.

Hópurinn gegn Svíum:

Markmenn:

Björgvin Páll Gústavsson, Valur (296/26)

Ísak Steinsson, Drammen (3/0)

Viktor Gísli Hallgrímsson, FC Barcelona (83/2)

Aðrir leikmenn:

Arnar Freyr Arnarsson, Melsungen (116/121)

Einar Þorsteinn Ólafsson, Hamburg (34/8)

Elliði Snær Viðarsson, Gummersbach (73/170)

Elvar Örn Jónsson, Magdeburg (96/217)

Gísli Þorgeir Kristjánsson, Magdeburg (84/205)

Haukur Þrastarson, Rhein-Neckar Löwen (56/78)

Janus Daði Smárason, Pick Szeged (109/206)

Orri Freyr Þorkelsson, Sporting (41/142)

Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (67/213)

Reynir Þór Stefánsson, Melsungen (1/2)

Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad (86/230)

Stiven Tobar Valencia, Benfica (22/27)

Teitur Örn Einarsson, Gummersbach (56/48)

Viggó Kristjánsson, Erlangen (82/248)

Ýmir Örn Gíslason, Göppingen (117/48)

Þorsteinn Leó Gunnarsson, Porto (25/39)


Tengdar fréttir

Bein útsending: Fyrsti fundur Snorra eftir EM

Vísir er með beina útsendingu frá blaðamannafundi HSÍ þar sem landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson og landsliðsmarkvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson fara yfir ýmis mál. Fram undan eru leikir við Svía í hefndarhug.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×