Sjávartengd nýsköpun skilar þjóðinni milljörðum Þorsteinn Másson skrifar 4. mars 2026 07:03 Nýlega var greint frá því að íslenska ríkið muni fá um 40 milljarða króna eingreiðslu í kjölfar sölu á hugverkaréttindum Kerecis til danska fyrirtækisins Coloplast. Skattur vegna sölunnar verður greiddur í einu lagi í haust og heimild til að dreifa greiðslum yfir sjö ár verður ekki nýtt. Eingreiðslan hefur veruleg áhrif á ríkisfjármálin. Fjárlög fyrir árið 2026 gerðu ráð fyrir 28 milljarða króna halla, en með greiðslunni mun hallinn snúast í um 12 milljarða króna afgang. Þetta sýnir svart á hvítu hversu miklum verðmætum nýsköpun getur skilað samfélaginu. En Kerecis féll ekki af himnum ofan. Fyrirtækið byggist á íslensku hugviti, þrautseigju og skynsamlegri nýtingu á íslenskri sjávarauðlind. Stofnandi Kerecis, Guðmundur Fertram, hefur sagt að stuðningur og áhugi öflugra sjávarútvegsfyrirtækja hafi skipt miklu máli í upphafi. Samspil hefðbundins sjávarútvegs, frumkvöðlastarfs og rannsókna varð að alþjóðlegu fyrirtæki sem nú skilar samfélaginu tugmilljörðum króna í skatttekjur og skapar verðmæt störf. Þetta er kjarninn í sjávartengdri nýsköpun: að nýta þekkingu, slagkraft, hráefni og reynslu úr sjávarútvegi til að skapa nýjar afurðir og ný verðmæti. Ávinningurinn birtist ekki aðeins í auknum útflutningi heldur einnig í störfum, skatttekjum og sterkari stoðum undir íslenskt hagkerfi. Til að hámarka líkur á fleiri „Kerecis-sögum“ í framtíðinni þurfum við að tryggja samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs. Sterk og arðbær atvinnugrein er ein lykilforsenda þess að sjávartengd nýsköpun blómstri. Nýsköpun sem byggist á skynsamlegri nýtingu auðlinda er ekki hliðargrein eða heppni. Hún er framhald af þeirri þekkingu og þeirri verðmætasköpun sem byggst hefur upp í kringum sjávarauðlindina í áratugi. Dæmið um Kerecis sýnir að þegar rétt er haldið á málum getur ávinningurinn orðið gríðarlegur fyrir samfélagið, fyrirtækin og ríkissjóð. Höfundur er sérfræðingur hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjávarútvegur Nýsköpun Mest lesið Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Nýlega var greint frá því að íslenska ríkið muni fá um 40 milljarða króna eingreiðslu í kjölfar sölu á hugverkaréttindum Kerecis til danska fyrirtækisins Coloplast. Skattur vegna sölunnar verður greiddur í einu lagi í haust og heimild til að dreifa greiðslum yfir sjö ár verður ekki nýtt. Eingreiðslan hefur veruleg áhrif á ríkisfjármálin. Fjárlög fyrir árið 2026 gerðu ráð fyrir 28 milljarða króna halla, en með greiðslunni mun hallinn snúast í um 12 milljarða króna afgang. Þetta sýnir svart á hvítu hversu miklum verðmætum nýsköpun getur skilað samfélaginu. En Kerecis féll ekki af himnum ofan. Fyrirtækið byggist á íslensku hugviti, þrautseigju og skynsamlegri nýtingu á íslenskri sjávarauðlind. Stofnandi Kerecis, Guðmundur Fertram, hefur sagt að stuðningur og áhugi öflugra sjávarútvegsfyrirtækja hafi skipt miklu máli í upphafi. Samspil hefðbundins sjávarútvegs, frumkvöðlastarfs og rannsókna varð að alþjóðlegu fyrirtæki sem nú skilar samfélaginu tugmilljörðum króna í skatttekjur og skapar verðmæt störf. Þetta er kjarninn í sjávartengdri nýsköpun: að nýta þekkingu, slagkraft, hráefni og reynslu úr sjávarútvegi til að skapa nýjar afurðir og ný verðmæti. Ávinningurinn birtist ekki aðeins í auknum útflutningi heldur einnig í störfum, skatttekjum og sterkari stoðum undir íslenskt hagkerfi. Til að hámarka líkur á fleiri „Kerecis-sögum“ í framtíðinni þurfum við að tryggja samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs. Sterk og arðbær atvinnugrein er ein lykilforsenda þess að sjávartengd nýsköpun blómstri. Nýsköpun sem byggist á skynsamlegri nýtingu auðlinda er ekki hliðargrein eða heppni. Hún er framhald af þeirri þekkingu og þeirri verðmætasköpun sem byggst hefur upp í kringum sjávarauðlindina í áratugi. Dæmið um Kerecis sýnir að þegar rétt er haldið á málum getur ávinningurinn orðið gríðarlegur fyrir samfélagið, fyrirtækin og ríkissjóð. Höfundur er sérfræðingur hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar