Íslendingar geti verið stoltir af stuðningnum við Úkraínumenn Oddur Ævar Gunnarsson og Samúel Karl Ólason skrifa 24. febrúar 2026 17:18 Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. Vísir Forsætisráðherra Íslands segir að þó stuðningur Íslands við Úkraínu nemi ekki háum upphæðum í stóru myndinni séu þær hlutfallslega háar og Íslendingar geti verið stoltir af stuðningi sínum við baráttu Úkraínumanna fyrir eigin fullveldi. Ráðherrann var í dag viðstödd minningarathafnir íKænugarði í tilefni af því að fjögur ár eru frá því að Rússar réðust inn í landið. „
Þetta er auðvitað einstök upplifun að vera hérna,“ segir Kristrún Frostadóttir í samtali við fréttastofu. Hún segir það að sama skapi yfirþyrmandi að vera stödd þar sjálf í annað sinn og ömurlegt að vera á fjórða ári stríðsins. „Það er líka sérstök upplifun að átta sig á því að á þessu ári þá hafa Rússar náð að bæta við sig innan við eitt prósent af landsvæði en hafa misst um hálfa milljón manna og auðvitað líka mjög margir fallnir af hálfu Úkraínumanna. Þannig að það er auðvitað það sem er sorglegt og yfirþyrmandi við þetta, en Úkraínumenn eru að komast á betri stað og það er eftir því tekið.“ Klippa: Kristrún svarar spurningum í Kænugarði Verði að hlusta á óskir Úkraínumanna Fram hefur komið að Kristrún muni einnig funda með Volodómír Selenskí Úkraínuforseta ásamt leiðtogum hinna Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. Kristrún segir Ísland í fyrra hafa stutt við Úkraínumenn þegar kemur að sprengjuleit og eyðingu þeirra. „Og við vorum líka að fara inn í þjálfunarverkefni á vegum NATO, eins sérstakar beiðnir af varnartengdum búnaði sem var að koma til NB8 landanna, það er að segja Norðurlandanna og Eystrasaltslandanna, og við vitum að þetta virkaði og við þurfum að hlusta á Úkraínufólk. Og þess vegna erum við fyrst og fremst að einbeita okkur að þessum verkefnum líka aftur núna, bara það sem gekk í fyrra,“ segir Kristrún. „Og hefur skilað sér og skilað Úkraínumönnum í sterkari stöðu núna en þeir voru í fyrra. En síðan erum við líka að bæta við stuðningi á sviði orkumála vegna þess að þau hafa fundið hræðilega fyrir því að það er sérstaklega verið að gera árásir á orkuinnviði hérna.“ Hlutfallslega háar upphæðir Íslendingar hafa sem dæmi gefið milljarð til uppbyggingar á loftvörnum í Úkraínu. Í stríði líkt og þessu getur það þó dugað skammt en Úkraínumenn eyddu sem dæmi tólf milljörðum króna í loftvarnir einungis eina nótt í janúar. Selenskí hefur kallað eftir meiru, er það eitthvað sem kemur til greina af okkar hálfu? „Við erum auðvitað að vinna eftir þingsályktunartillögu á vegum Alþingis sem var samþykkt af öllum flokkum á síðasta kjörtímabili og erum með þær upphæðir sem að við erum að leggja til inn í þessa baráttu í takt við það. Við erum að gefa í kringum sex milljarða núna á þessu ári, sem er bara algjörlega í takt við samþykktir Alþingis, en það er að fara inn í vel valin verkefni sem skila sér og já, þetta eru kannski lágar upphæðir í stóru myndinni, en sem hlutfall er þetta hátt og við getum verið stolt af því að við séum að styðja við Úkraínumenn. Þeir taka eftir því og það munar um það.“
Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Utanríkismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Íslendingar erlendis Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Fleiri fréttir Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Sjá meira