Sturla sturlaður af sorg og viðurkenndi framhjáhald í beinni Valur Páll Eiríksson skrifar 10. febrúar 2026 15:48 Sturla Holm Lægreid segist hafa gert verstu mistök lífs síns og að undanfarin vika hafi verið hans versta á ævinni. Harry How/Getty Images Viðtal við Sturla Holm Lægreid, bronsverðlaunahafa á Vetrarólympíuleikunum, tók óvænta stefnu. Hann viðurkenndi framhjáhald og segir undanfarna viku hafa verið hans verstu á ævinni.
Norðmaðurinn Lægreid hlaut brons í skíðaskotfimi í dag. Þetta eru fyrstu verðlaun hins 28 ára gamla Lægreid á leikunum en hann vann gull í liðakeppni á leikunum í Peking fyrir fjórum árum. Hann var tekinn tali af norska ríkismiðlinum NRK eftir afrekið en hann vildi ræða allt annað en afrek sitt eða bronsið. „Það er manneskja sem mig langar að deila þessu með, sem er líklega ekki að horfa í dag. Fyrir sex mánuðum síðan hitti ég ást lífs mín. Fallegustu og góðhjörtuðustu manneskju í heimi. Fyrir þremur mánuðum síðan gerði ég stærstu mistök lífs míns og hélt framhjá henni,“ „Ég sagði henni frá því fyrir viku síðan. Þetta hefur verið versta vika lífs míns,“ sagði hann við NRK með tárin í augunum. Hann skýrði ákvörðun sína hvað viðtal dagsins varðar svo frekar: „Þetta er eitthvað sem ég ákvað í gærkvöldi að ég myndi segja. Sama hvernig það færi. Ég vona að þetta eyðileggi ekki daginn fyrir Johan (Botn, sigurvegara í greininni). Að ég steli athyglinni frá honum,“ segir Lægreid og bætir við: „Ég vona að ég geri heldur ekki illt verra fyrir hana heima. Þetta er eins konar ástarjátning, að fremja félagslegt sjálfsvíg í sjónvarpinu. En það er bara hún sem ég vil. Svo þetta er skref í átt að því að fá nýtt tækifæri.“ Myndskeið af viðtalinu má sjá hér.
Skíðaíþróttir Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Noregur Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Györ - Víkingur | Víkingar stefna á aðra umferðina Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Fótbolti Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu Fótbolti Fleiri fréttir KSÍ ætlar ekki að láta gervigreindina koma í stað starfsfólks Stjarnan - Þór/KA | Akureyringar á uppleið „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Györ - Víkingur | Víkingar stefna á aðra umferðina Frábær lokakafli dugði ekki til „Fólk meiðist og aðrir þurfa að taka við“ Virkar eins og forfallakennari Willum hrifinn af norska módelinu Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Mbappé klár í slaginn en Spánverjar líklegri til sigurs Bróðir Yamals slær í gegn á HM Conor vill berjast aftur eftir 69 sekúndna bardagann Sjáðu dramatíkina í endurkomusigri Blika Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu „Þetta mun breyta öllu fyrir okkur“ Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Rice búinn að hrista af sér magakveisuna og getur byrjað gegn Argentínu Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Dagskráin: Halda botnliðin áfram að bíta frá sér? Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Fylkismenn keyrðu yfir Vestra í upphafi leiks Frábært að koma úr meiðslum og skora sitt fyrsta mark Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Sjá meira