Bannað að hafa hjálm sem sýnir látin fórnarlömb Rússa Sindri Sverrisson skrifar 10. febrúar 2026 15:17 Hjálmur Vladyslav Heraskevych sýndi látin fórnarlömb innrásar Rússa í Úkraínu. Getty/Andrew Milligan Úkraínski Ólympíufarinn Vladyslav Heraskevych ætlaði að gera sitt til að minnast landa sinna sem hafa verið drepnir frá því að innrás Rússa hófst. Alþjóða Ólympíusambandið (IOC) hefur hins vegar bannað honum það.
Heraskevych hefur á æfingum sínum í Cortina, fyrir keppni á magasleða á Vetrarólympíuleikunum, verið með sérstakan hjálm með myndum af látnum fórnarlömbum innrásar Rússa. IOC segir hjálminn hins vegar stangast á við reglur leikanna en hefur leyft Heraskevych að vera með svart armband til minningar um fórnarlömbin. „Hjarta mitt er í molum“ Í samtali við Reuters segir sleðakappinn vera eyðilagður vegna ákvörðunarinnar. Á myndunum á hjálminum mátti sjá íþróttafólk á borð við lyftingastelpuna Alinu Peregudova, hnefaleikamanninn Pavlo Ishchenko og íshokkímanninn Oleksiy Loginov. Sumt af þessu fólki átti í vinasambandi við Heraskevych. „Hjarta mitt er í molum yfir þessari ákvörðun. Þarna finnst mér IOC svíkja þetta íþróttafólk sem var hluti af Ólympíuhreyfingunni, með því að ekki megi minnast þess á íþróttvettvangi sem það mun aldrei fá að stíga inn á,“ sagði Heraskevych á Instagram. Hann fullyrti að IOC hefði í gegnum tíðina leyft sams konar leiðir til að minnast fólks en að nýjar reglur giltu varðandi Úkraínu. View this post on Instagram A post shared by VLADYSLAV HERASKEVYCH OLY (@heraskevychvladyslav) Í reglum IOC segir að ekki megi sýna neinn „pólitískan, trúarlegan eða kynþáttatengdan áróður á Ólympíusvæðinu eða leikvöngum“. Heraskevych segist ætla að virða ákvörðun IOC en vill um leið gera sitt besta til að vekja fólk til umhugsunar um að stríðið í Úkraínu geysar enn. Mark Adams, talsmaður IOC, segir sambandið skilja ósk Heraskevych en að allt íþróttafólk eigi að fá að keppa á leikunum án þess að pólitísk skilaboð hafi þar áhrif. „Við erum með yfir 90 þjóðir hér að keppa, þúsundir íþróttafólks, og það er fjöldi atriða sem fólk vill minnast. Við viljum að Ólympíuleikarnir séu öruggt svæði til að keppa, þó að fólki sé frjálst að tjá sig. Hann fær að vera með armband án texta. Þó að við viljum að fólk geti tjáð sig þá verðum við að finna réttu línuna,“ sagði Adams við BBC.
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Fleiri fréttir Stelpurnar okkar hálfa leið á HM með sigri Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Þetta voru ótrúlegir dagar, en líka alveg magnaðir dagar“ „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val HM-minning: Leið yfir móður hans þegar hún fékk fréttirnar Jelena kölluð inn í landsliðið Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Er búinn að glíma við þunglyndi Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Dagskráin í dag: Golf og vináttulandsleikir Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City „Stúkan er of þögul“ Ítali í úrslitaleik Opna franska mótsins ÍBV riftir samning Filip Stuparevic Tryggði sigurinn með glæsimarki Danir andlausir gegn Kongó Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Ein karfa skildi liðin að Jafnir leikir hjá Íslendingunum Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Verða fleiri framúrakstrar í Mónakó? Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sjá meira