Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Sindri Sverrisson skrifar 4. febrúar 2026 15:02 Alfreð Gíslason hefur nú stýrt Þýskalandi til silfurs á ÓL og EM, og tekst næst á við HM á heimavelli í byrjun árs 2027. EPA/TIL BUERGY Eftir að hafa stýrt Þýskalandi til silfurverðlauna á EM í handbolta ákvað Alfreð Gíslason að senda loks gagnrýnendum sínum tóninn. Einn forvera hans í starfi, hinn þykkmotta Heiner Brand, er sammála Alfreð en segir suma gagnrýni þó eiga fullan rétt á sér.
Alfreð nafngreindi engan þegar hann skaut á gagnrýnendur í viðtali við Bild en þýskir miðlar segja ljóst að hann hafi verið að tala til fyrrverandi landsliðsmannanna Stefan Kretzschmar, Pascal Hens og Michael Kraus sem saman stýra hlaðvarpinu Harzblut. „Við vitum öll að þeir hafa ekki mikið vit á þessu. Þeir sem eru með hlaðvarp þurfa að hafa eitthvað að tala um í hverri viku. Enginn þeirra hefur verið þjálfari. Ég veit hvernig taktískur skilningur þeirra er. Og enginn þeirra spilaði í vörn á sínum tíma,“ sagði Alfreð við Bild eftir úrslitaleikinn við Danmörku. Hlaðvarpstríóið hraunaði yfir Alfreð eftir 30-27 tapið óvænta gegn Serbíu snemma móts, sem að lokum hafði engin áhrif á gengi þýska liðsins, og Kraus sagði til að mynda: „Alfreð, hann þjálfaði hörmulega. Hann þjálfaði hörmulega. Þið getið skrifað það niður.“ „Það er bara þannig að ef við eigum að einhverju leyti slakan leik þá eru þessir uppskafningar tilbúnir að níða okkur,“ sagði Alfreð við Bild. „Rétt hjá Alfreð“ Heiner Brand, sem stýrði hlaðvarpstríóinu í þýska landsliðinu um árabil og var með Hens og Kraus í heimsmeistaraliði sínu árið 2007, tjáði sig um þetta mál við Sport 1 og vildi nú reyndar helst að öll dýrin í skóginum gætu verið vinir. „Þeir komu með gagnrýni eftir leik þar sem var klárlega ástæða til að gagnrýna. Ef að menn starfa sem sérfræðingar á stórmóti þá þurfa þeir að segja sína skoðun,“ sagði Brand sem er hins vegar sammála Alfreð að miklu leyti. Heiner Brand þjálfaði Þýskaland um árabil og fagnar hér heimsmeistaratitlinum 2007 með Michael Kraus, Henning Fritz og Markus Baur. Kraus gagnrýndi Alfreð ansi harkalega á EM.Getty/Lars Baron „Þessir þrír eru handboltasérfræðingar en það er rétt hjá Alfreð að þeir hafa aldrei þurft að taka neinar ákvarðanir. Það er ansi ólíkt að horfa á leikinn eða að standa þarna sjálfur og þurfa að taka ákvarðanir,“ sagði Brand sem vill eins og fyrr segir að menn slaki nú á. „Við ættum ekki að leyfa þessu að verða að neinu meira, hvorugir aðila, heldur gleðjast yfir árangri Þýskalands. Við viljum ekki opna aðra ormagryfju og velta vöngum yfir því hverjum sé um að kenna fyrir einhverja hluti og hverjum ekki.“
EM karla í handbolta 2026 Handbolti Mest lesið Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Fótbolti FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Sport „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Íslenski boltinn Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Fótbolti „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ Fótbolti Haukur leiddi endurkomu Löwen Handbolti Fleiri fréttir Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Varamaður Ómars hetja Magdeburgar Skoraði fimmtán mörk Díana og Elín Rósa töpuðu í Meistaradeildinni Afturelding vann síðari hálfleikinn sem var leikinn tveimur dögum eftir þann fyrri Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Selfoss þakkaði sæti í Olís-deildinni með því að vinna meistarana í fyrsta leik Sjá meira