Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. febrúar 2026 06:33 Viktor Gísli Hallgrímsson ver hér eitt af níu vítaköstum sínum á Evrópumótinu. Vísir/Vilhelm Íslensku landsliðsmennirnir eru áberandi meðal efstu manna í tölfræði Evrópumótsins í handbolta sem lauk í gær og Ísland á menn í efsta sætinu á tveimur listum. Hver lét netið oftast syngja á EM? Hver var bestur í að finna samherja sína? Hvaða markvörður varði flest skot? Og hver eyddi mestum tíma á handboltavellinum? Danir tryggðu sér Evrópumeistaratitilinn en hvaða leikmenn sköruðu fram úr á mótinu? Gísli Þorgeir Kristjánsson var ekki aðeins valinn í úrvalsliðið heldur var hann einnig sá leikmaður sem gaf flestar stoðsendingar á samherja sína. Gísli endaði með sex fleiri stoðsendingar en Daninn Mathias Gidsel. Gísli fiskaði líka flest víti á mótinu. Gidsel varð markakóngur Evrópumótsins og setti nýtt EM-markamet með því að skora 68 mörk á mótinu. Hann var eins og áður sagði einnig í öðru sæti í stoðsendingum og kom því að langflestum mörkum eða meira en fjörutíu prósentum marka danska liðsins. Ísland átti fleiri menn á toppnum en Gísla Þorgeir því Viktor Gísli Hallgrímsson varði flest víti allra markavarða á mótinu eða níu talsins. Hann varði einu víti fleira en Daninn Emil Nielsen. Viktor Gísli varð síðan í þriðja sætinu yfir flest varin skot. Óðinn Þór Ríkharðsson varð í öðru sæti á eftir Gidsel í flestum spiluðum mínútum. Gidsel var sá eini sem spilaði í meira en átta klukkustundir en hann var inni á vellinum í átta klukkustundir og tuttugu mínútur. Óðinn Þór varð annar því hann var inni á vellinum í sjö klukkustundir og fjórtán mínútur. Ísland átti alls fjóra leikmenn á topp tíu yfir flestar spilaðar mínútur því Viktor Gísli Hallgrímsson varð fimmti, Elliði Snær Viðarsson áttundi og Ómar Ingi Magnússon níundi. Strákarnir okkar urðu að sætta sig við fjórða sætið.Vísir/Vilhelm Flest skoruð mörk Mathias Gidsel (Danmörk) – 68 mörk (EM-met) Simon Pytlick (Danmörk) – 64 mörk Francisco Costa (Portúgal) – 61 mark Ómar Ingi Magnússon (Ísland) – 55 mörk August Pedersen (Noregur) – 49 mörk Domen Makuc (Slóvenía) – 48 mörk Bence Imre (Ungverjaland) – 46 mörk Martim Costa (Portúgal) – 44 mörk Renārs Uščins (Þýskaland) – 43 mörk Emil Jakobsen (Danmörk) – 40 mörk Ivan Martinovic (Króatía) – 40 mörk - Flestar stoðsendingar Gísli Kristjánsson (Ísland) – 62 stoðsendingar Mathias Gidsel (Danmörk) – 56 stoðsendingar Sander Sagosen (Noregur) – 39 stoðsendingar Rui Silva (Portúgal) – 37 stoðsendingar Blaž Janc (Slóvenía) – 35 stoðsendingar Salvador Salvador (Portúgal) – 33 stoðsendingar Simon Pytlick (Danmörk) – 32 stoðsendingar Felix Aellen (Sviss) – 32 stoðsendingar Julian Köster (Þýskaland) – 31 stoðsending Domen Makuc (Slóvenía) – 30 stoðsendingar Thibaud Briet (Frakkland) – 30 stoðsendingar - Þáttur í flestum mörkum Mathias Gidsel (Danmörk) – 124 mörk Gísli Kristjánsson (Ísland) – 96 mörk Simon Pytlick (Danmörk) – 96 mörk Francisco Costa (Portúgal) – 82 mörk Ómar Ingi Magnússon (Ísland) – 81 mark Domen Makuc (Slóvenía) – 78 mörk Blaž Janc (Slóvenía) – 74 mörk Sander Sagosen (Noregur) – 69 mörk Tin Lučin (Króatía) – 66 mörk Renārs Uščins (Þýskaland) – 62mörk - Flest varin víti Viktor Gísli Hallgrímsson (Ísland) – 9 varin víti Emil Nielsen (Danmörk) – 8 varin víti Kristóf Palasics (Ungverjaland) – 7 varin víti Andreas Wolff (Þýskaland) – 4 varin víti Dominik Kuzmanović (Króatía) – 4 varin víti Gustavo Capdeville (Portúgal) – 4 varin víti Charles Bolzinger (Frakkland) – 4 varin víti Robin Haug (Noregur) – 4 varin víti - Flest varin skot Andreas Wolff (Þýskaland) – 91 markvarsla Emil Nielsen (Danmörk) – 80 markvörslur Viktor Gísli Hallgrímsson (Ísland) – 77 markvörslur Torbjørn Bergerud (Noregur) – 64 markvörslur Andreas Palicka (Svíþjóð) – 63 markvörslur Kristóf Palasics (Ungverjaland) – 62 markvörslur Nikola Portner (Sviss) – 59 markvörslur Dominik Kuzmanović (Króatía) – 54 markvörslur Sergey Hernández (Spánn) – 50 markvörslur Gustavo Capdeville (Portúgal) – 47 markvörslur - Flestar mínútur á vellinum Mathias Gidsel (Danmörk) – 8 klukkustundir og 20 mínútur Óðinn Þór Ríkharðsson (Ísland) – 7 klukkustundir og 14 mínútur Magnus Saugstrup (Danmörk) – 7 klukkustundir og 11 mínútur Hampus Wanne (Svíþjóð) – 7 klukkustundir Viktor Gísli Hallgrímsson (Ísland) – 6 klukkustundir og 53 mínútur Lukas Zerbe (Þýskaland) – 6 klukkustundir og 39 mínútur David Mandić (Króatía) – 6 klukkustundir og 37 mínútur Elliði Snær Viðarsson (Ísland) – 6 klukkustundir og 32 mínútur Ómar Ingi Magnússon (Ísland) – 6 klukkustundir og 26 mínútur Gino Steenaerts (Sviss) – 6 klukkustundir og 22 mínútur EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Stólpagrín gert að „nasistamerki“ Fálkanna Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Handbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fleiri fréttir HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Sjá meira
Hver lét netið oftast syngja á EM? Hver var bestur í að finna samherja sína? Hvaða markvörður varði flest skot? Og hver eyddi mestum tíma á handboltavellinum? Danir tryggðu sér Evrópumeistaratitilinn en hvaða leikmenn sköruðu fram úr á mótinu? Gísli Þorgeir Kristjánsson var ekki aðeins valinn í úrvalsliðið heldur var hann einnig sá leikmaður sem gaf flestar stoðsendingar á samherja sína. Gísli endaði með sex fleiri stoðsendingar en Daninn Mathias Gidsel. Gísli fiskaði líka flest víti á mótinu. Gidsel varð markakóngur Evrópumótsins og setti nýtt EM-markamet með því að skora 68 mörk á mótinu. Hann var eins og áður sagði einnig í öðru sæti í stoðsendingum og kom því að langflestum mörkum eða meira en fjörutíu prósentum marka danska liðsins. Ísland átti fleiri menn á toppnum en Gísla Þorgeir því Viktor Gísli Hallgrímsson varði flest víti allra markavarða á mótinu eða níu talsins. Hann varði einu víti fleira en Daninn Emil Nielsen. Viktor Gísli varð síðan í þriðja sætinu yfir flest varin skot. Óðinn Þór Ríkharðsson varð í öðru sæti á eftir Gidsel í flestum spiluðum mínútum. Gidsel var sá eini sem spilaði í meira en átta klukkustundir en hann var inni á vellinum í átta klukkustundir og tuttugu mínútur. Óðinn Þór varð annar því hann var inni á vellinum í sjö klukkustundir og fjórtán mínútur. Ísland átti alls fjóra leikmenn á topp tíu yfir flestar spilaðar mínútur því Viktor Gísli Hallgrímsson varð fimmti, Elliði Snær Viðarsson áttundi og Ómar Ingi Magnússon níundi. Strákarnir okkar urðu að sætta sig við fjórða sætið.Vísir/Vilhelm Flest skoruð mörk Mathias Gidsel (Danmörk) – 68 mörk (EM-met) Simon Pytlick (Danmörk) – 64 mörk Francisco Costa (Portúgal) – 61 mark Ómar Ingi Magnússon (Ísland) – 55 mörk August Pedersen (Noregur) – 49 mörk Domen Makuc (Slóvenía) – 48 mörk Bence Imre (Ungverjaland) – 46 mörk Martim Costa (Portúgal) – 44 mörk Renārs Uščins (Þýskaland) – 43 mörk Emil Jakobsen (Danmörk) – 40 mörk Ivan Martinovic (Króatía) – 40 mörk - Flestar stoðsendingar Gísli Kristjánsson (Ísland) – 62 stoðsendingar Mathias Gidsel (Danmörk) – 56 stoðsendingar Sander Sagosen (Noregur) – 39 stoðsendingar Rui Silva (Portúgal) – 37 stoðsendingar Blaž Janc (Slóvenía) – 35 stoðsendingar Salvador Salvador (Portúgal) – 33 stoðsendingar Simon Pytlick (Danmörk) – 32 stoðsendingar Felix Aellen (Sviss) – 32 stoðsendingar Julian Köster (Þýskaland) – 31 stoðsending Domen Makuc (Slóvenía) – 30 stoðsendingar Thibaud Briet (Frakkland) – 30 stoðsendingar - Þáttur í flestum mörkum Mathias Gidsel (Danmörk) – 124 mörk Gísli Kristjánsson (Ísland) – 96 mörk Simon Pytlick (Danmörk) – 96 mörk Francisco Costa (Portúgal) – 82 mörk Ómar Ingi Magnússon (Ísland) – 81 mark Domen Makuc (Slóvenía) – 78 mörk Blaž Janc (Slóvenía) – 74 mörk Sander Sagosen (Noregur) – 69 mörk Tin Lučin (Króatía) – 66 mörk Renārs Uščins (Þýskaland) – 62mörk - Flest varin víti Viktor Gísli Hallgrímsson (Ísland) – 9 varin víti Emil Nielsen (Danmörk) – 8 varin víti Kristóf Palasics (Ungverjaland) – 7 varin víti Andreas Wolff (Þýskaland) – 4 varin víti Dominik Kuzmanović (Króatía) – 4 varin víti Gustavo Capdeville (Portúgal) – 4 varin víti Charles Bolzinger (Frakkland) – 4 varin víti Robin Haug (Noregur) – 4 varin víti - Flest varin skot Andreas Wolff (Þýskaland) – 91 markvarsla Emil Nielsen (Danmörk) – 80 markvörslur Viktor Gísli Hallgrímsson (Ísland) – 77 markvörslur Torbjørn Bergerud (Noregur) – 64 markvörslur Andreas Palicka (Svíþjóð) – 63 markvörslur Kristóf Palasics (Ungverjaland) – 62 markvörslur Nikola Portner (Sviss) – 59 markvörslur Dominik Kuzmanović (Króatía) – 54 markvörslur Sergey Hernández (Spánn) – 50 markvörslur Gustavo Capdeville (Portúgal) – 47 markvörslur - Flestar mínútur á vellinum Mathias Gidsel (Danmörk) – 8 klukkustundir og 20 mínútur Óðinn Þór Ríkharðsson (Ísland) – 7 klukkustundir og 14 mínútur Magnus Saugstrup (Danmörk) – 7 klukkustundir og 11 mínútur Hampus Wanne (Svíþjóð) – 7 klukkustundir Viktor Gísli Hallgrímsson (Ísland) – 6 klukkustundir og 53 mínútur Lukas Zerbe (Þýskaland) – 6 klukkustundir og 39 mínútur David Mandić (Króatía) – 6 klukkustundir og 37 mínútur Elliði Snær Viðarsson (Ísland) – 6 klukkustundir og 32 mínútur Ómar Ingi Magnússon (Ísland) – 6 klukkustundir og 26 mínútur Gino Steenaerts (Sviss) – 6 klukkustundir og 22 mínútur
Flest skoruð mörk Mathias Gidsel (Danmörk) – 68 mörk (EM-met) Simon Pytlick (Danmörk) – 64 mörk Francisco Costa (Portúgal) – 61 mark Ómar Ingi Magnússon (Ísland) – 55 mörk August Pedersen (Noregur) – 49 mörk Domen Makuc (Slóvenía) – 48 mörk Bence Imre (Ungverjaland) – 46 mörk Martim Costa (Portúgal) – 44 mörk Renārs Uščins (Þýskaland) – 43 mörk Emil Jakobsen (Danmörk) – 40 mörk Ivan Martinovic (Króatía) – 40 mörk - Flestar stoðsendingar Gísli Kristjánsson (Ísland) – 62 stoðsendingar Mathias Gidsel (Danmörk) – 56 stoðsendingar Sander Sagosen (Noregur) – 39 stoðsendingar Rui Silva (Portúgal) – 37 stoðsendingar Blaž Janc (Slóvenía) – 35 stoðsendingar Salvador Salvador (Portúgal) – 33 stoðsendingar Simon Pytlick (Danmörk) – 32 stoðsendingar Felix Aellen (Sviss) – 32 stoðsendingar Julian Köster (Þýskaland) – 31 stoðsending Domen Makuc (Slóvenía) – 30 stoðsendingar Thibaud Briet (Frakkland) – 30 stoðsendingar - Þáttur í flestum mörkum Mathias Gidsel (Danmörk) – 124 mörk Gísli Kristjánsson (Ísland) – 96 mörk Simon Pytlick (Danmörk) – 96 mörk Francisco Costa (Portúgal) – 82 mörk Ómar Ingi Magnússon (Ísland) – 81 mark Domen Makuc (Slóvenía) – 78 mörk Blaž Janc (Slóvenía) – 74 mörk Sander Sagosen (Noregur) – 69 mörk Tin Lučin (Króatía) – 66 mörk Renārs Uščins (Þýskaland) – 62mörk - Flest varin víti Viktor Gísli Hallgrímsson (Ísland) – 9 varin víti Emil Nielsen (Danmörk) – 8 varin víti Kristóf Palasics (Ungverjaland) – 7 varin víti Andreas Wolff (Þýskaland) – 4 varin víti Dominik Kuzmanović (Króatía) – 4 varin víti Gustavo Capdeville (Portúgal) – 4 varin víti Charles Bolzinger (Frakkland) – 4 varin víti Robin Haug (Noregur) – 4 varin víti - Flest varin skot Andreas Wolff (Þýskaland) – 91 markvarsla Emil Nielsen (Danmörk) – 80 markvörslur Viktor Gísli Hallgrímsson (Ísland) – 77 markvörslur Torbjørn Bergerud (Noregur) – 64 markvörslur Andreas Palicka (Svíþjóð) – 63 markvörslur Kristóf Palasics (Ungverjaland) – 62 markvörslur Nikola Portner (Sviss) – 59 markvörslur Dominik Kuzmanović (Króatía) – 54 markvörslur Sergey Hernández (Spánn) – 50 markvörslur Gustavo Capdeville (Portúgal) – 47 markvörslur - Flestar mínútur á vellinum Mathias Gidsel (Danmörk) – 8 klukkustundir og 20 mínútur Óðinn Þór Ríkharðsson (Ísland) – 7 klukkustundir og 14 mínútur Magnus Saugstrup (Danmörk) – 7 klukkustundir og 11 mínútur Hampus Wanne (Svíþjóð) – 7 klukkustundir Viktor Gísli Hallgrímsson (Ísland) – 6 klukkustundir og 53 mínútur Lukas Zerbe (Þýskaland) – 6 klukkustundir og 39 mínútur David Mandić (Króatía) – 6 klukkustundir og 37 mínútur Elliði Snær Viðarsson (Ísland) – 6 klukkustundir og 32 mínútur Ómar Ingi Magnússon (Ísland) – 6 klukkustundir og 26 mínútur Gino Steenaerts (Sviss) – 6 klukkustundir og 22 mínútur
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Stólpagrín gert að „nasistamerki“ Fálkanna Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Handbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fleiri fréttir HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Sjá meira