Dreymdi medalíu og fær óskiljanlega emoji kalla frá pabba sínum Henry Birgir Gunnarsson skrifar 1. febrúar 2026 10:31 Einar Þorsteinn getur unnið sín fyrstu verðlaun á stórmóti. Þarna má sjá pabba hans á EM í Austurríki þar sem Ísland vann síðast til verðlauna. vísir/vilhelm Einar Þorsteinn Ólafsson var einn þeirra sem mættu snemma í Boxen í gær til þess að hitta fjölmiðla en hittingurinn var það snemma að ákveðinn hluti íslenska hópsins var enn sofandi. „
Þetta kemur á óvart. Við fengum að vita af þessu seint en látum sjá okkur fyrir hönd HSÍ,“ sagði Einar Þorsteinn en mætingin frá íslenska liðinu var með ágætum. Klippa: Dreymdi verðlaun og fær óskiljanlega emoji frá pabba „Nóttin var löng og menn fóru frekar seint að sofa enda kláraðist leikurinn seint. Þurftum svo að taka kvöldmatinn með hinum liðunum sem var ekki frábært. Maður hengdi haus í gær en nú er bara að undirbúa sig fyrir lokaleikinn.“ Það er nefnilega heilmikið undir í dag. Verðlaun á stórmóti og íslenska liðið ætlar að tryggja sér þau verðlaun. „Medalía er ekki sjálfsögð og sjaldan í boði fyrir íslenska liðið. Mig langar allavega í medalíu og er tilbúinn að berjast fyrir henni. Ég held að allir hinir séu á sama máli.“ Faðir hans, Ólafur Stefánsson, talaði á árum áður um mikivægi þess að sjá verðlaunin fyrir sér áður en farið væri á stórmót. Er strákurinn eins? Held að pabbi viti ekki hvað þetta þýðir „Hann er búinn að kenna mér þetta allt saman. Mig dreymdi annars í nótt að við myndum vinna medalíu. Ég held það boði gott,“ segir Einar en hann fær alltaf pepp frá pabba sínum sem hann reyndar skilur ekki alltaf. „Hann er alltaf að reyna að vera varkár og koma ekki með of mikið. Ef mig vantar þá kemur hann alltaf með fyndið pepporð fyrir leik. Það er eins og „koma son“ og svo hendir hann í tíu mismunandi emoji. Lykla, tré og ég veit ekki hvað þau þýða. Ég held að hann geti ekki útskýrt það sjálfur hvað þetta eigi að þýða. Þegar hann segir ok þá setur hann alltaf broskall í staðinn fyrir o-ið. Það er uppáhaldið hans.“
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Fótbolti Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira