„Verður nú varla verra. Eða jú, kannski“ Valur Páll Eiríksson skrifar 1. febrúar 2026 08:31 Dagur var léttur þegar hann var tekinn tali í gær. Vísir/Vilhelm Spurning sem brennur á mörgum Íslendingum í dag er hvort Dagur Sigurðsson muni hafa af liðinu bronsmedalíu á EM. Hann stýrir Króötum gegn Íslandi í leik um bronsið í dag.
Ísland tapaði fyrir Dönum í undanúrslitum á föstudagskvöld og Dagur þurfti að játa sig sigraðan gegn Alfreð Gíslasyni og hans mönnum í Þýskalandi. Það verður því grannaslagur Danmerkur og Þjóðverja um gullið en Ísland spilar við Króatíu um bronsið. Dagur hefur tvisvar fagnað sigri gegn Íslandi á síðustu tveimur mótum, fyrst á HM í Zagreb í fyrra og svo í milliriðli yfirstandandi móts í Malmö. „Mér líst bara vel á. Þetta er þriðji leikurinn á einu ári. Liðin þekkjast vel og ekkert nýtt undir sólinni. Þetta eru tvö baráttulið með mikinn karakter. Þetta er handboltaleikur þar sem er mikið undir og níundi leikurinn í mótinu, það hefur allt sína kosti og galla,“ segir Dagur. Mun þá þreyta hafa mikil áhrif í dag? „Nei, kannski ekki. Ekki nema að þetta er níundi leikurinn og allt það.“ Sigur Dags á Íslandi í fyrra skaut Króötum áfram úr milliriðli á kostnað Íslands. Sér hann fyrir að hann brjóti íslensk hjörtu í dag? „Er ég ekki búinn að gera nóg af því? Það verður nú varla verra. Eða jú, kannski,“ segir Dagur og glottir við. Ísland og Króatía mætast klukkan 14:15 í dag í leik um bronsið á EM. Teymi Sýnar mun fylgja liðinu áfram eftir hvert fótmál fram að leik.
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Stólpagrín gert að „nasistamerki“ Fálkanna Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Handbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fleiri fréttir HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Sjá meira