Séra Guðni mættur til Herning: „Trúi að það verði kraftaverk í kvöld“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. janúar 2026 17:51 Séra Guðni Már Harðarson vonast til að fá æðri máttarvöld með Íslendingum í lið í kvöld. sýn sport Séra Guðni Már Harðarson, prestur í Lindakirkju, er einn þeirra fáu Íslendinga sem verða svo heppnir að vera á leik Danmerkur og Íslands í undanúrslitum EM 2026 í handbolta. Guðni tók áhættu sem borgaði sig. „
Í hálfleik á Svíaleiknum sagði ég: Við erum að fara að gera þetta. Notaði bara síðuna ViaGogo. Maður verður að treysta,“ sagði Guðni í samtali við Henry Birgi Gunnarsson og horfði til himins. Klippa: Séra Guðni hefur trú á kraftaverki í kvöld Guðni var í Malmö þar sem milliriðill II var spilaður og hafði fulla trú á að íslenska liðið kæmist til Herning þar sem úrslitahelgi Evrópumótsins fer fram. „Ég er búinn að vera viss um að við kæmumst í undanúrslitin og það reyndist rétt. Það er grunnurinn að þessu, að trúa að við förum alla leið. Ég ætla líka að trúa að það verði kraftaverk í kvöld,“ sagði Guðni. Presturinn hefur trú þrátt fyrir að Íslendingar verði í miklum minnihluta í stúkunni í Jyske Bank Boxen í kvöld og vísaði í söguna um Davíð og Golíat. „Maður er svona: Ég á ekki heima hérna. En þannig var það líka þegar Davíð sigraði Golíat. Filistearnir voru miklu fleiri. Davíð var ekki stór en hafði trú,“ sagði Guðni. Viðtalið við Guðna og tvo félaga hans má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Fótbolti Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira