„Við erum að vinna í að fjölga miðum“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 28. janúar 2026 18:57 Jón Halldórsson, formaður HSÍ, biður fólk um að fylgjast með heimasíðu og samfélagsmiðlum sambandsins fyrir upplýsingar um miðasölu. vísir / vilhelm Jón Halldórsson, formaður HSÍ, vinnur hörðum höndum að því að útvega aðdáendum íslenska landsliðsins miða á úrslitaleiki Íslands á föstudag og sunnudag.
Jón ræddi miðamálin við Val Pál Eiríksson í kvöldfréttum Sýnar og sagði alla helstu hausa HSÍ vera að vinna í að redda fleiri miðum, en áður hefur komið fram að Ísland fái frekar fáa miða á úrslitahelgina. „Það er stóra málið núna. Við erum að vinna í að fjölga miðum. Við erum ekki með marga miða eins og er en við erum með alla anga úti til að geta fjölgað miðum. Það kemur í ljós í kvöld, eftir því hvernig hinir leikirnir enda, hvernig það endar.“ Ísland mun mæta annað hvort Þýskalandi eða Danmörku í undanúrslitum á föstudag og spila síðan upp á annað hvort gull eða brons á sunnudag. Jón vonar innilega en þorir engu að lofa um að fleiri íslenskir aðdáendur bætist við hópinn í Herning í Danmörku. „Vonandi náum við að hafa eitthvað miðaframboð, þannig að við getum flogið einni, tveimur, kannski þremur flugvélum út til okkar. En það er óvíst ennþá.“ Upplýsingar um miðasölu verða birtar á heimasíðu HSÍ og samfélagsmiðlum sambandsins. „Það verður bara seinna í kvöld. Við biðjum fólk bara um að fylgjast með okkar heimasíðu og samfélagsmiðlum, ásamt Icelandair sem er að vinna þetta með okkur.“
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Tengdar fréttir Erfitt fyrir Íslendinga að komast að: „Það er bara uppselt“ Fari svo að Ísland komist í undanúrslit á yfirstandandi Evrópumóti karla í handbolta um helgina verður snúið fyrir stuðningsfólk að fá miða á úrslitahelgina í Herning. Uppselt er á leikina. 27. janúar 2026 09:52 Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Stólpagrín gert að „nasistamerki“ Fálkanna Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Leik lokið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Íslenski boltinn Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fleiri fréttir Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Sjá meira
Erfitt fyrir Íslendinga að komast að: „Það er bara uppselt“ Fari svo að Ísland komist í undanúrslit á yfirstandandi Evrópumóti karla í handbolta um helgina verður snúið fyrir stuðningsfólk að fá miða á úrslitahelgina í Herning. Uppselt er á leikina. 27. janúar 2026 09:52