Sundabraut og Fljótagöng verkefni innviðafélagsins Kristján Már Unnarsson skrifar 25. janúar 2026 13:25 Ein tillagan að Sundabrú gerir ráð fyrir þrjátíu metra hárri brú yfir Kleppsvík. Efla verkfræðistofa Fjármálaráðherra stefnir að því að innviðafélag um stórframkvæmdir ríkisins verði stofnað í vor. Ráðgert er að fyrstu verkefni félagsins verði Ölfusárbrú, Sundabraut og Fljótagöng.
Ríkisstjórnin kynnti fyrir jól þá ákvörðun að stofna innviðafélag um stærri samgönguframkvæmdir. Við spurðum Daða Má Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, um þýðingu innviðafélagsins. „Kannski stærsta breytingin verður sú að við getum ráðist í þau stóru verkefni sem hefur svona verið ákveðið vandamál að fá af stað. Það er erfitt að fara í langt verkefni sem þarf að fjármagna síðan eitt ár í einu. Þannig að okkar ætlun er að þetta innviðafélag geti þá hafið þessa uppbyggingu stærri framkvæmda og ákveðinn fyrirsjáanleika líka í uppbyggingu þeirra,“ segir ráðherrann í hádegisfréttum Bylgjunnar. Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra.Bjarni Einarsson Innviðafélagið verður að fullu í eigu ríkisins. Fyrirhugað er að ríkið leggi til árlegt eiginfjárframlag en jafnframt fái það tekjur af vegtollum. Einnig komi til lántaka með ríkisábyrgð og þá geti lífeyrissjóðir og aðrir fjárfestar komið að fjármögnun. Daði Már vonast til að þannig takist að rjúfa þá kyrrstöðu sem verið hafi, svo sem í jarðgangagerð. „Ég myndi segja að það að vinna aftur upp slakann, sem varð til hérna eftir bankahrunið, það er stóra verkefnið. Við höfum aldrei náð okkur almennilega á strik eftir það. Það hefur auðvitað með það að gera að það hafa riðið yfir áföll, en líka bara að það er auðvelt að skera niður fjárfestingarverkefnin. Það kemur bara í bakið á þér. Og þessu þurfum við að snúa við.“ Nýja Ölfusárbrúin verður sett undir innviðafélagið.Vegagerðin Ráðgert er að nýja Ölfusárbrúin færist undir félagið. En síðan taki það að sér Sundabraut, Fljótagöng og næstu jarðgöng samkvæmt samgönguáætlun. -En hvenær gæti það gerst að innviðafélagið verði tilbúið að setja framkvæmdirnar af stað? „Þetta er á þingmálaskrá núna í vor, þannig að stofnun félagsins verður núna í vor,“ svaraði Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Samgöngur Samgönguáætlun Vegagerð Jarðgöng á Íslandi Ný Ölfusárbrú Sundabraut Tengdar fréttir Við gætum farið að aka Sundabraut eftir sjö ár Framkvæmdir við Sundabraut gætu hafist eftir tvö ár, gangi áform stjórnvalda eftir. Þeir sem vilja lýsa skoðun sinni hafa núna sex vikna frest, til 30. nóvember, til að koma áliti sínu á framfæri. 15. október 2025 22:00 Segir göng undir Fjarðarheiði ekki fjárhagslega forsvaranleg Ríkisstjórnin er einhuga um að breyta forgangsröðun jarðganga og setja Fljótagöng í fyrsta sæti og hafa þingflokkar stjórnarinnar samþykkt tillöguna. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að Fjarðarheiðargöng hafi ekki verið fjárhagslega forsvaranleg. 3. desember 2025 21:10 Fyrsta skóflustungan að nýrri Ölfusárbrú Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra tók fyrstu skóflustunguna að nýrri Ölfusárbrú í dag. Þá var undirritaður verktakasamningur í Golfskálanum á Selfossi. 20. nóvember 2024 16:39 Fern ný jarðgöng undirbúin meðan Fjarðarheiðin bíður Fern ný jarðgöng verða undirbúin, Fossvogsbrú sett af stað og lykilvegir byggðir upp á Vestfjörðum og á Norðausturlandi. Breikkun Vesturlandsvegar á Kjalarnesi frestast hins vegar, samkvæmt samgönguáætlun næsta árs, sem kynnt var í dag. 19. nóvember 2024 21:21 Mest lesið Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Fleiri fréttir Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Sjá meira
Við gætum farið að aka Sundabraut eftir sjö ár Framkvæmdir við Sundabraut gætu hafist eftir tvö ár, gangi áform stjórnvalda eftir. Þeir sem vilja lýsa skoðun sinni hafa núna sex vikna frest, til 30. nóvember, til að koma áliti sínu á framfæri. 15. október 2025 22:00
Segir göng undir Fjarðarheiði ekki fjárhagslega forsvaranleg Ríkisstjórnin er einhuga um að breyta forgangsröðun jarðganga og setja Fljótagöng í fyrsta sæti og hafa þingflokkar stjórnarinnar samþykkt tillöguna. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að Fjarðarheiðargöng hafi ekki verið fjárhagslega forsvaranleg. 3. desember 2025 21:10
Fyrsta skóflustungan að nýrri Ölfusárbrú Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra tók fyrstu skóflustunguna að nýrri Ölfusárbrú í dag. Þá var undirritaður verktakasamningur í Golfskálanum á Selfossi. 20. nóvember 2024 16:39
Fern ný jarðgöng undirbúin meðan Fjarðarheiðin bíður Fern ný jarðgöng verða undirbúin, Fossvogsbrú sett af stað og lykilvegir byggðir upp á Vestfjörðum og á Norðausturlandi. Breikkun Vesturlandsvegar á Kjalarnesi frestast hins vegar, samkvæmt samgönguáætlun næsta árs, sem kynnt var í dag. 19. nóvember 2024 21:21